Elísabet segir að skortur á stuðn­ingi og upp­lýs­ingum brjóti fólk niður. Það sé ógn­vekj­andi. „Eins og staðan er núna er maður dálítið einn.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

„Rosalegt álag“ að vera einhverf úti í samfélaginu

Elísabet Guðrúnar og Jóns­dóttir segir að geð­ræn veik­indi sem hún hafi þjáðst af frá barn­æsku séu afleið­ing álags sem fylgi því að vera ein­hverf án þess að vita það. Stöðugt hafi verið gert lítið úr upp­lifun hennar og til­finn­ingum. Hún hætti því alfarið að treysta eigin dóm­greind sem leiddi meðal ann­ars til þess að hún varð útsett fyrir ofbeldi.

Elísabet var greind ein­hverf fyrir fjórum árum en þá var hún 25 ára. Hún segir að þó að hún hafi verið nokkuð viss um að hún væri ein­hverf hafi þungu fargi verið af henni létt þegar hún fékk það loks stað­fest. „Þá voru komnar skýr­ingar á allri þeirri van­líðan sem hafði þjakað mig frá því að ég var barn. Ein­hverfan var rótin. Ég var orðin full­orðin og hafði alltaf skynjað heim­inn á annan hátt en aðrir án þess að vita hvers vegna,“ segir Elísabet, sem er 29 ára. Hún er tölv­un­ar­stærð­fræð­ingur og vinnur í dag sem for­rit­ari.

Elísabet var átján ára þegar fyrst vakn­aði grunur um að hún væri ein­hverf. „Ég fór ekki í grein­ingu fyrr en sjö árum síðar. Þá var ég hætt að drekka áfengi sem varð til þess að ein­kenni ein­hverf­unnar komu betur í ljós og fóru að há mér meira. Þá ákvað ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinunn Ósk Guðmundsdóttir skrifaði
    Gangi þér vel💚
    2
  • Nanna Ingibjörg Jónsdóttir skrifaði
    Það þarf vissulega að búa til teymi af sérfræðingum sem leiðbeinir fólki eftir einhverfugreiningu eða jafnvel þegar grunur leikur á einhverfu. Það þarf einnig að gilda um einstaklingana óháð aldri þeirra. Ég greinist einhverf kona þegar ég er 64 ára. Það var sannarlega mikill munur fyrir mig að öðlast loksins skilning á sjálfri mér, nokkuð sem er hverjum manni nauðsynlegt. Það væri hins vegar mikill munur að fá þá leiðbeiningu sérfræðings eftir greininguna og það er janf mikil þörf á því hvort sem maður er ugur eða kominn yfir miðjan aldur. Oft hef ég eftir greininguna undrað mig á því hvernig í ósköponum ég hef komist af. Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir ég þakka þér fyrir orði þín hér að ofan.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ein í heiminum

„Við erum huldufólkið í kerfinu“
ViðtalEin í heiminum

„Við erum huldu­fólkið í kerf­inu“

Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dóttir segir að ein­hverft fólk sé frá blautu barns­beini gaslýst dag­lega því að stöðugt sé efast um upp­lifun þess. Það leiði af sér flóknar and­legar og lík­am­legar áskor­anir en stuðn­ingur við full­orðið ein­hverft fólk sé nán­ast eng­inn. „Við erum huldu­fólkið í kerf­inu,“ segir Guðlaug sem glímir nú við ein­hverfukulnun í annað sinn á nokkrum árum.
Einhverf án geðheilbrigðisþjónustu: „Háalvarlegt mál“
ÚttektEin í heiminum

Einhverf án geð­heil­brigð­is­þjón­ustu: „Háal­var­legt mál“

Stöðug glíma við sam­fé­lag sem gerir ekki ráð fyrir ein­hverfu fólki getur leitt til alvar­legra veik­inda. Þetta segja við­mæl­endur Stund­ar­innar sem öll voru full­orðin þegar þau voru greind ein­hverf. Fram­kvæmda­stjóri Ein­hverfu­sam­tak­anna segir þau til­heyra hópi sem fái ekki lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu sem sé lög­brot. Sænsk rann­sókn leiddi í ljós að ein­hverfir lifi að með­al­tali 16 árum skemur en fólk sem ekki er ein­hverft. „Staðan er háal­var­leg,“ segir sál­fræð­ingur sem hefur sér­hæft sig í ein­hverfu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár