774. spurningaþraut: Að vinna fyrir óvin sinn ... hvar?

Fyrri auka­spurning:

Hvað skyldi þetta eldfjall heita? Myndin er tekin skömmu eftir eldgos.

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvaða jurt heitir eftir latneska orðinu yfir úlf?

2.  Fyrir 65 árum var gerð fræg kvikmynd þar sem breskir stríðs­fangar eru neyddir til að smíða brú yfir fljót eitt, og leiðtogi fanganna tekur það svo hátíðlega að hann leggur allan metnað sinn í verkið, þó hann sé í rauninni að liðsinna óvinunum með verkinu. Myndin heitir Brúin yfir ... hvaða fljót?

3.  Hverjir eru það sem hafa Bretana í haldi við þessa brúar­smíði?

4.  Hvað hétu helstu byggðir norrænna manna á Grænlandi á miðöldum?

5.  Til hvaða Evrópu­ríkis telst eyjan Hydra?

6.  Kanadískur tónlistar­maður hélt til á eyjunni á örlaga­ríku skeiði ævinnar og kynntist þar konunni Marianne sem hann kvaddi síðan í frægu lagi. Hvað hét þessi tónlistar­maður?

7.  Alexandra Briem situr í borgar­stjórn Reykja­víkur fyrir ... hverja?

8.  En hvar er Íris Róberts­dóttir bæjar­stjóri?

9.  Manchester City varð á dögunum Englands­meistari í fótbolta karla. Rauðbirkinn Belgi er einhver allra besti maður liðsins. Hvað heitir hann?  

10.  Hvað er narsissisti?

***

Seinni auka­spurning:

Hér sést hluti af plakati nýlegrar bíómyndar. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Lúpína.

2.  Kwai.

3.  Japanir.

4.  Eystribyggð og Vestribyggð.

5.  Grikk­lands.

6.  Leonard Cohen.

7.  Pírata.

8.  Vestmanna­eyjum.

9.  De Bruyne.

10.  Einstaklingur svo sjálf­hverfur að það er komið út í sjúklegar öfgar.

***

Svör við auka­spurningum:

Á myndinni að ofan er fjallið St.Helens í Banda­ríkjunum sem gaus frægu sprengi­gosi árið 1980.

Á neðri myndinni er hluti af plakati myndarinnar Joker. Svona leit það út í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár