Einhverf listakona á litrófi

Frida Adriana Martins var greind með heila­lömun þegar hún var ung­barn en segir að þó að líf hennar sem fjöl­fatl­aðrar konu hafi verið fullt af hindr­unum sé til­finn­inga­þreytan vegna ein­hverf­unnar erf­ið­ust. Hún leiði af sér kvíða og þung­lyndi sem séu til komin vegna stöðugrar glímu við sam­fé­lag sem geri ekki ráð fyrir ein­hverfu fólki.

Einhverf listakona á litrófi
Frida Adriana segir að þegar fólk spyrji hvernig ein­hverfan lýsi sér biðji hún það að ímynda sér að vera vafin inn í plast sem leiðir í gegnum sig alltof mikið ljós og hávaða. Þannig líði henni dag­lega Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er ein­hverf lista­kona á lit­rófi,“ segir Frida Adriana, sem var greind með ódæmi­gerða ein­hverfu fyrir ell­efu árum, þegar hún var þrí­tug. „Maður þarf því miður að fá allt stað­fest á pappír til þess að það sé tekið mark á manni. Ég hafði lengi vitað að mínar and­legu áskor­anir og öðru­vísi skynjun væru ekki bara vegna heila­löm­un­ar­innar þó að fókus lækn­anna væri á henni. Ein­hverfan hefur hins vegar að mörgu leyti haft meiri áhrif á mitt líf en heila­löm­unin,“ segir Frida og bætir við að þar sem hún hafi verið full­orðin þegar hún var greind ein­hverf hafi hún getað valið þau orð sem hún noti þegar hún segi frá grein­ing­unni. „Sjálfri finnst mér skrýtið að segj­ast „vera með“ ein­hverfu, það er eins og að vera með hatt en það er hægt að taka hatt­inn af sér en þú berð ein­hverf­una alla ævi, þú tekur hana ekki af þér og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ein í heiminum

„Við erum huldufólkið í kerfinu“
ViðtalEin í heiminum

„Við erum huldu­fólkið í kerf­inu“

Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dóttir segir að ein­hverft fólk sé frá blautu barns­beini gaslýst dag­lega því að stöðugt sé efast um upp­lifun þess. Það leiði af sér flóknar and­legar og lík­am­legar áskor­anir en stuðn­ingur við full­orðið ein­hverft fólk sé nán­ast eng­inn. „Við erum huldu­fólkið í kerf­inu,“ segir Guðlaug sem glímir nú við ein­hverfukulnun í annað sinn á nokkrum árum.
„Rosalegt álag“ að vera einhverf úti í samfélaginu
ViðtalEin í heiminum

„Rosalegt álag“ að vera ein­hverf úti í sam­fé­lag­inu

Elísabet Guðrúnar og Jóns­dóttir segir að geð­ræn veik­indi sem hún hafi þjáðst af frá barn­æsku séu afleið­ing álags sem fylgi því að vera ein­hverf án þess að vita það. Stöðugt hafi verið gert lítið úr upp­lifun hennar og til­finn­ingum. Hún hætti því alfarið að treysta eigin dóm­greind sem leiddi meðal ann­ars til þess að hún varð útsett fyrir ofbeldi.
Einhverf án geðheilbrigðisþjónustu: „Háalvarlegt mál“
ÚttektEin í heiminum

Einhverf án geð­heil­brigð­is­þjón­ustu: „Háal­var­legt mál“

Stöðug glíma við sam­fé­lag sem gerir ekki ráð fyrir ein­hverfu fólki getur leitt til alvar­legra veik­inda. Þetta segja við­mæl­endur Stund­ar­innar sem öll voru full­orðin þegar þau voru greind ein­hverf. Fram­kvæmda­stjóri Ein­hverfu­sam­tak­anna segir þau til­heyra hópi sem fái ekki lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu sem sé lög­brot. Sænsk rann­sókn leiddi í ljós að ein­hverfir lifi að með­al­tali 16 árum skemur en fólk sem ekki er ein­hverft. „Staðan er háal­var­leg,“ segir sál­fræð­ingur sem hefur sér­hæft sig í ein­hverfu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár