744. spurningaþraut: Ein frá Noregi, einn sænskur, Dani bætist við, og kona finnsk

Fyrri auka­spurn­ing:

Hún vann gull­verð­laun í fim­leikum á ólymp­íu­leik­unum í Aþenu 2004, enda ansi flink. En núorðið er hún þekkt­ari fyrir annað en fim­leika. Hvað er það? Og þeir sem muna nafn hennar, þeir fá sér­stakt lár­við­ar­stig.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver voru hin svoköll­uðu atóm­skáld?

2.  Til hvaða ríkis telst Borg­und­ar­hólmur?

3.  Jack Reacher heitir harð­haus einn, aðal­kall­inn í langri röð af reyf­urum sem hver skrifar?

4.  Hvaða þétt­býl­is­staður er við Skjálf­anda? 

5.  Hverrar þjóðar var vís­inda­skáld­sagna­höf­und­ur­inn Jules Verne?

6.  Teresía Guð­munds­son fædd­ist í Noregi en flutt­ist hingað með íslenskum eig­in­manni. Árið 1946 var hún sett yfir ákveðna stofnun og er enn eina konan sem hefur stýrt þeirri stofnun hér á landi. Hvaða stofnun var það? 

7.  Svía nokkrum er svo lýst að hann hafi verið „mik­ill vexti og und­ar­legur í yfir­bragði, grá­eygur og opin­eygur, úlf­grár á hár­slit“. Hann var seinna sagður hafa haft „afskræmi­lega mikið [höfuð] og und­ar­lega stór­skorið“. Og hann þótti hinn fer­leg­asti í skap­inu líka. Hvað hét þessi Svíi?

8.  Dani einn hét hins vegar Bent Larsen og var hinn prúð­asti. Hvað fékkst hann við í líf­inu?

9.  Finnsk kona hét Tuulikki Pietilä og var teikn­ari og hönn­uður. Hún lést í hárri elli árið 2009. Þótt hún þyki fínn teikn­ari og hafi einnig unnið merki­legt starf við kennslu, þá er hún þó óneit­an­lega þekkt­ust fyrir að hafa orðið konu sinni fyr­ir­mynd að per­sónu í bók eða bókum sem sú síð­ar­nefnda skrif­aði. Persónan sem byggð er á Tuulikki Pietilä er fræg fyrir að ganga ævin­lega í hvít- og rauð­rönd­óttri peysu. Hvað heitir per­sónan?

10.  Hvað heitir eft­ir­lif­andi sonur Bidens núver­andi Banda­ríkja­for­seta að skírn­ar­nafni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita karl­arnir þrír á þess­ari mynd? Hafa verður öll nöfnin þrjú rétt til að fá stigið eina.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Íslensk skáld sem hófu að yrkja órímuð ljóð.

2.  Danmörk.

3.  Lee Child.

4.  Húsavík.

5.  Franskur.

6.  Veð­ur­stofan.

7.  Glámur.

8.  Hann var skák­meist­ari.

9.  Tikkatú úr sagna­heimi Tove Jansson um Múmínálf­ana.

Tikkatú

10.  Hunter.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni er nú, hvort sem henni líkar betur eða verr, þekkt­ust fyrir að vera (vænt­an­lega) kærasta og barns­móðir Pútins Rúss­lands­for­seta.

Og hún heitir Alina Kabaéva. Annað nafnið dugar til að fá lár­við­ar­stig.

Á neðri mynd eru Attlee, Truman og Stalín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár