Vill að rússneski sendiherrann „andskotist héðan burtu“

Jersey, banda­rískur her­maður nýkom­inn til Íslands frá Úkraínu, hyggst sitja fyrir utan rúss­neska sendi­ráðið þar til hann nær tali af sendi­herr­anum eða lög­reglan kemur og fjar­lægir hann. Hann hyggst snúa aftur til Úkraínu og berj­ast með heima­mönnum gegn inn­rás­ar­hernum.

Vill að rússneski sendiherrann „andskotist héðan burtu“
Mótmælir stríð­inu Jersey bíður eftir því að ná tali af rúss­neska sendi­herr­anum. Á hand­ar­bökum hans má sjá húð­flúr, á hægri hend­inni er úkra­ínskur kross og á vinstri hend­inni er merki and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar í Varsjá á dögum her­náms nas­ista í Heims­styrj­öld­inni síð­ari. Mynd: Freyr Rögnvaldsson

„Ég ætla að sitja hér fyrir utan sendi­ráðið og spila andrúss­nesk áróð­urs­lög og úkra­ínsk þjóð­lög þar til rúss­neski sendi­herr­ann kemur og ræðir við mig, eða lög­reglan kemur og fjar­lægir mig. Ef sendi­herr­ann kemur út ætla ég að segja honum kurt­eis­lega að and­skot­ast héðan í burtu.“

Þetta segir Jersey, banda­rískur her­maður sem nú mót­mælir stríðs­rekstri Rússa í Úkraínu fyrir utan rúss­neska sendi­ráðið á Túngötu. Jersey heitir raunar ekki Jersey, þessi 35 ára gamli Banda­ríkja­maður af pólskum ættum, vill ekki gefa upp sitt rétta nafn til að setja ekki fólk sér nákomið í hugs­an­lega hættu. Hann er í her­bún­ingi og innan undir honum í grænum stutt­erma­bol eins og þeim sem Volodomyr Zelensky úkra­ínu­for­seti hefur gert að ein­kenn­is­fatn­aði sínum. Hann ber stóran her­bak­poka sem á hefur verið skrif­aður texti and­ófslags gegn Rúss­neska hernum.

Jersey situr flötum beinum á gang­stétt­inni við sendi­ráðið og beinir síma sínum að sendi­ráðs­bygg­ing­unni. Úr sím­anum hljómar lagið með text­anum sem rit­aður er á bak­pok­ann.

„Ég kom með lyf frá Úkraínu sem ég þarf að koma til Úkra­ínu­manna í Keflavík“
Lyfin frá Kænu­garðiLyfin sem Jersey hefur með­ferðis fékk hann í Kænu­garði í Úkraínu og ætlar að koma þeim til Úkra­ínu­manna í Keflavík. Hann óskar eftir því að ein­hver verði sér að liði með það.

Spurður hvað hann sé að gera hér á landi svarar Jersey: „Ég var her­maður í Úkraínu. Ég kom til Íslands fyrir tveimur dögum. Ég kom með lyf frá Úkraínu sem ég þarf að koma til Úkra­ínu­manna í Keflavík. Ef ein­hver gæti orðið mér til aðstoðar með að koma lyfj­unum til þeirra myndi ég þiggja það með miklum þökkum. Þetta eru lyf frá Kænu­garði sem þau þurfa að fá og ég er hér fyrir framan rús­senska sendi­ráðið til að vekja athygli á mál­stað þeirra.“

Særðist í flugskeytaárás

Jersey segir að hann hafi komið til Úkraínu 7. mars síð­ast­lið­inn, frá Banda­ríkj­unum með við­komu í Póllandi. Hann hafi farið yfir landa­mærin til Lviv og þaðan til Yavoriv þar sem hann starf­aði með almanna­tengsla­deild Úkra­ínska hers­ins.

Jersey seg­ist hafa verið staddur í her­búðum í Yavoriv, aðeins viku eftir að hann kom til Úkraínu, þegar að flug­skeytum frá rúss­neska hernum var skotið á her­búð­irnar með þeim afleið­ingum að 35 manns lét­ust og á annað hund­rað særð­ust. Sjálfur særð­ist hann lít­il­lega. Þaðan hafi hann flúið út í skóg. Hann hafi farið yfir landa­mærin til Póllands en síðan farið aftur yfir til Úkraínu skömmu síðar. Þá hafi verk­efni hans orðið að aðstoða skæru­liða­hópa sem börð­ust við Rússa í nágrenni Kænu­garðs. Sá hópur hafi síðan tekið sér stöðu á Maidan torgi í miðri borg­inni og þangað hafi Jersey einnig fylgt þeim.

Það fór Jersey til Bucha. „Ég sá brunnar bygg­ingar, staði þar sem fólk var myrt með köldu blóði en voru umlukin í blóma­hafi. Það var gríð­ar­lega áhrifa­mikið.“

Seinna fór Jersey til Chernobyl með ítölsku kvik­mynda­liði. „Ég tók lít­inn sem engan þátt í bar­dögum sjálfur en ég veit um fólk sem það gerði. Ég varð líka vitni að hræði­legu fram­ferði Rússa, pynt­ingum og nauðg­unum, en líka heimsku þeirra þegar þeir grófu skot­grafir á Chernobylsvæðinu.“

Framferði Rússa ófyrirgefanlegt

Jersey dregur upp ýmsa muni sem hann tók með sér frá Úkraínu, notuð AK-47 skot­hylki og brot­inn, bleikan hár­kamb þar á meðal, auk útprent­aðrar orða­bókar frá ensku yfir á úkra­ínsku, sem hann kallar víg­stöðv­a­orða­bók. Kambinn segir Jersey að hann hafi fundið í Bucha, úkra­ínsku borg­inni þar sem greint hefur verið frá því að rúss­neskir her­menn hafi framið skelfi­lega stríðs­glæpi. Það sem hann hafi séð í Úkraínu sé ófyr­ir­gef­an­legt og því mót­mælir hann nú fyrir utan sendi­ráð Rússa hér í landi.

„Ég ætla að að vera hér þar til það ger­ist, eða lög­reglan kemur og fjar­lægir mig“

„Í stað­inn fyrir að eyða pen­ing­unum mínum í gist­ingu á gisti­húsi er ég að hugsa um að vera bara hér, þar til ég næ athygli rúss­neska sendi­herr­ans, og hann kemur og talar við mig. Þegar að það ger­ist ætla ég kurt­eis­lega að gera svo vel að segja af sér. Ég held að það væri við hæfi að hann and­skot­að­ist, kurt­eis­lega, út úr þess­ari bygg­ingu. Það er ömur­legt að hann sitji inni á þess­ari skrif­stofu á meðan að landar hans heyi árás­ar­stríð geng sak­lausu fólki, og hann þurfi enga ábyrgð að axla. Ég ætla að að vera hér þar til það ger­ist, eða lög­reglan kemur og fjar­lægir mig.“

Jersey hvetur alla Íslend­inga til að leggja bar­átt­unni í Úkraínu lið, þar þurfi fólk á öllu að halda, lyfjum, her­bún­aði, mat­vælum og aðstoð og aðföngum af hverju tagi. Spurður hvað hafi rekið hann til að fara frá Banda­ríkj­unum og til aðstoðar Úkra­ínu­mönnum segir Jersey að ástæðan sé bæði marg­þætt en líka ein­föld.

Pólskur upp­runi hans eigi þar stóran þátt; Pól­verjar og Úkra­ínu­menn séu bræðra­þjóðir þó þær hafi ekki alltaf setið á sárs höfði. Honum finn­ist það skylda sín að hjálpa bræðrum sínum í Úkraínu, jafn­vel óum­flýj­an­leg örlög. En það sé líka skylda alls rétt­hugs­andi fólks að leggja Úkra­ínu­mönnum lið í bar­áttu þeirra. „Þetta snýst um sam­stöðu, sam­stöðu milli Úkra­ínu­manna og Pólverja, enda er ég af pólskum ættum. Þetta snýst líka sam­stöðu heims­byggð­ar­innar, við eigum ekki að láta fram­ferði Rússa óátalið, ekki Evr­ópu­búar, Banda­ríkja­menn eða nokkuð siðað fólk. Ég fer aftur, það er klárt. Ég get ekki verið hér og notið lífs­ins í Reykja­vík á meðan Úkra­ínu­menn berj­ast heima fyrir.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jersey Fresh skrifaði
    As much as I'd love to spend every second of every hour in front of the Russian Ministry of Propaganda, apparently there's also a *lot* of useful stuff people to do here, particularly with the Red Cross and Artists4Ukraine movement, so I'll leave it to "Ambassador" Noskov to figure out my exact time table of when I'll be in front of his ugly neo-Soviet pleasure palace.
    1
  • SVS
    Stefán Valdemar Snævarr skrifaði
    Ætli maðurinn heiti ekki Jerzy, vanalegt pólskt nafn.
    0
    • Sigurður Þórarinsson skrifaði
      Ætli maðurinn hljóti ekki líka að vera stríðsglæpamaður hr. Snævarr... í ljósi þess að það kemur fram í þessari umfjöllun að hann hafi tekið þátt í ólögmætum hernaðaraðgerðum Bandaríkja gegn Írak???
      -1
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Það hlýtur að orka tvímælis er félagi í fjölmennustu, skipulögðustu og hættulegustu hryðjuverkasamtökum heims (lesist bandaríski herinn) skuli hingað kominn að krefjast þess að sendiherra Rússaveldis hér á landi hypji sig vegna þessara hörmulegu átaka þarna í Úkraínu. Nóg um það. Kv
    -7
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Rússneska sendiráðið er til að aðstoða Rússa sem eru hér allnokkrir. Þetta stríð er ekki þeim að kenna og það styttir ekki stríðið að refsa saklausum.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár