825. spurningaþraut: Hér er í boði sérstakt Guðjohnsen-stig!

825. spurningaþraut: Hér er í boði sérstakt Guðjohnsen-stig!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir rit­höf­und­ur­inn sem virðir hér fyrir sér nokkrar bóka sinna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða heims­álfu eru ríkin Palau og Nauru?

2.  Íslenskur lög­fræð­ingur og dóm­ari í lands­yf­ir­rétti, fæddur 1762, dáinn 1833. Beitti sér mjög í bóka­út­gáfu og alls­konar þjóð­þrifa­málum, frjáls­lyndur skyn­sem­is­hyggju­maður og að mörgu leyti and­lit upp­lýs­ing­ar­innar á Íslandi. Hvað hét hann?

3.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Jaws um stóran mannætu­há­karl?

4.  Hvað heitir sjón­varps­kokk­ur­inn sem er kunnur fyrir lit­ríka raun­veru­leika­þætti um mat­reiðslu eins og Hell's Kitchen, Kitchen Night­mares og fleiri?

5.  Árið 1937 sendi Disney-fyr­ir­tækið frá sér fyrstu teikni­mynd sög­unnar í fullri lengd. Hver var aðal­per­sóna mynd­ar­innar sem hún hét jafn­framt eftir?

6.  Hvaða strengja­hljóð­færi hefur — í sinni klass­ísku mynd — 47 strengi?

7.  Sylvia Plath var lista­kona sem dó fyrir aldur fram 1963. Hvaða list­grein fékkst hún við?

8.  Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir heitir ungur þing­maður sem kom inn á þing í Suð­ur­kjör­dæmi í fyrra. Hún er lög­fræð­ingur að mennt og er þriðji þing­maður síns flokks í kjör­dæm­inu. Hvaða flokkur er það?

9.  Hún er kvik­mynda­stjarna, fædd 1966, móðir hennar ensk en faðir hennar svartur Banda­ríkja­maður og 2002 varð hún fyrsta og hingað til eina konan af svörtum eða blönd­uðum upp­runa til að vinna Ósk­arsverð­laun fyrir leik í aðal­hlut­verki. Það var fyrir mynd­ina Monster's Ball. Sama ár lék hún Bond-stúlk­una Jinx í Die Another Day og hefur feng­ist við margt og mikið, þótt ívið minna hafi borið á henni síð­ustu árin en fyrst eftir alda­mót. Hvað heitir hún? 

10.  Tveir synir Eiðs Smára Guðjohn­sen og Ragn­hildar Sveins­dóttur eru byrj­aðir að spila með íslenska karla­lands­lið­inu í fót­bolta og sá þriðji er far­inn að leika með ung­menna­lið­unum. Nefnið tvo af þessum þremur efn­ispiltum — eitt skírn­ar­nafn dugar í hverju til­felli. Ef þið hafið alla þrjá rétt, meg­iði sæma ykkur sér­stöku Guðjohn­sen-stigi!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefnd­ist þetta söng­tríó sem naut gríð­ar­lega vin­sælda um miðjan sjö­unda ára­tug og lengi síðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eyjaálfu.

2.  Magnús Steph­en­sen.

3.  Steven Spi­el­berg.

4.  Gordon Ramsey.

5.  Mjall­hvít.

6.  Harpa.

7.  Skáld­skap.

8.  Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

9.  Halle Berry.

Halle Berry

10.  Þeir heita Sveinn Aron, Andri Lucas og Daníel Tristan. Hér duga Sveinn, Andri og Daníel.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er Agatha Christie.

Á neðri mynd­inni er söng­flokk­ur­inn Supremes (með Diönu Ross í broddi fylk­ingar).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár