„Nakið fólk út um allt og það er verið að góla og öskra“

Sú starf­semi sem rekin er af and­legum söfn­uði sem kallar sig Sól­setrið, undir Esjurótum, er barna­vernd­ar­mál segir Tanya Pollock í nýjum þætti af Eigin konur. Hún segir að mikið marka­leysi sé í við­burðum safn­að­ar­ins og fólk sé sett undir mik­inn þrýst­ing til að taka þátt í athöfnum sem það síðan upp­lifir sem brot gegn sér. Sjálf hefur hún upp­lifað það sem hún telur hót­anir frá fólki sem teng­ist söfn­uð­inum eftir að hafa vakið athygli á því sem hún telur óeðli­legt og jafn­vel hættu­legt í starf­semi safn­að­ar­ins, sem hún líkir við költ.

„Nakið fólk út um allt og það er verið að góla og öskra“
Öfgafull og hættu­leg starf­semi Starf­semin sem haldið er úti af Sól­setr­inu er hættu­leg fólki sem þangað leitar, að mati Tönyu.

Tanya Pollock heil­ari upp­lifði hót­anir frá fólki sem teng­ist svoköll­uðu Sólsetri, þar sem hópur fólks rekur það sem þau kalla and­legt sam­fé­lag undir Esjurótum. Þær hót­anir bár­ust henni eftir að Tanya vakti athygli á við­burði sem halda átti á staðnum, Skraut­hólum, í apríl síð­ast­liðnum. Var Tanya sökuð um að vera í ein­hvers konar her­ferð gegn hópnum sem um ræðir. „Orð þín og gjörðir munu hafa afleið­ingar,“ var meðal skila­boða sem Tanya fékk send frá fólki sem teng­ist Sól­set­urs­hópnum. Þá lýsti for­svars­kona hóps­ins því að sögn Tanyu að hún hyggð­ist mæta heim til hennar. Óljóst var í hvaða erinda­gjörðum það átti að vera.

Tanya er gestur Eddu Falak í þætti hennar, Eigin konur. Tanya hefur upp á síðkastið verið fram­ar­lega í hópi þeirra sem hafa opnað á umræðu í um ofbeldi sem hún segir beitt í því sem má nefna and­lega heim­inum á Íslandi, það er að segja þeim heimi þar sem óhefð­bundnar heil­un­ar­að­ferðir og sjálfs­hjálp er stunduð, í sumum til­vikum með hjálp örvandi eða skyn­breyt­andi efna. Hún er mjög gagn­rýnin á það sem við­gengst í þessum efnum og segir marga, jafn­vel meiri­hluta, þeirra sem leiði slíkar með­ferðir hvergi nærri hafa til þess þekk­ingu, tök eða getu. Þannig beri starf­semi Sól­set­urs­ins ýmis ein­kenni költs, miðað við það sem hún þekki þar til. „Ég er byrjuð að heyra orðið költ oftar og oftar,“ segir Tanya og vísar til lýs­inga fólks sem hún hefur rætt við og sumt hvert hefur sótt sér heilun eða aðstoða hjá henni eftir erf­iða reynslu af hinum and­lega söfn­uði undir Esjurótum.

Börn velkomin á erótískan viðburð

Við­burð­ur­inn sem varð til þess að starf­semi hóps­ins komst í kast­ljós fjöl­miðla og almenn­ings fór fram 23. apríl. Það sem vakti athygli, og almenna hneykslan fólks, var að í aug­lýs­ingu á Facebook fyrir við­burð­inn var til­greint að for­eldrar gætu tekið börn sín með, þar sem allir myndu koma fram sem eitt sam­fé­lag og „deila tungu­máli ást­ar­innar á alla mögu­lega vegu, ekki bara róm­an­tíska ást. Með hug­leiðslu dansi í bland við kakóat­höfn og hið heilaga meðal, munum við tengj­ast á ný við und­ir­með­vit­und okkar og upp­götva leynd mynstur tengsla.“

„Ég er byrjuð að heyra orðið költ oftar og oftar“

Þótti fólki ljóst að þarna væri verið að tala um neyslu á ofskynj­un­ar­sveppum. Þá var til­greint að fara ætti í gegnum hin mörgu svið ást­ar­innar, þar á meðal Eros, sem stæði fyrir kyn­ferð­is­legri, ástríðu­fullri ást. Þá var dregið fram að önnur kvenn­anna sem að við­burð­inum stóð, hin lit­háíska Teja Doro, hefði verið gagn­rýnd fyrir skrif sín um barna­girnd tón­list­ar­manns­ins Michaels Jackson, þar sem hún bar brigður á að barna­girnd væri for­kast­an­leg.

Tanya segir að henni hafi verið veru­lega brugðið þegar hún sá aug­lýs­ing­una fyrir umræddan við­burð, um eró­tík og nánd og það til­greint sér­stak­lega að börn væru þar vel­komin. „Þegar ég sé þetta fyrst var ég bara í sjokki sjálf. Er þetta svona rosa­lega kræft, og er þetta allt í einu talið bara eðli­legt hjá þeim?“

Tanya hóf því að deila þessum upp­lýs­ingum og var­aði við því sem hún taldi að gengi þarna á í færslum á Facebook. Við­burð­ur­inn og starf­semi Sól­set­urs varð við það að umfjöll­un­ar­efni fjöl­miðla og hófst þá áreiti frá fólki sem kall­aði sig hluta af fjöl­skyld­unni á Sólsetri, að sögn Tönyu. Var hún sögð, með gagn­rýni sinni, vera á móti frelsi fólks og sömu­leiðis sögð í ein­hvers konar her­ferð gegn söfn­uð­inum. „Orð þín og gjörðir munu hafa afleið­ingar,“ var efni einna skila­boð­anna sem Tönyu bár­ust.

Öfgafullir viðburðir

Tanya hafði áður verið í tengslum við söfn­uð­inn á Skraut­hólum, en hefur að fullu dregið sig út úr þeim tengslum. Tanya segir sað hún hafi verið í sjálfs­vinnu þegar hún leit­aði til söfn­uð­ar­ins. „Fyrsta sem mætir manni er bara opið faðm­lag, mikil ást og öll réttu orðin notuð,“ segir hún og í því ljósi hafi hún treyst for­stöðu­kon­unni, Lindu Mjöll Stef­áns­dóttur.  „En svo þegar maður fer að tala um mörk, eða eitt­hvað sem er ekki í lagi, þá breyt­ist tónn­inn.“

„Áður en ég veit af að þá er ein­hver maður nak­inn þarna“

Tanya hefur því góða inn­sýn í það sem er þar í gangi. Spurð hvað það sé segir hún að það sé ýmis konar and­lega vinna. „Það er verið að fara í alls konar skugga­vinnur og ýta á fólk að opna sig.“ Tanya segir einnig að sumir við­burðir á vegum Sól­set­urs séu öfga­fyllri en búast megi við. „Ég fór þangað til þess að búa til hand­gerða trommu en allt í einu var sett á rave techno tón­list, allir áttu að fara að dansa og áður en ég veit af að þá er ein­hver maður nak­inn þarna“ segir Tanya og bætir við: „Ég er ekki tepra en ég vil samt fá að vita út í hvað ég er að fara.“

Tanya gagn­rýnir vinnu­brögð söfn­uð­ar­ins og þeirra sem halda nám­skeið sem þessi. Þá eru kakóat­hafnir algengar, en um er að ræða hreint kakó sem á að hafa örvandi áhrif. „Þar er verið að blanda sveppum við kakóið og verið að fara með þetta á óábyrgan hátt,“ segir Tanya í við­tal­inu við Eddu. Algengt sé að þeir sem taki þátt í við­burð­unum viti ekki fylli­lega hvað það sé að fara út í.

Starfsemin barnaverndarmál að mati Tönyu

Sjálf hélt Tanya athafnir á Sól­setr­inu. Sú síð­asta, áður en hún skar á tengslin, var kakóat­höfn. „Þetta var seint um kvöld og ég bjóst ekki við að það yrði barn þarna. Ég býð ekki börnum í það sem ég er að gera. Mér brá við að sjá börn á staðnum. Mér fannst klukkan vera margt, það var vitað mál að ég var að fara í anda vinnu og þetta er ekki fyrir börn.“ Barnið var að sögn Tanyu 8 til 9 ára. Barnið hafi sjálft drukkið kakó á þess­ari athöfn og það telur Tanya ekki í lagi, því meira sem hún kynni sér kakó­drykkju því meiri efa­semdir hafi hún um það.

Þá segir Tanya að barn á ung­lings­aldri búi á staðnum. Það að svo sé, og að börn séu tekin með á við­burði, séu jafn­vel þátt­tak­endur eða gangi sjálfala á svæð­inu um kvöld og nætur meðan að for­eldrar þeirra taki jafn­vel örvandi efni eða hagi sér með ein­hverjum þeim hætti sem ekki sé börnum bjóð­andi ætti að vera barna­vernd­ar­mál að mati Tönyu. Það sem fram fari á Skraut­hólum sé ekk­ert fyrir börn, „nakið fólk út um allt og það er verið að góla og öskra.“

Töluverð teng­ing er, að sögn Tönyu, við kyn­líf í starf­semi Sól­set­urs­ins. Þannig segir hún að maður hafi flutt á Sólsetur rétt fyrir Covid. „Hann telur sig svo mik­inn kyn­lífs­heil­ara og gúru, og þá fara að koma fleiri og fleiri kyn­lífs­at­hafnir inn í þetta. Þetta fer að vera menn­ingin, fer að vera and­inn í kringum þetta setur, þessa fjöl­skyldu innan gæsalappa.“

Vill styðja við þolendur

Starf­semin ein­kenn­ist að sögn Tönyu af marka­leysi og ófag­mennsku. Í and­lega heim­inn, og meðal ann­ars á Skraut­hóla, sæki fólk, sem vilji vinna úr sínum til­finn­ingum og sé kannski marka­laust fyrir, sökum þess sem gengið hefur á í lífi þess. Þetta sama fólk upp­lifi mik­inn þrýst­ing um að taka þátt í öllu, opna sig um sárar lífs­reynslur, taka þátt í kyn­ferð­is­legum athöfnum og láta snerta sig með óvið­eig­andi hætti, til að mynda. Í raun sé um ofbeldi að ræða og fólk sé þolendur þess ofbeldis en upp­lifi mikla skömm fyrir að hafa látið undan þrýst­ingnum. „Maður er kannski búin að borga sig inná við­burð sem fór algjör­lega úr bönd­unum og þá líður manni eins og maður hafi boðið uppá þetta.“

Tönyu þykir það vera á hennar ábyrgð að vekja athygli á því hvernig er í pott­inn búið í þessum efnum og að styðja við þolendur.„Ég og móðir mín, hluti af fjöl­skyld­unni, erum búnar að vera að taka til eftir það sem er að ger­ast þarna undir Esjurótum eftir Covid-tím­ann. Þetta fór að vera mjög slæmt í Covid. Það fór að aukast svo mikið og þá fór fólk að hafa sam­band. Þetta er miklu stærra en lít­ill hópur sem er að lifa frjálsu lífi sem vill vera í friði,“ segir hún. „Það er mikil ábyrgð sem felst í svona vinnu og þegar þú ert farin að rukka fé, angra nágranna þína, blanda börnum og fólki saman þegar það á ekki við. Ef maður er ekki að taka til­lit til ein­stak­lings­ins og þeirra gilda sem við viljum hafa í sam­fé­lag­inu þá finnst mér þessi saga um hóp sem vill bara lifa frjálsu lífi bara hluti af gas­lýs­ing­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kolbrún Karldsdóttir skrifaði
    Ég kannast ágætlega við þennan stað, þessar lýsingar bæði á staðarhaldara og öðru er eitthvað sem ég kannast ekki við! Við sjáum heiminn ekki eins og heimurinn er heldur eins og við erum sjálf, ég horfi á manneskju vera að lýsa upplifun og aðstæðum sem litast af innræti og hugmyndafræði viðkomandi. Sumt sem fer fram þarna kallar ekki á mig, þá kýs ég að taka ekki þátt. Sumt er ýkt öðru sleppt.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár