Starfsfólk Bankasýslunnar fékk vínflöskur og flugeld frá ráðgjöfum

Starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins fengu vín­flöskur og flug­eld í gjafir frá aðilum tengdum fram­kvæmd útboða á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka. Þing­maður Pírata vill fá minn­is­blað frá stofn­un­inni um þessar gjafir.

Starfsfólk Bankasýslunnar fékk vínflöskur og flugeld frá ráðgjöfum
Gjafir Vín­flöskur og flug­eldar end­uðu hjá starfs­fólki Banka­sýsl­unnar vegna söl­unnar á Íslands­banka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ein­hverjir starfs­menn Banka­sýslu rík­is­ins fengu vín­flöskur frá aðilum sem tengj­ast útboðum rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka. 

„Við fengum ein­hverjar vín­flöskur og flug­eld, konfekt­kassa, en svo eigum við nátt­úru­lega hádeg­is­verði og kvöld­verði með ráð­gjöfum og svo fram­vegis, en það er ekk­ert annað,“ sagði Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, á opnum fundi fjár­laga­nefnd vegna sölu á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði. 

Formaður nefnd­ar­innar, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, hafði þá spurt um hvort stjórn eða starfs­menn hefðu nýtt sér eða þegið boð eða gjafir eða risnur eða eitt­hvað slíkt í kjöl­far eða aðdrag­anda beggja útboð­anna. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn svar­aði spurn­ing­unni líka en sagði: „Ég hef ekk­ert fengið.“

Eyjólfur Ármanns­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spurði nánar út í þessa kvöld­verði og vín­flöskur og sagði að dæmi væri um það í Noregi að gjafir sem þessar gerðu ein­stak­linga van­hæfa í útboði á stræt­is­vögnum þar í landi. Banka­sala væri mun stærra mál. Þess vegna vildi hann svör Banka­sýsl­unnar um hversu dýrar vín­flösk­urnar og mál­tíð­irnar hefðu verið.

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hafði þá þegar beðið um minn­is­blað um þessar gjafir og mál­tíðir. Og í þá fyr­ir­spurn vís­aði Jón Gunnar svo í svörum til Eyjólfs. „Ég skal bara senda þér minn­is­blaðið. Það er ekki málið,“ sagði hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu