Galnar útlitskröfur í ameríska poppheiminum

Klara Elí­as­dóttir tón­list­ar­kona segir að útlits­kröfur sem gerðar voru til hennar þegar frægð­ar­sól hljóm­sveit­ar­innar The Charlies reis sem hæst í Banda­ríkj­unum hafi verið galnar. Þær hafi valdið henni mik­illi van­líðan og hún hafi verið mörg ár að ná fyrri styrk. Hún seg­ist ást­fangin af Íslandi eftir að hafa búið í 11 ár í Banda­ríkj­unum og er afar stolt af því að vera önnur konan í sög­unni til að semja þjóð­há­tíð­ar­lag en samin hafa verið lög sér­stak­lega fyrir þjóð­há­tíð í Eyjum í 89 ár.

Galnar útlitskröfur í ameríska poppheiminum

„Þetta hafa alltaf verið karlar þannig að við þurfum bara að vera hávær­ari og það þarf að taka svona ákvarð­anir eins og þjóð­há­tíð­ar­nefnd er að taka,“ segir Klara Elí­as­dóttir tón­list­ar­kona í þætt­inum Eigin konur. Hún seg­ist líta svo á að þjóð­há­tíð­ar­lagið sé hennar inn­legg í jafn­rétt­isum­ræðu síð­ustu ára. 

Það var árið 1933 sem fyrsta þjóð­há­tíð­ar­lagið var samið. Síðan þá hefur verið samið eitt lag á ári. Þau eru því orðin 89 tals­ins en aðeins tvö eftir konur. Ragn­hildur Gísla­dóttir var fyrsta konan til að semja þjóð­há­tíð­ar­lag, það var árið 2017. Og nú er það lagið Eyjanótt sem Klara semur ásamt Ölmu Guð­munds­dóttur sem var með henni í hljóm­sveit­unum Nylon og The Charlies. Klara seg­ist strax hafa verið með skýra hug­mynd um hvernig hún vildi að lagið yrði og að þegar laga­höf­undur sé með sterka teng­ingu við lagið í upp­hafi verði ferlið ein­fald­ara og skemmti­legra. „Þegar maður er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár