808. spurningaþraut: Beyoncé og Louise Penny — Konur á barmi taugaáfalls?

808. spurningaþraut: Beyoncé og Louise Penny — Konur á barmi taugaáfalls?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er þessi staffíruga fjöl­skylda nefnd? Enskt heiti dugar vel.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða þjóð lof­aði á dög­unum að tak­marka höfr­unga­dráp við 500 dýr á ári?

2.  Hvaða skaga lögðu Rússar undir sig árið 2014?

3.  Hvað heitir stærsta borgin á þeim skaga?

4.  Mikill iðn­aður er upp ris­inn í Banda­ríkj­unum og snýst um fram­leiðslu á ofur­hetju­myndum sem margar tengj­ast inn­byrðis. Ofur­hetj­urnar eru fjöl­margar en ein þeirra er byggð á nor­rænum guði. Hvaða guði?

5.  En hvað heitir spænski kvik­mynda­leik­stjór­inn sem hefur m.a. gert mynd­irnar Konur á barmi tauga­á­falls, Allt um móður mína og Volver?

6.  Klettur einn rís úr hafi 700 kíló­metra suð­suð­austur af Íslandi, 300 kíló­metra frá næstu skosku eyj­unni og rúma 400 kíló­metra frá ströndum Írlands. Hvað kall­ast klettur þessi?

7.  „Öxin og jörðin geyma þá best,“ var sagt um feðga þrjá. Hverjir voru þeir?

8.  Beyoncé heitir ein allra mesta stjarna vorra tíma. Hún er fædd í Banda­ríkj­unum en í hvaða ríki?

9.  Hvaða dag hófst inn­rás Þjóð­verja í Pólland árið 1939?

10.  Louise Penny heitir kanadískur reyfara­höf­undur sem gaf árið 2005 út bók um lög­reglu­varð­stjór­ann Armand Gamache sem leysti erfið saka­mál í Québec. Nú er brátt vænt­an­leg 17. bókin um Gamache og þykja bæk­urnar bæði vel skrif­aðar og skemmti­legar. Í fyrra gaf Penny hins vegar líka út spennu­sög­una State of Terror sem ger­ist í stjórn­kerfi Banda­ríkj­anna og fjallar um hryðju­verkaógn. Annar höf­undur skrif­aði þessa bók með Penny. Hver er sá höf­undur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fær­ey­ingar.

2.  Krím.

3.  Seva­stopol.

4.  Þór.

5.  Almodovar.

6.  Rockall.

7.  Jón Arason biskup og syni hans.

8.  Texas.

9.  1. sept­em­ber.

10.  Hillary Clinton.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru sögu­hetj­urnar í Incredibles.

Á neðri mynd­inni er Sveindís Jane.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár