772. spurningaþraut: Nú er hægt að vinna sér inn sérstakt Þorfinns-Ómarssonar-stig!

772. spurningaþraut: Nú er hægt að vinna sér inn sérstakt Þorfinns-Ómarssonar-stig!

Fyrri auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan sýnir leikkonu í kvik­mynd sem frum­sýnd var í vor og vakti heil­mikla athygli. Hver er leik­konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þá er eðli­legt að spyrja í fram­haldi af því, hvað heitir kvik­myndin? Og þið megið auk­in­heldur sæma ykkur sér­stöku Þorfinns-Ómars­sonar-stigi ef þið vitið hvað leik­stjór­inn heitir!

2.  Ný sótt virð­ist nú vera komin á kreik, kennd við ákveðið dýr. Hvaða dýr?

3.  Hversu mörg tíma­belti hald­iði að séu í Rúss­landi? Hér má muna einu, til eða frá.

4.  Í Rúss­landi er stöðu­vatn sem fyrrum var eitt þeirra stærri í heimi, og þótti ægi­fag­urt, en er nú hér um bil þornað upp vegna þess að ám, sem féllu í það, hefur verið veitt sem áveitum út á eyði­merkur. Hvað heitir þetta vatn, eða leifar þess? 

5.  Í hvaða Suður-Amer­íku­landi er hæsta höf­uð­borg heims­ins?

6.  Og hvað ætli hún heiti þá?

7.  Hvað heitir full­trúi Við­reisnar í borg­ar­stjórn Reykja­víkur?

8.  Hver sendi frá sér skáld­sög­urnar Tíma­þjófinn og Jójó — ásamt öðrum?

9.  Hvíta húsið í Washington í Banda­ríkj­unum er aðsetur ... hvers?

10.  Í ákveð­inni evr­ópskri höf­uð­borg er líka svo­nefnt Hvíta hús þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann og ýmis stjórn­sýsla hefur aðsetur. Í hvaða borg er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi ungi piltur? Hann hefur nú reyndar elst svo­lítið frá því þessi mynd var tekin.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  The Northman. Leik­stjór­inn heitir Eggers.

2.  Apa.

3.  Þau eru 11, svo rétt er 10-12.

4.  Aral.

5.  Bólivíu.

6.  La Paz.

7.  Þórdís Lóa.

8.  Steinunn Sig­urð­ar­dóttir.

9.  For­set­inn.

10.  Moskvu.

***

Svör auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Björk.

Á neðri mynd­inni er Cristiano Ronaldo.

Hér er nýrri mynd af CR7.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár