Skip Vinnslustöðvarinnar selt til ónefnds fyrirtækis í Hong Kong

Vinnslu­stöðin vill ekki gefa upp nafn fyr­ir­tæk­is­ins sem kaupir Sighvat Bjarna­son.

Skip Vinnslustöðvarinnar selt til ónefnds fyrirtækis í Hong Kong

Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum hefur selt eitt af skipum sínum, nóta- og tog­veiði­skipið Sighvat Bjarna­son, til ónefnds fyr­ir­tækis í Hong Kong. Þetta stað­festir Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, í tölvu­pósti. 

Vinnslu­stöðin greindi sjálf frá sölu skips­ins á heima­síðu sinni, en sagði þá ekki frá því hvaða fyr­ir­tæki keypti skipið né frá hvaða landi það er. Salan á Sighvati Bjarna­syni var til­kynnt á sama tíma og kaup Vinnslu­stöðv­ar­innar á upp­sjáv­ar­skip­inu Garðari af norskri útgerð. 

„Fyr­ir­tækið er frá Hong Kong eins og ég sagði og er búið að greiða kaup­verðið, sem skiptir okkur mestu máli.“
Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son

Sig­ur­geir Brynjar, eða Binni eins og hann er yfir­leitt kall­aður, segir að Vinnslu­stöðin vilji ekki greina frá nafni fyr­ir­tæk­is­ins í Hong Kong fyrr en full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins hafa gefið leyfi fyrir því. Hann segir að aðal­málið fyrir Vinnslu­stöð­ina sé að kaup­verð skips­ins hafi nú …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár