759. spurningaþraut: Tveir karlar sem dóu sama dag

Fyrri auka­spurning:

Hvar búa þessar góðu konur sem hér að ofan sjást?

***

Aðal­spurningar:

1.  Úr hvaða megin­jökli á Íslandi kemur Skafta­fellsjökull?

2.  Í mynni hvaða fjarðar er Brokey?

3.  Hvaða ár fengu íslenskar konur kosninga­rétt og kjörgengi?

4.  Hver hefur setið lengst allra samfellt í embætti forsætis­ráðherra á Íslandi? 

5.  Sá einstaklingur gegndi síðar á stjórn­málaferli sínum einu öðru ráðherra­embætti, sem var ...?

6.  Karlmaður nokkur dó 5. mars árið 1953. Hann varð mörgum harmdauði og þúsundir manna dóu í troðningi við útför hans. En í rauninni máttu landar hans og raunar öll heims­byggðin vera fegin að vera laus við hann. Hver var þetta?

7.  Sama dag dó reyndar líka heims­frægt tónskáld. Tónskáldið hafði samið fjölda frábærra verka, en er þó meðal almennings eflaust kunnast fyrir rúmlega hálftíma langt verk sem var í rauninni samið fyrir börn. Hvað hét þetta tónskáld?

8.  Eitt af leikritum William Shakespeares heitir Kaup­maðurinn í ... já, hvar hafðist hann við, þessi kaupmaður?

9.  Árið 2008 var frumsýnd kvikmynd þar sem Edward Norton lék ofurhetju nokkra og mæltist túlkun hans vel fyrir. Í næstu ofur­hetjumyndum tók Mark Ruffalo þó við hlut­verkinu og hefur nú leikið þessa ofur­sterku hetju í átta bíómyndum og von er á þeirri níundu. Hvaða ofurhetja er þetta?

10.  Á hvaða eyju er borgin Palermo?

***

Seinni auka­spurning:

Hvaða múrar eru þetta?

***

Svör við auka­spurningum:

1.  Vatna­jökli.

2.  Hvamms­firði.

3.  1915.

4.  Davíð Oddsson.

5.  Utan­ríkis­ráðherra­embættinu.

6.  Stalín.

7.  Prokofiev. Verkið er Pétur og úlfurinn.

8.  Feneyjum.

9.  Hulk.

10.  Sikiley.

***

Svör við auka­spurningum:

Konurnar á efri myndinni búa í Gallíu. Þær eru augljós­lega persónur í teiknimynda­sögunum um Asterix eða Ástrík.

Á neðri myndinni má sjá Kremlarmúra í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár