Dómarar mótmæla endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra launa

Ákvörðun fjármála­ráðherra um að krefja 260 einstaklinga um endur­greiðslu á ofgreiddum launum síðast­lið­inna þriggja ára er harðlega mótmælt af dómurum. „Aðgerðirnar fela í sér atlögu framkvæmda­valdsins að dóms­valdinu sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskri réttar­sögu,“ segir í ályktun Dómara­félags Íslands.

Mótmæla
Mótmæla Dómarar mót­mæla ákvörðun ráð­herra um að krefj­ast end­ur­greiðslu ofrukk­unar launa síð­ustu þriggja ára.

Ákvörðun Bjarna Benedikts­sonar fjármála­ráðherra um að gera kröfu um endur­greiðslu ofgreiddra launa síðustu þriggja ára er í andstöðu við gildandi lög um launakjör dómara, að mati dómara. „Þessi aðgerð setur alla sem reka mál á hendur ríkinu í þá stöðu að eiga von á því að framkvæmda­valdið geti lækkað laun dómara eftir eigin geðþótta,“ segir Kjartan Bjarni Björgvinsson, dómari og formaður Dómara­félags Íslands. 

Dómara­félagið hefur sent frá sér yfir­lýsingu vegna ákvörðunar ráðherrans sem kynnt var fyrr í dag á vef Fjársýslu ríkisins. Þar kom fram að undan­farin þrjú ár hafa laun 260 kjörinna fulltrúa og embættis­manna, þar á meðal dóamra, verið ofgreidd um samtals 105 milljónir króna. Stofnunin, að undirlagi ráðuneytisins, ætlar að krefjast endur­greiðslu á næstu tólf mánuðum.

Kjartan Bjarni segir á Facebook-síðu sinni að þetta hafi alvarlegar afleiðingar í för með sér. „Þar með eru borg­ararnir sviptir réttlátri máls­meðferð og því að geta borið mál …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það mun kosta tugi milljóna ef dómarar fara í mál og setja þarf dómara í stað þeirra sem fyrir eru, jafnvel á öllum réttarstigum.
    0
  • Þóra Karls skrifaði
    Er nú nema von að dómararnir séu undrandi og svekktir? Hvað kom fyrir BjBen? - Hann er nú ekki vanur að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur?
    1
  • John Sigurdsson skrifaði
    Það versta við þetta er að dómarar skuli gera sig seka um svona hrikalegt dómgreindarleysi.
    2
  • Jack Danielsson skrifaði
    Það má ekki gera dómurum það að endurgreiða ofgreidd laun en öryrkjar og aldraðir mega lifa við það að þurfa að greiða ríkinu til baka fái þeir fáeinum krónum of mikið og svoleiðis hefur það verið síðan 2009 þegar skerðingarnar voru settar á.
    Vill ekki einhver benda þessu snjókorni að hringja í 113?
    6
  • JGG
    Jóhanna Gréta Guðmundsdóttir skrifaði
    Þá munar ekkert um að endurgreiða ofgreidd laun, við öryrkjarnir höfum þurft að gera annað eins. En sumir sem rændu tryggingastofnun á sínum tíma skulda enn ránið...þeir ætla kannski að ræna þessari ofgreiðslu og réttlæta það með þessari þvælu um að aðgerðirnar feli í sér aðför að dómsvaldinu....þetta er ekki með öllu mjalla af græðgi þetta lið.
    4
    • Pálmi Helgi Björnsson skrifaði
      Ég er nú bara alveg hlessa yfir þessari hvörtun hjá dómarafélaginu Hvað meiga öryrkjar og ellilífeyrisþegar segja. Þessir dómara ættu að skammast sín ef að þeir hafa einkverja sóma tilfinningu.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár