Systurnar berjast fyrir bótunum

„Æskunni var rænt af okkur. Við höfum aldrei átt eðli­legt líf,“ segja syst­urnar Anna og Linda Kjart­ans­dætur, sem ólust upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi og stjúp­móður sem var dæmd fyrir að mis­þyrma þeim. Bóta­sjóður vildi ekki greiða út miska­bætur því brot föður þeirra voru framin erlendis og hefur ekki enn svarað kröfum vegna dóma sem féllu 2016 og 2019.

Systurnar berjast fyrir bótunum
Syst­urnar Linda er hér til vinstri á mynd­inni með Önnu systur sinni. Lands­réttur dæmdi föður þeirra í sjö ára fang­elsi og til að greiða Önnu 3,5 millj­ónir í miska­bætur og Lindu 3 millj­ónir. Bóta­sjóður hafn­aði kröfu systr­anna vegna þess að faðir þeirra framdi brotin erlendis. Mynd: Heiða Helgadóttir

Arnar Kormákur Frið­riks­son lög­maður skoðar mögu­leik­ann á að stefna rík­inu fyrir hönd systr­anna Önnu Gílaphon Kjart­ans­dóttur og Lindu Biu Kjart­ans­dóttur. Fyrst neit­aði bóta­sjóður að greiða út miska­bætur vegna þess að kyn­ferð­is­brot föður þeirra voru framin erlendis. Síðan hætti hann að svara. Syst­urnar hafa því varið síð­ustu árum í að berj­ast fyrir því að fá greiddar miska­bætur sem þeim voru dæmdar, án árang­urs. 

Ólust upp hjá dæmdum barnaníðingi

Syst­urnar ólust upp hjá dæmdum barn­a­níð­ingi án þess að nokk­urt eft­ir­lit væri haft með heim­il­inu. Faðir þeirra, Kjartan Adolfs­son, hafði hlotið dóm fyrir að brjóta gegn elstu dóttur sinni og var dæmdur í sjö ára fang­elsi árið 2019 fyrir kyn­ferð­is­brot gagn­vart Önnu og Lindu. Áður hafði stjúp­móðir þeirra, Tipvipa Arunvongwan, verið dæmd í tíu mán­aða fang­elsi árið 2016 fyrir að van­virða og ógna heilsu þeirra og vel­ferð með lík­am­legum refs­ingum og mis­þyrm­ingum. Anna lýsti reynslu sinni af ólýs­an­legu ofbeldi á heim­il­inu í ítar­legu við­tali við Stundina í jan­úar 2018. Áður hafði eldri systir þeirra, Guðrún Kjart­ans­dóttir, stigið fram og greint frá brotum föður síns. 

Nú berj­ast syst­urnar fyrir því að fá greiddar miska­bætur, sem þau Kjartan og Tipvipa voru dæmd til að greiða þeim.

„Mér þætti rétt að fá alla­vega eitt­hvað í stað­inn fyrir allt sem tekið var frá okkur“
Linda

„Æskunni var rænt af okkur. Við höfum aldrei átt eðli­legt líf,“ segir Linda og bætir við að þær systur hafi búið við frelsi í svo skamman tíma. „Mér þætti rétt að fá alla­vega eitt­hvað í stað­inn fyrir allt sem tekið var frá okkur og við getum aldrei fengið til baka.“

Þríþætt krafa

Mál systr­anna gagn­vart bóta­sjóði er þrí­þætt. Fyrst ber að nefna kröfu um greiðslu bóta sem faðir þeirra var dæmdur til að greiða með dómi Lands­réttar árið 2019, síðan er það greiðsla bóta sem stjúp­móðir þeirra var dæmd til að greiða árið 2016 og loks bætur vegna ann­arra brota sem hún var dæmd fyrir gagn­vart þeim.

Faðir þeirra var dæmdur til að greiða Önnu 3,5 millj­ónir og Lindu 3 millj­ónir. Í fyrra mál­inu gagn­vart stjúp­móður þeirra var upp­hæð miska­bóta 1 til 1,5 millj­ónir fyrir hvora systur. Loks voru það 800 þús­und krónur sem hún átti að greiða þeim vegna dóms sem féll í Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands árið 2020. Þær bætur voru að end­ingu greiddar, eftir langa bið, en annað hafa þær ekki fengið.

„Hvaða munur er á því hvort hann braut á okkur í Taílandi eða á Íslandi? Það er jafn slæmt fyrir sál okkar“
Anna

Systr­unum þykir bæði ósann­gjarnt og skrítið hversu treg stjórn­völd eru að greiða út þessar bætur. „Ég skil það ekki,“ segir Linda. „Ég veit um fullt af fólki sem hefur fengið greiddar bætur þótt því hafi verið dæmdar lægri bætur en okkur.“

Neituðu því brotin voru framin erlendis

Fyrir hönd systr­anna sendi Arnar Kormákur fyrst kröfu í jan­úar 2019 vegna brota stjúp­móð­ur­innar, sem var ítrekuð í sept­em­ber 2019 og margoft síðan, en hefur ekki enn verið svarað. Eftir að dómur Lands­réttar yfir föður þeirra lá fyrir sendi hann kröfu í apríl 2019. Bóta­sjóður dró að svara en syst­urnar fengu að end­ingu höfnun á þeim for­sendum að þar sem kyn­ferð­is­brot föður þeirra voru framin utan Íslands bæri rík­inu ekki að borga miska­bæt­urnar, þótt um íslenska rík­is­borg­ara sé að ræða. „Hvaða munur er á því hvort hann braut á okkur í Taílandi eða á Íslandi? Það er jafn slæmt fyrir sál okkar,“ spyr Anna og segir að þeim hafi sárnað mjög yfir þessum und­an­brögðum bóta­sjóðs. „Ég skil ekki hvað er svona erfitt við þetta,“ bætir Linda við. 

„Yrði það þá í annað sinn sem þær þyrftu að leita til dóm­stóla vegna ágrein­ings við ríkið um greiðslu þess­ara bóta“
Arnar Kormákur,
lög­maður

Fyrir hönd systr­anna stefndi lög­mað­ur­inn bóta­sjóði vegna þess­arar ákvörð­unar, sem hér­aðs­dómur felldi úr gildi þann 11. ágúst 2021, þannig að nú er óum­deilt að þær eiga rétt á greiðslu úr bóta­sjóði þótt brotin hafi verið framin erlendis. Síðan hafa hins vegar engin svör borist, þrátt fyrir að lög­maður þeirra hafi marg­ít­rekað kröfur um greiðslu, bæði með tölvu­póstum og sím­tölum. Og nú er honum nóg boðið: „Lög um bætur til þolenda afbrota voru sett með það að mark­miði að styrkja stöðu brota­þola, sem dæmdar hafa verið bætur í saka­máli vegna þess tjóns sem af refsi­verðum brotum hlaust. Það er með öllu óásætt­an­legt að brota­þolar þurfi að bíða í mörg ár með að fá úrlausn slíkra mála gagn­vart rík­inu, að afloknu því langa og stranga ferli sem saka­málin eru. Í þessu máli er óhjá­kvæmi­lega nú til skoð­unar að stefna rík­inu vegna þess­arar máls­með­ferðar. Yrði það þá í annað sinn sem þær þyrftu að leita til dóm­stóla vegna ágrein­ings við ríkið um greiðslu þess­ara bóta.“

Dreymir um öruggt heimili

Syst­urnar dreymir báðar um að eiga öruggt heim­ili til fram­tíðar. Anna er gengin í hjóna­band, orðin móðir og búin að finna hús með mikla mögu­leika, sem hana dreymir um að kaupa. Þar er bæði gesta­hús og hest­hús og hún sér fyrir sér fram­tíð­ar­sýn þar sem sonur hennar getur gengið frjáls um sveit­ina og leikið sér. „Ég held að þetta væru góð kaup og hægt að nýta hús­næðið vel.“ Ef þetta gengur eftir sér fóst­ur­móðir þeirra systra fyrir sér að kaupa hús­næðið með henni. „Mér finnst gott að til­heyra ein­hvers staðar,“ segir Anna, sem kallar föður sinn aldrei annað en Kjartan og segir að ef hann geti ekki greitt miska­bæt­urnar, eigi bóta­sjóður að greiða þær út og faðir hennar standi þá í skuld við ríkið. „Lögmaður okkar er búinn að reyna að sækja bætur til rík­is­ins en það vill ekk­ert fyrir okkur gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Til hvers voru þeir þá að dæma í erlendu máli sem kemur þeim ekkert við ??? vegna þess að þetta kemur þeim við og þeir eiga að borga og borga skaðabætur líka fyrir þrjóskukjaftæðið , skammist ykkar bara mismunarar !!
    0
  • Ykkur vegna væri best að þið gætuð látið ykkur liða vel..andlega og líkamlega og ekki blanda tilfinngum ykkur i peningamál ..því af það er ekki hægt af kaupa hamingju frið og ró..sem þið getið fundið annarstaðar.
    0
  • Hulda Björk Þórisdóttir skrifaði
    ❤️ Elsku sterku stelpur ❤️
    0
  • Diðrik Diðriksson skrifaði
    Það mætti halda að þessi möppu dýr ættu þessa peninga hvað er að þessu skriffinnsku pakki 😡
    1
  • Inga Jona Traustadottir skrifaði
    Bótasjóður að koma sér undan að greiða og vonar að þær gefist upp .... Liggur frekar augljóst fyrir finnst mér
    1
  • Karen Linda skrifaði
    Hvaða rugl er þetta? Maðurinn er íslenskur og börnin líka. Hann er jafn sekur ef hann brýtur á þeim þar eða hér. Og hverskonar skilaboð eru þetta? Er þá bara í lagi að níðast á börnunum þínum ef þú skreppur með þau út fyrir landsteinana? Borgið þeim bara strax!
    6
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Viðbjóðslegt samfélag
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár