797. spurningaþraut: Konur í NATO, innrás Frakka á England og hæð Heklu

797. spurningaþraut: Konur í NATO, innrás Frakka á England og hæð Heklu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi eyja?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var sá hæst­setti sem þurfti að segja af sér vegna Watergate-hneyksl­is­ins?

2.  En hvers vegna nefn­ist Watergate-hneykslið Watergate-hneyksli?

3.  Á NATO-fund­inum sem lauk á dög­unum mættu fjórar konur sem leið­togar ríkja sinna. Ein þeirra var vita­skuld Katrín Jak­obs­dóttir héðan frá Íslandi en hvaðan komu hinar kon­urnar þrjár? Þið þurfið að hafa tvær réttar til að fá eitt stig.

4.  Í hvaða ríki heitir höf­uð­borgin Manila?

5.  1848 kom út svo­lítið kver í London sem byrj­aði svona: „Vofa gengur nú ljósum logum um Evrópu ...“ Hvaða vofa?

6.  Í hvaða landi er Macchu Picchu?

7.  Árið 1830 gerðu Frakkar inn­rás í til­tekið land og lögðu það undir með grimmi­legum hern­aði. Þeir réðu ríkjum þar í landi í 130 ár og varð við­skiln­aður þeirra með ósköpum. Hvaða land var þetta?

8.  Árið 1066 gerðu Frakkar líka inn­rás í annað land. Það var England og þeir náðu Englandi með einni orr­ustu. Til að særa ekki til­finn­ingar Eng­lend­ingar er þó látið svo heita að þarna hafi ekki verið Frakkar að verki, heldur ... hverjir?

9.  Og orr­ustan sem allt snýst hér um, hvar var hún háð?

10.  Hversu há er Hekla: 1.088 metrar — 1.488 metrar — 1.888 metar — eða 2.288 metrar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi ungi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Nixon Banda­ríkja­for­seti.

2.  Vegna þess að menn á vegu Nixons frömdu inn­brot í Watergate-bygg­ing­unni.

3.  Konurnar þrjár eru for­sæt­is­ráð­herrar í Danmörku, Eist­landi og Litháen. Ég ítreka að tvö lönd þarf til að fá stig.

4.  Fil­ipps­eyjum.

5.  „... vofa komm­ún­ism­ans.“

6.  Perú.

7.  Alsír.

8.  Nor­mannar.

9.  Hastings.

10.  Hekla er 1.488 metra há.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Eyjan heitir Baffins­land og er milli meg­in­lands Kanada og Græn­lands.

Karlinn ungi heitir Erling Haaland og er fót­bolta­kappi nokkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár