Þrír skandalar sem leiddu til falls Borisar Johnson

Breski forsætis­ráðherrann Boris Johnson virðist fallinn nú þegar metfjöldi ráðherra hafa sagt af sér í mótmæla­skyni við leið­togann. Eftir hvern skandalinn á eftir öðrum virðist mælirinn loks fullur hjá þing­mönnum Íhalds­flokksins.

Búið spil
Búið spil Boris Johnson er á leið úr Downingstræti 10. Mynd: The Yomiuri Shimbun/AFP

Breski forsætis­ráðherrann Boris Johnson er sagður ætla að segja af sér sem formaður Íhalds­flokksins í dag og sem forsætis­ráðherra í haust, þegar arftaki hans hjá flokknum er fundinn. Flóðgátt afsagna úr ríkis­stjórn hans opnaðist þegar tveir hátt settir ráðherrar, fjármála­ráðherrann Rishi Sunak og heilbrigðis­ráðherrann Sajid Javid, sögðu af sér í fyrra­kvöld. Síðan hafa 28 ráðherrar sagt af sér auk fjölda annars lykil­fólks úr flokki forsætis­ráðherrans. 

En hvernig fór Boris frá því að leiða Íhalds­flokkinn til síns stærsta kosninga­sigurs síðan á tímum Margaretar Thatcher til þess að vera knúinn til afsagnar af eigin ráðherrum? Skandalar hafa litað forsætis­ráðherratíð hans síðan hann sigraði þing­kosningarnar 2019. Sá síðasti virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Þó málin hafa verið mörg virðast þrjú þeirra vera lykillinn að falli Borisar. 

1 Lobbíismi Owens Paterson

Sagði af sérPaterson end­aði á að segja sjálfur af sér þing­mennsku.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár