749. spurningaþraut: Í fyrsta — og síðasta — sinn er í boði sérstakt Kólumkilla-stig!

Fyrri auka­spurning:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hver lék Mad Max í þremur bíómyndum frá 1979 til 1985?

2.  Fræg söngkona lék aðal­kvenrulluna í þriðju myndinni, Mad Max Beyond Thunderdome. Hvað heitir hún?

3.  Lag sem söngkonan kvað í þeirri mynd varð afar vinsælt og heyrist jafnvel enn stöku sinnum í útvarpi. Hvað hét lagið?

4.  Hvað heitir vitinn á Seltjarnarnesi?

5.  Hvað heitir umsjónar­maður Smart­landsins á Mbl.is?

6.  Hvað heitir borgin þar sem sjónvarps­serían The Simpsons gerist?

7.  Árið 1966 hófst svokölluð menningar­bylting í landi einu. Henni var ætlað að snúa lands­mönnum á „rétta“ braut í samfélags­málum í víðum skilningi en hafði ómældar hörmungar í för með sér. Í hvaða landi varð þessi menningar­bylting?

8.  Hvaða tveir höfundar skrifuðu Kommúnista­ávarpið?

9.  Í frægri íslenskri skáldsögu segir frá því í fyrsta kafla að írskur særinga­maður eða munkur að nafni Kólumkilli hafi lagt bölvun á norræna menn sem hröktu írska munka burt frá landinu. Og sú bölvun lendir á jörð sögu­hetjunnar. Hvað heitir skáld­sagan?

10.  Og hver skrifaði hana?

Svo er hér ein auka­spurning sem gefur sérstakt Kólumkilla-stig. Hvaða víðfræga alþjóð­lega filmstjarna heitir Columcille að milli­nafni?

***

Seinni. auka­spurning:

Hvað er athuga­vert við þessa mynd af austan­verðu Miðjarðar­hafi?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Mel Gibson.

2.  Tina Turner.

3.  We Don't Need Another Hero.

4.  Gróttu­viti.

5.  Marta María.

6.  Springfield.

7.  Kína.

8.  Marx og Engels.

9.  Sjálfstætt fólk.

10.  Halldór Laxness.

Hin alþjóðleg filmstjarna er Mel Columcille Gibson.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Jacqueline Kennedy, síðar Onassis.

Á neðri myndinni hefur Kýpur verið þurrkuð út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár