Samfylkingin mælist stærst bæði í könnun Maskínu sem framkvæmd var í gær og í dag og nýjum Þjóðarpúlsi Gallup sem RÚV greinir frá. Flokkurinn mælist með um 23 prósenta fylgi í báðum könnunum á meðan Sjálfstæðisflokkurinn mælist í kringum 21 prósent. Stuðningur við báða flokka dregst saman frá kosningunum 2018 en tala mætti um hrun á fylgi Sjálfstæðisflokksins sem fékk yfir 30 prósenta fylgi þá.
Talsverður samhljómur er á milli kannanana varðandi stöðu allra flokkanna.
Framsókn óumdeilanlega á flugi

Báðar kannanir sýna Framsóknarflokkinn í stórsókn; Maskína mælir flokkinn með 14,6 prósenta fylgi en Gallup öllu meira eða 17,5 prósent. Í könnun Gallup er það sagt duga flokknum til að fá fjóra fulltrúa kjörna, sem er einmitt fjórum fulltrúum meira en flokkurinn stóð …













































Athugasemdir