824. spurningaþraut: Nú reynir ögn á þekkingu í landafræði

824. spurningaþraut: Nú reynir ögn á þekkingu í landafræði

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver átti öxina Rimmugýgi?

2.  En hver átti atgeir þann sem söng í þegar mann­dráp voru á næsta leiti?

3.  Við hvaða sund stendur bær­inn Calais?

4.  Í hvaða bók koma við sögu bræð­urnir Jónatan og Kalli?

5.  Undir hvaða nafni þekkjum við yfir­leitt fjöllið­una Deoxyribonucleiska sýru eða acid?

6.  Hvaða evr­ópska nýlendu­veldi réði mestum hluta Indónesíu á sínum tíma?

7.  Shoema­ker-Levi 9 kom fram á sjón­ar­sviðið 1994 en Hale-Bopp þremur árum seinna. Shoema­ker-Levi 9 mun aldrei sjást framar en við erum ekki búin að bíta úr nál­inni með Hale-Bopp. Hvers konar fyr­ir­bæri eru Shoema­ker-Levi 9 og Hale-Bopp?

8.  Og hvers vegna mun Shoema­ker-Levi 9 ekki sjást framar? Hér þarf býsna nákvæmt svar.

9.  „Sagan sem ekki mátti segja,“ hét ævi­saga sem kom út á Íslandi 1989. Þar sagði ákveð­inn ein­stak­lingur Nönnu Rögn­valds­dóttur sögu sína. Hvaða ein­stak­lingur var það sem átti þá sögu er ekki hafði fram að því „mátt segja“?

10.  Hvaða íslenski rit­höf­undur var svo mikið fyrir bisk­upa að senda frá sér laust fyrir 1900 skáld­sög­urnar Brynjólfur Sveins­son biskup, Jón biskup Vídalín og Jón biskup Arason?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan sem á mynd­inni sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skarp­héð­inn Njálsson.

2.  Gunnar á Hlíð­ar­enda.

3.  Ermar­sund.

4.  Bróðir minn Ljóns­hjarta.

5.  DNA.

6.  Holland.

7.  Hala­stjörnur.

8.  Af því Shoema­ker-Levi 9 rakst á Júpíter og eydd­ist. Nefna verður Júpíter.

9.  Björn sonur Svein Björns­sonar fyrsta for­seta Íslands sem var í SS-sveit­unum á stríðs­ár­unum.

10.  Torf­hildur Hólm.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fyrri myndin var tekin við vatnið Loch Ness í Skotlandi.

Eyjan á neðri mynd­inni er Tasmanía suður af Ástralíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár