Bíður þess að verða vísað úr landi Alina er eft­ir­lýst í heima­landi sínu, Hvíta-Rúss­landi, fyrir andóf gegn síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu, Alex­ander Lukashenko. En þrátt fyrir það og þrátt fyrir að hún sé fötluð og glími við erfið veik­indi hyggj­ast íslensk stjórn­völd vísa henni úr landi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sagan hennar Alinu

Alina Kaliuzhnaya flúði Hvíta-Rússland eftir að hafa verið hand­tekin, fang­elsuð, pyntuð og loks sett á lista yfir eft­ir­lýsta glæpa­menn fyrir það eitt að mót­mæla kosn­inga­svikum Lukashenko. Henni hefur í tvígang verið neitað um vernd af íslenskum stjórn­völdum á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Alvarleg veik­indi hennar og fötlun, það að hún sé eft­ir­lýst í heima­landi sínu og faðir hennar þekktur póli­tískur flótta­maður, hafði ekk­ert að segja.

Alina Kaliuzhnaya verður 24 ára eftir aðeins nokkra daga. Hún fædd­ist 17. apríl 1998 í Hvíta-Rúss­landi. Fjórum árum fyrr varð Alex­ander Lukashenko fyrsti for­seti lands­ins eftir að Sov­ét­ríkin voru leyst upp árið 1991 og Hvíta-Rússland öðl­að­ist sjálf­stæði. Lukashenko, sem síðan hefur stoltur kallað sig síð­asta ein­ræð­is­herra Evrópu, var reyndar eini full­trúi stjórn­mála­hreyf­ing­ar­innar sem hann stofn­aði, sem var á móti því að Sov­ét­ríkin yrðu leyst upp þarna árið 1991 og tal­aði fyrir því í Moskvu árið 1994 að stofnað yrði nýtt banda­lag slav­neskra ríkja, en það er önnur saga.

Þetta er saga Alinu, póli­tískrar flótta­konu, sem nú býr á Íslandi en bíður þess að verða vísað úr landi. Til Póllands, þar sem hún hefur þó hvorki sótt um eða hlotið hæli. Íslensk yfir­völd hafa í tvígang neitað henni um vernd á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Og það jafn­vel þótt Alina sé fötluð og glími við erfið veik­indi.

Íslensk stjórn­völd vilja nefni­lega meina að Alina geti vel sótt um vernd í Póllandi og notið þar þjón­ustu sem hún á rétt á. Þar muni hún hafa aðgang að allri þeirri lækn­is­þjón­ustu sem hún þurfi á að halda; örugg þrátt fyrir að vera eft­ir­lýst í heima­landi sínu.

Alina er á lista yfir óvini hvít-rúss­neska rík­is­ins, rétt eins og faðir hennar, Dmitry Petrushkevich. Hann er einn þekkt­asti póli­tíski flótta­maður lands­ins, eftir að hafa sjálfur flúið land, þá orð­inn skot­mark dauða­sveita stjórn­valda sem hann hafði sjálfur komið upp um. Nokkuð sem hvít-rúss­neska lög­reglan komst að þegar hún hand­tók Alinu og færði í þekkt ein­angr­un­ar­fang­elsi þar sem hún sætti pynt­ingum í 15 daga ein­angr­un­ar­vist.

Alina kom til Íslands því hún var viss um að hér yrði hún örugg, að hér væri mál­frelsi og lög­regla og stjórn­völd myndu vernda hana.   

Sagan byrjar í Minsk

Vorið 1998 í Minsk, höf­uð­borg Hvíta-Rúss­lands, eign­uð­ust þau Julia Kaljuzhnaja og Dmitry Petr­us­hkevitsj  sitt fyrsta barn. Stúlku sem nefnd var Alina Dmitri­jeva, sem venju sam­kvæmt hlaut þó ætt­ar­nafn föður síns, Petr­us­hkevitsj. 

Dmitry var á þessum tíma liðs­maður sér­staks teymis rann­sókn­ar­lög­reglu­manna sak­sókn­ar­ans í Minsk. Þegar Alina var nýorðin tveggja ára leiddi rann­sókn umfangs­mik­ils saka­máls til hand­töku nokk­urra glæpa­manna sem grun­aðir voru um aðild að hrotta­legu morði og inn­broti.

Á heim­ili eins þeirra rák­ust Dmitry og kollegar hans á nokkuð sem vakti for­vitni þeirra, úrklippu úr dag­blaði. Viðtal við Dmitry Zavadsky, þekktan hví­trúss­neskan blaða­mann, sem skömmu áður hvarf spor­laust eftir að hafa átt í opin­berum úti­stöðum við stjórn Lukashenko.    

Það liðu ekki nema nokkrar vikur frá því pabbi Alinu rakst á þessa úrklippu að hann átt­aði sig á því að hann væri kom­inn í miðju ein­hvers sem hann vissi að sner­ist um annað og meira en morðið sem hann hafði upp­runa­lega haft til rann­sóknar.

Glæpa­menn­irnir sem rann­sókn­ar­lög­reglan hafði hand­samað reynd­ust með­limir í leyni­legri sér­sveit lög­reglu­stjór­ans í Minsk. Og þegar þessi sami lög­reglu­stjóri var hand­tek­inn, vís­aði hann pabba Alinu á hvar lík blaða­manns­ins Zavadsky væri að finna. 

Með risa­vaxið saka­mál í hönd­unum vildu Dmitry og félagar rann­saka það nánar. Þeir voru með sann­anir fyrir aðild sér­sveitar lög­reglu­stjór­ans að hvarfi þriggja ann­arra and­stæð­inga Lukashenko. Og það leið ekki á löngu þar til Lukashenko sjálfur skarst í leik­inn, yfir­maður hjá sak­sókn­ara var rek­inn og æðsti yfir­maður KGB líka. Lög­reglu­stjór­inn var leystur úr haldi og verð­laun­aður af for­set­anum. 

Pabbi Alinu og kollegi hans, Oleg Sluchek, flúðu hins vegar land til Banda­ríkj­anna árið 2001, eða ári eftir að rann­sóknin hófst. Þá höfðu þeir stigið fram og lýst upp­götvun sinni í óháðum fjöl­miðlum [sem þá voru enn nokkrir í land­inu], sann­færðir um að gengið sem myrti Zavadsky væri dauða­sveit sem hefði á þriggja ára tíma­bili myrt allt að 30 manns. Og nú væru þeir Dmitry og Oleg sjálfir orðnir skot­mark hennar.

Pabbi Alinu lýsir þess­ari atburða­rás í við­tali við blaða­mann Washington Post skömmu eftir að hann flúði til Banda­ríkj­anna. Hvernig hann hætti lífi sínu við að koma þessum upp­lýs­ingum til almenn­ings og hvernig hann von­aði að þær myndu vekja athygli Vest­ur­landa á ástand­inu í Hvíta-Rúss­landi undir stjórn ein­ræð­is­herr­ans Lukashenko.  

Nýtt nafn og nýtt líf

Alina var því aðeins þriggja ára þegar faðir hennar flúði land ótta­sleg­inn um líf sitt og kom­inn á lista stjórn­valda sem óvinur rík­is­ins. Sem refs­ingu fyrir brott­hlaupið sviptu yfir­völd Dmitry for­sjá yfir Alinu.

Sannfærð um að Alina myndi hljóta sömu örlög og faðir hennar ákvað móðir hennar að breyta eft­ir­nafni hennar úr Petrushkevich yfir í ætt­ar­nafn móð­ur­fjöl­skyld­unnar, Kaljuzhnaja, til þess að beina kast­ljósi stjórn­valda frá henni, enda hafði Alina ekk­ert gert til þess að verð­skulda athygli þeirra annað en að vera dóttir föður síns. 

Ári síðar missir mamma Alinu líka for­ræðið yfir henni vegna veik­inda. Alina var því fjög­urra ára gömul færð í var­an­lega umsjá ömmu sinnar. Til þess að skýla henni og vernda ákvað amma hennar að segja Alinu ekki frá því hvers vegna pabbi hennar væri ekki hluti af lífi hennar, segir Alina, sem kveðst hafa fullan skiln­ing á þeirri ákvörðun ömmu sinnar.

Heilsan verri með hverju árinu

Örorku­skír­teiniAlina gat lagt fram fjölda gagna sem studdu frá­sögn hennar um bágt heilsu­far, meðal ann­ars örorku­skír­teini gefið út í Hvíta-Rúss­landi.

Engu að síður upp­lifði hún sig „hálf­mun­að­ar­lausa“ sem barn vegna fjar­veru pabba síns og veik­inda móður sinnar. Sjálf veikt­ist hún mikið sem barn og talar um að hafa eytt lung­anum úr æsku sinni á sjúkra­húsi. Það tók lækna langan tíma að átta sig á hvað hrjáði hana enda voru ein­kennin marg­vís­leg. Hún þjáð­ist til dæmis lengi af maga­verkjum en á sama tíma hrak­aði sjón hennar hratt. 

Ellefu ára var hún greind með Crohns-sjúk­dóm­inn, sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm sem herjar helst á melt­ingu fólks en veikir einnig ónæm­is­kerfið, svo Alina er við­kvæm fyrir hvers kyns sýk­ingum. 

Þrátt fyrir þessa grein­ingu átt­uðu læknar sig illa á því hver orsök allra hennar veik­inda voru. Crohns gat ekki verið ekki það eina sem hrjáði hana. Eftir ítar­legar rann­sóknir komust lækn­arnir loks að því að auk Crohns-sjúk­dóms­ins var Alina einnig með alvar­legan og sjald­gæfan erfða­sjúk­dóm, Marfan-heil­kenni. Hún þarf því stöðuga lyfja­gjöf og lækn­is­hjálp enda getur Marfan-heil­kenni verið lífs­hættu­legur sjúk­dómur, þar sem hann leggst á hjarta- og æða­kerfið, augun og stoð­kerfið, sem útskýrir hvers vegna Alina var sem barn strax farin að missa hluta af sjón­inni.

„Að vera fatlað barn í Hvíta-Rúss­landi er hryll­ingur.“

Samkvæmt íslenskum skrifum um heil­kennið leggst það mis­mun­andi í hvern og einn sem ber það, en í ein­hverjum til­vikum er það lífs­hættu­legt og dregur fólk til dauða langt fyrir aldur fram. 

 „Heilsan mín verður bara verri með hverju árinu og þetta er þannig að ég veit aldrei í hvernig standi ég verð eftir hálft eða heilt ár, þannig að ég þarf stöðuga lækn­is­hjálp,“ útskýrir Alina. 

Heima í Hvíta-Rúss­landi fékk hún litla hjálp og stuðn­ing sem barn. Engin sér­kennsla var í boði fyrir hana og vegna þess hve oft hún þurfti að dvelja á spít­ala var hún lítið sem ekk­ert í stað­námi. Sem tán­ingur var henni sagt af læknum að vegna ástands hennar væri ósköp margt sem henni myndi aldrei takast að gera, eins og að stunda háskóla­nám.

„Að vera fatlað barn í Hvíta-Rúss­landi er hryll­ingur,“ útskýrir hún.

Það varð því snemma draumur hennar að verða að gagni í lífi fatl­aðra og lang­veikra barna. Hún vildi læra sér­kennslu og veita þá aðstoð og stuðn­ing sem hún sjálf fékk aldrei.

Ekkert tengd pólitík sem barn

Amma Alinu sagði henni sann­leik­ann um föður hennar og flótt­ann þegar Alina var tólf ára. Hún hafði lítið leitt hug­ann að stjórn­málum fram að því en seg­ist muna hversu henni sárn­aði aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í garð veik­inda hennar og ann­arra í sömu stöðu. Um Lukashenko vissi hún lítið annað en að ekki þætti ráð­legt að mót­mæla honum eða stjórn­völdum. Nú varð henni þó ljóst að það væri bein­línis hættu­legt að ögra stjórn­völdum.

„Það hefði verið hættu­legt fyrir líf mitt og minna nán­ustu að skipta mér af póli­tík vegna pabba.“

Alina fór að leita frek­ari upp­lýs­inga um föður sinn og leiða til að kom­ast í sam­band við hann. Hún fann hann en sá um leið að hann hefði stofnað til nýrrar fjöl­skyldu hinum megin við hafið. Hún ákvað því að bíða með að hafa sam­band um sinn.

„Heilsan mín verður bara verri með hverju árinu og þetta er þannig að ég veit aldrei í hvernig standi ég verð eftir hálft ár“

Fimm ár liðu þar til hún setti sig í sam­band við pabba sinn en síðan þá hafa þau verið í reglu­legum sam­skiptum. Hann hefur að sögn hennar stutt hana og hvatt til dáða í krefj­andi aðstæðum í hennar lífi. 

Varð vitni að kosningasvindli 

Árið sem Alina varð tutt­ugu og tveggja ára, árið 2020, var efnt til for­seta­kosn­inga í Hvíta-Rúss­landi. Um vorið til­kynnti Siarhei Tsik­hanov­skyi, rúm­lega fer­tugur bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum, fram­boð sitt til for­seta. Aðeins tveimur dögum seinna var hann hand­tek­inn og gefið að sök að hafa ráð­ist á lög­reglu­menn, þótt mynd­band sýni annað. Hann situr þó enn í fang­elsi og mun gera í fjölda ára til við­bótar, dæmdur fyrir að hvetja til ólög­legrar upp­reisnar gegn stjórn­völdum. 

Í mót­mæla­skyni við hand­töku Tsik­hanov­skyi bauð eig­in­kona hans, Svetlana Tsik­hanovskaya,  sig fram til for­seta og hlaut mik­inn stuðn­ing almennra borg­ara, svo mik­inn raunar að 70 þús­und manns mættu á kosn­inga­fund hennar þrátt fyrir hót­anir yfir­valda við þá sem sýndu henni stuðn­ing.

„Það hefði verið hættu­legt fyrir líf mitt og minna nán­ustu að skipta mér af póli­tík vegna pabba.“

Alina hafði fengið vit­neskju um að hverjum sem er væri heim­ilt að ger­ast eft­ir­lits­maður við kosn­ing­arnar og ákvað hún að bjóða sig fram til kosn­inga­eft­ir­lits. Þar varð hún vitni að víð­tæku kosn­inga­svindli. Til dæmis því þegar starfs­menn kosn­ing­anna settu fleiri en einn merktan kjör­seðil ofan í kjör­kassa. Nokkuð sem fjöldi eft­ir­lits­manna varð vitni að. Enda stemmdi fjöldi kjör­seðla ekki við tölur um kjör­sókn.

Alex­ander Lukashenko var þrátt fyrir þetta lýstur sig­ur­veg­ari með um 80 pró­sent atkvæða. „Við vissum að það væri ekki satt, það voru til sann­anir,“ útskýrir hún. Mót­fram­bjóð­andi Lukashenko, Svetlana, var á sama máli og alþjóða­sam­fé­lagið sam­þykkti ekki nið­ur­stöður kosn­ing­anna og lítur enn á Svetlönu sem kjör­inn full­trúa meiri­hluta almenn­ings í Hvíta-Rúss­landi.

Um leið og úrslitin voru kynnt hófust mót­mæli á götum höf­uð­borg­ar­innar, Minsk.

Alina kveðst hafa ákveðið að láta yfir­kjör­stjórn og sak­sókn­ara vita af því sem hún varð vitni að og sendi báðum þessum stofn­unum bréf og fékk svar. Skrif­stofa sak­sókn­ara svar­aði með því að erindið yrði sent áfram til við­eig­andi aðila en svo fékk hún per­sónu­legt svar frá Lidiu Yermos­hinu, for­manni yfir­kjör­stjórnar.

Svar frá Lidiu Yermos­hinuLidia hefur verið for­maður yfir­kjör­stjórnar í Hvíta-Rúss­landi frá árinu 1996. Eftir kosn­ing­arnar 2020 var Lidia látin sæta far­banni til landa Evr­ópu­sam­bands­ins, Banda­ríkj­anna, Bret­lands, Sviss og Kanada. Eftir for­seta­kosn­ing­arnar 2010 fór for­seta­fram­bjóð­and­inn Andrei Sannikov fram á það að Lidiu yrði vikið úr emb­ætti sínu vegna aðildar sinnar að kosn­inga­svindli og tengslum hennar við Lukashenko.

„Hún sagði mér mjög kurt­eis­lega að þetta væri ekki mitt mál og að kjör­stjórnin hefði gert allt sam­kvæmt lögum og að auki hefðu engin lög verið brotin í þessum kosn­ingum. Samt voru per­sónu­upp­lýs­ingar mínar vistaðar því ég dirfð­ist að spyrja spurn­inga,“ segir Alina í við­tali við Stundina á dög­unum. 

Svarið olli henni von­brigðum og henni kveðst hafa liðið illa yfir því að vitn­is­burður hennar um kosn­inga­svindl væri huns­aður með þessum hætti. Við þetta breytt­ist afstaða Alinu um að blanda sér ekki um of í stjórn­mál:

„Þegar ég sá hvað Lukashenko er til­bú­inn að gera til að halda völdum þá ákvað ég að slást í för með vinum mínum og öðru eft­ir­lits­fólki og mót­mæla.“

Frið­sam­legum mót­mælum almennra borg­ara var mætt með sífellt meiri hörku eftir því sem leið á haustið 2020. „Sérsveit lög­regl­unnar réðst á fólk, þeir börðu, nauðg­uðu og hand­tóku mót­mæl­endur og ekki aðeins á mót­mæl­unum sjálfum heldur utan þeirra líka. Á þremur dögum voru sjö þús­und manns hand­tekin. Þetta var hræði­legt.“

Ástandið var orðið þannig að Alina kvaðst hafa verið „dauð­hrædd“ við mót­stöð­una sem mætti mót­mæl­endum. Sérsveit lög­regl­unnar veitt­ist að borg­urum með hvell­sprengjum og skutu á þau með gúmmí­kúlum. Alina segir að á öðrum degi mót­mæl­anna hafi maður dáið þegar sér­að­gerð­ar­sveitin skaut hann.

„Það eru til mynd­bönd af honum rétt fyrir and­látið þar sem hann er óvopn­aður að mót­mæla frið­sam­lega,“ segir Alina. Það er aug­ljóst að upp­rifjun á dauða­stríði manns­ins tekur á hana.

Hryllilegasti staðurinn í Minsk

Mót­mæl­unum í Minsk linnti ekki og í lok sept­em­ber sór Lukashenko emb­ætt­is­eið­inn með leynd. Degi síðar sendi Evr­ópu­sam­bandið frá sér yfir­lýs­ingu. Fordæmdi ofbeldi stjórn­valda gegn mót­mæl­endum, hafn­aði nið­ur­stöðu kosn­ing­anna og kall­aði eftir nýjum. Þann dag var fjöldi fólks hand­tek­inn og hnepptur í varð­hald, þar sem margir sættu ógeð­felldum pynt­ingum.

Þegar liðið var á des­em­ber­mánuð voru mót­mæl­endur langt frá því að gef­ast upp, þrátt fyrir kuld­ann og ofbeldið sem mætti þeim dag­lega. Einn dag var Alina á gangi um borg­ina með kunn­ingjum sínum í nokkuð stórum hópi. Það sem hvorki hún né aðrir vissu var að á meðal þeirra væri óein­kenn­is­klæddur lög­reglu­maður sem hafði sent sér­sveit­inni meld­ingu um hópa­myndun og röskun á alls­herj­ar­reglu.  

Hneppt í varð­haldAlina var hneppt í varð­hald í des­em­ber 2020 og færð í eitt þekktasta ein­angr­un­ar­fang­elsi Minsk-borgar.

Áður en Alina átt­aði sig birt­ust tvær fullar rútur af sér­sveit­ar­mönnum sem réð­ust að þeim svo úr varð mikil ringul­reið og örvinglan.

„Fólk reyndi að forða sér, fela sig og hlaupa í burtu. Það var hálka þegar þetta var svo fólk fór að detta og þetta var allt mjög kao­tískt. Þetta var hræði­legt,“ rifjar Alina upp.

Hún var hand­tekin ásamt vinum sínum. Vega­bréfið var tekið af henni ásamt sím­anum og stuttu síðar var hún færð í gæslu­varð­hald þar sem hún fékk hvorki mat né drykk í átta klukku­stundir. En það versta var ekki afstaðið. Næst var Alina færð í eitt þekktasta fang­elsi Minsk-borgar, Okrest­ina, í frekara gæslu­varð­hald.

„Þetta er hrylli­leg­asti stað­ur­inn í Minsk, fólk er pyntað, því er nauðgað og barið niður and­lega og lík­am­lega,“ segir hún.

Eftir þrjá daga í Okrest­ina var ákveðið að færa Alinu um set í annað fang­elsi fjarri höf­uð­borg­inni. Hún vissi ekki af þeim fyr­ir­ætl­unum fyrr en klef­inn hennar var opn­aður upp á gátt og hún borin út í fanga­bíl, algjör­lega óviss um það hvert hún væri að fara og hvað byði hennar.

Í aft­ur­hluta bíls­ins var hún sett í klefa sem var um það bil fer­metri, eins og hún man það. Þegar bíll­inn fór af stað slökktu fanga­verð­irnir á loft­ræsti­kerf­inu og kveiktu sér í sígar­ettu svo loftið varð óbæri­legt. „Ég barði í bíl­inn og öskr­aði svo þeir myndu stoppa og gefa mér vatn eða eitt­hvað. Ég vissi ekk­ert hvert við værum að fara, við hefðum alveg eins getað verið að fara að gröf,“ segir hún. Þeir stöðv­uðu loks­ins bíl­inn og gáfu Alinu sopa af vatni og þegar þeir opn­uðu læsta hurð­ina segir hún að það hafi verið í fyrsta skipti frá því að þeir tóku hana úr klef­anum sem hún vissi hvort það væri nótt eða dagur.

„Þegar ég sá hvað Lukashenko er til­bú­inn að gera til að halda völdum, þá ákvað ég að slást í för með vinum mínum og öðru eft­ir­lits­fólki og mót­mæla.“

Í fang­els­inu var Alina sett í kaldan klefa og fékk hvorki mat, vatn né lyfin sem hún var vön að taka og voru henni lífs­nauð­syn­leg. Heilsu hennar var því farið að hraka all­veru­lega þegar þeir loks yfir­heyrðu hana. Þeir vildu vita hver hefði skipu­lagt mót­mælin og hvort hún hefði fengið greitt fyrir að mót­mæla. „Þeir neit­uðu að trúa því að fólkið skipu­lagði mót­mælin sjálft því það vissi að nið­ur­stöð­urnar voru rangar,“ segir hún.

Þeir sögðu henni að þeir vissu hver pabbi hennar væri og héldu áfram að brjóta hana niður „bæði lík­am­lega og and­lega“ til þess að fá hana til að segja það sem þeir vildu heyra. Þeir sögðu henni að ef hún yrði ekki sam­vinnu­þýð myndu hún aldrei sleppa þaðan út, að hún yrði dæmd til að dúsa þar í fimm ár til við­bótar. „Þeir sögð­ust ætla að láta það bitna á mínum nán­ustu ef ég væri ekki sam­vinnu­þýð og ég vissi að þeir gátu það,“ segir hún og bætir við:

„Þegar mér var hleypt út var ég í mjög slæmu lík­am­legu ástandi.“ Svo slæmu að sam­kvæmt gögnum sem Alina veitti Stund­inni aðgang að, tók horm­óna­kerfi hennar breyt­ingum eftir pynt­ing­arnar.

Sett á óvinalista

Eftir að Alinu var sleppt úr haldi fékk hún form­lega beiðni um að mæta í við­tal til sak­sókn­ara. Ég skildi þarna að þeir myndu ekki láta mig í friði,“ útskýrir hún. Hún var komin á lista yfir þá sem höfðu framið glæpi gegn alls­herj­ar­reglu, lista sem var sendur á allar rík­is­stofn­anir og ráðu­neyti, þar á meðal háskól­ann sem hún gekk í. Á fund­inum var henni meinað að taka þátt í frek­ari mót­mælum eða aðgerðum í and­stöðu við stjórn­völd, ella yrði hún fang­elsuð. 

Hún fékk einnig að vita að hún hefði þarna misst rétt­inn til að mennta sig á kostnað rík­is­ins og gæti því ekki haldið áfram í skól­anum. Hún þyrfti líka að segja upp vinnu sinni á leik­skóla, ann­ars yrði hún rekin fyrir van­rækslu. Hún hafði misst rétt­inn til að vinna með börnum með því að mót­mæla Lukashenko.

„Draumur minn um að vinna með börnum var orð­inn að engu,“ segir hún sorg­mædd á svip. Við tók að leita sér að nýrri vinnu en alls staðar kom hún að lok­uðum dyrum vegna list­ans. 

Vegna veru hennar á lista stjórn­valda átti hún raunar alltaf á hættu að verða hand­tekin aftur og hneppt í varð­hald eða hljóta jafn­vel fang­els­is­dóm. „Það var fylgst með mér. Það var hryll­ingur og ég fékk oft kvíða­kast þegar bíll keyrði fram­hjá af ótta við það að hann myndi stað­næm­ast og ég yrði tekin. Ég ótt­að­ist stans­laust að vegna skoð­ana minna myndi ég missa eitt­hvað vit­laust út úr mér og mér yrði refsað. Ég bjó við stöðugan ótta og það er í raun ein af þeirra pynt­ing­ar­að­ferðum að halda manni í stöðugri óvissu.“

Varð að flýja

Þegar þarna var komið sögu vissi Alina að hún þyrfti að koma sér í burtu frá Hvíta-Rúss­landi sem fyrst áður en henni yrði meinað að yfir­gefa landið. Hvert hún ætti að fara vissi hún ekki en hún fór að lesa sér til um lönd þar sem hún gæti verið örugg. Allra síst vildi hún fara til Póllands þótt leiðin þangað væri auð­veld í sam­an­burði við aðrar flótta­leiðir, en auð­velt var að verða sér úti um vega­bréfs­á­ritun þangað. Hún hafði heyrt frá vinum sínum að Hvít-Rússar yrðu fyrir for­dómum þar og að hún sem fötluð flótta­kona ætti í frek­ari hættu á að lenda á jaðri sam­fé­lags­ins.

Auk þess vissi hún að sér­sveit stjórn­valda væri sífellt á ferð­inni yfir landa­mærin með flótta­fólk frá Sýrlandi og Afganistan og að hún nýtti ferð­irnar til að leita að þeim sem merktir höfðu verið sem óvinir rík­is­ins. 

„Þetta er hrylli­leg­asti stað­ur­inn í Minsk, fólk er pyntað, því er nauðgað og barið niður and­lega og lík­am­lega“

Eitt af þeim löndum sem hún hafði skoðað var Ísland. „Ég las að hér væri öryggi og mál­frelsi. Að hér ótt­að­ist almenn­ingur ekki lög­regl­una og að hér væri hægt að tala frjálst án þess að eiga á hættu að vera hand­tek­inn. Ég las mér líka til um að hér væru börn með alls konar fatl­anir sem ég gæti aðstoðað og hér gæti ég verið til gagns.“ Og Íslands varð fyrir val­inu. 

Leiðin þangað var tölu­vert erf­ið­ari en til Póllands, hún gat ekki orðið sér úti um vega­bréfs­á­ritun hingað svo hún neydd­ist til að fara aðra leið. Hún ákvað að fljúga hingað frá Moskvu með milli­lend­ingu í Lett­landi. Ferða­lagið frá Moskvu til Lett­lands gekk vel fyrir sig en á flug­vell­inum í Lett­landi var för þeirra, hennar og vin­konu hennar sem ferð­að­ist með henni, skyndi­lega stöðvuð.

„Þá vorum við spurðar hvað við ættum mikið af pen­ingum, af hverju við værum að fara til Íslands og af hverju við færum ekki bara til Póllands og svo vorum við sak­aðar um að vera með fals­aða vega­bréfs­á­ritun.“ 

Á meðan toll­vörður hélt þeim föstum með spurn­ingum misstu þær af flug­vél­inni til Íslands. Þær komust enda hvergi nema með leyfi manns­ins. Í kringum þær voru Hvít-Rússar í sömu stöðu, fastir á milli landa, hvort sem þeir voru að flýja eða ferð­ast. Yfir­maður tolls­ins gaf þeim tvo kosti, þær gætu ann­að­hvort komið sér til Póllands, ver­andi með pólska vega­bréfs­á­ritun, eða hann myndi senda þær aftur heim til Hvíta-Rúss­lands. 

Af tveimur slæmum kostum var Pólland betri og því flugu þær þangað með líf sitt í tösku. Þær vissu hins vegar ekki hvert þær ættu að stefna í Póllandi svo Alina ákvað að hafa sam­band við vin föður síns sem hún vissi að ætti heima í Póllandi. Hann hafði flúið sér­sveitir stjórn­valda og var því í felum þar, ásamt því að vinna í lýð­ræð­is­hreyf­ingu með öðrum Hvít-Rússum í Póllandi. 

Hann kom þeim fyrir á felu­stað sínum, í pínu­litlu hót­el­her­bergi. Þar sagði hann þeim frá því að hann væri viss um að það væri verið að fylgj­ast með sér í Póllandi og að hann væri í hættu þar. Þær tóku hann á orð­inu enda hafði nýverið verið fjallað um það í fréttum að aðgerð­ar­sinni í lýð­ræð­is­hreyf­ingu Hvít-Rússa hefði fund­ist lát­inn í Úkraínu, and­látið var sam­kvæmt óháðum fjöl­miðlum látið líta út eins og sjálfs­morð en fólk var farið að gruna að dauða­sveitir stjórn­valda, sem faðir Alinu hafði komið upp um, væru komnar á kreik að nýju. 

Þær stopp­uðu því aðeins í tvo daga í Póllandi en keyptu sér svo flug­miða til Íslands. „Við urðum bara að kom­ast til Íslands, sama hvernig við færum að því.“

Hvers vegna ekki Pólland?

Alina og vin­kona hennar komust loks á leið­ar­enda í ágúst í fyrra. Þær sóttu strax um hæli við komu sína og fljót­lega varð þeim útveg­aður tals­maður á vegum Rauða kross­ins sem átti að leið­beina og hjálpa þeim að kom­ast í gegnum ferlið að sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Í fyrsta við­tal­inu sem Alina á við Útlend­inga­stofnun var áhersla lögð á að fá skýr­ingu á því hvers vegna hún vilji ekki fara til Póllands eftir að hún hafði ferð­ast alla þessa leið  til Íslands.

Samkvæmt Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni svoköll­uðu ber Pólland ábyrgð á umsókn Alinu um alþjóð­lega vernd, ein­göngu vegna þess að íslensk stjórn­völd fóru sér­stak­lega fram á það við þar­lend yfir­völd, vegna þess að hún kom hingað á pól­skri vega­bréfs­á­ritun. Fyrir vikið koma íslensk stjórn­völd sér þannig hjá því að taka efn­is­lega afstöðu til máls Alinu. Nokkuð sem hefur oft­sinnis verið harð­lega gagn­rýnt. 

Hún útskýrði fyrir stofn­un­inni, með hjálp túlks, að hún hefði ekki átt ann­arra kosta völ en að fara til Póllands eftir að hafa verið stöðvuð á flug­vell­inum í Lett­landi. Hana lang­aði alls ekki til Póllands enda hefði hún veru­legar áhyggjur af öryggi sínu þar, ver­andi lang­veik og fötluð kona á flótta. En ekki síður ver­andi hvít-rúss­nesk og eft­ir­lýst. Hún útskýrði sömu­leiðis flótta­manna­straum­inn við landa­mæri Hvíta-Rúss­lands og Póllands, hvernig sér­sveitin nýtti sér ferðir þar yfir með flótta­menn til þess að reyna að hafa uppi á óæski­legum löndum hennar sem hefðu flúið land. 

„Við urðum bara að kom­ast til Íslands, sama hvernig við færum að því.“

Tals­maður hennar benti á ástand hæl­is­leit­enda­kerf­is­ins í Póllandi, þar væri ekki aðeins slæmt ástand fyrir flótta­menn heldur lagði hann sér­staka áherslu á hversu erfitt það væri fyrir Alinu að verða sér úti um þá lækn­is­að­stoð sem hún þarfn­að­ist og þörfin myndi halda áfram að vaxa næstu árin.

Hann biðl­aði til þeirra að líta til samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks og veita á þeirri for­sendu und­an­þágu frá Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni. 

Alina hafði óvenju mikið af gögnum sér til halds og trausts sem þýddi enn fremur að hún gat fært betri sönnur á það sem hún var að segja. Hún lagði fram örorku­skír­teini frá Hvíta-Rúss­landi, sjúkra­skrá með grein­ingu á bæði Crohns og Marfan-heil­kennum, nákvæma heilsu­fars­lýs­ingu með upp­lýs­ingum um það hvernig sjúk­dómur hennar hefði leikið hjarta- og æða­kerfi hennar og stað­festu breyt­ingu á horm­óna­kerfi hennar eftir hand­tök­una. Auk þess lagði hún fram stað­fest fað­ernis-og fæð­ing­ar­vott­orð og umsókn um nafna­breyt­ingu hennar. Eins líka boðun í yfir­heyrslu til sak­sókn­ara í Minsk, bréfin sem hún fékk frá yfir­kjör­stjórn­inni og sak­sókn­ara vegna kosn­inga­svindls­ins sem hún varð vitni að og fleira.

„Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Blindra­fé­lagið lýsa yfir miklum áhyggjum á því skiln­ings­leysi og áhuga­leysi Útlend­inga­stofn­unar, sem með­ferð hennar á máli Alinu ber með sér“
Umsögn vegna end­ur­upp­töku

Enn frekar lagði tals­maður hennar fram gögn um það að flótta­mönnum væri ítrekað meinað um vernd í Póllandi og þau send aftur í aðstæður sem þeir flúðu. Hann færði fram gögn um það neyð­ar­á­stand sem skap­ast hefur á landa­mærum Hvíta-Rúss­lands og Póllands, sem pólska þingið hefur sjálft stað­fest sem neyð­ar­á­stand. 

Að lokum benti hann Útlend­inga­stofnun á, og vís­aði í gögn því til stuðn­ings, að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í Póllandi væru oft settir í langt varð­hald, að ekki væri ski­mað fyrir ein­stak­lingum í við­kvæmri stöðu í því ferli og því úrræði væri sér­stak­lega beitt þegar um væri að ræða end­ur­send­ingar á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar eins og í til­felli Alinu. 

Íslensk stjórn­völd höfn­uðu beiðni Alinu um að sér­stakt til­lit væri tekið til hennar máls vegna fötl­unar hennar og því höfn­uðu þeir alfarið að taka málið hennar til með­ferðar. Tals­maður hennar áfrýj­aði ákvörð­un­inni til kæru­nefndar útlend­inga­mála sem neit­aði Alinu í annað sinn.

Í úrskurð­inum er tekið fram að Alinu standi til boða hús­næði, við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­usta og önnur grunn­þjón­usta við kom­una til Póllands og raunar var það mat Útlend­inga­stofn­unar að þeir kvillar sem Alina þjá­ist af „geti ekki talist skyndi­legir eða lífs­hættu­legir og að ekk­ert bendi til þess að með­ferð við þeim sé ekki aðgengi­leg“ í Póllandi. 

Samtök blindra í Póllandi töldu til dæmis „úti­lokað að Alina fái þar þá þjón­ustu sem hún þarf nauð­syn­lega á að halda og segja að henni væri betur borgið í öllum öðrum löndum en Póllandi.“

Þeir blésu á áhyggjur hennar af því að verða fyrir for­dómum og jað­ar­setn­ingu vegna fötl­unar sinnar og upp­runa. Tekið var skýrt fram að í Póllandi væri til staðar lög­regla sem væri „skil­virk og áhrifa­rík“.  Sama eigi við um áhyggjur hennar að verða hneppt í varð­hald og þurfa að eiga mögu­leika á því að end­ur­upp­lifa „hryll­ing­inn“ sem hún varð fyrir í ein­angr­un­ar­fang­els­unum í Minsk.

Stofn­unin metur það sem svo að það sé ekk­ert í gögnum máls­ins sem bendi til þess að hún verði hneppt í varð­hald við komu hennar til lands­ins. 

„Stórkostlegar athugasemdir“ við Útlendingastofnun

Alina hefur, þrátt fyrir orð Útlend­inga­stofn­unar, tölu­verðar áhyggjur af því að verða send aftur til Póllands. Að höfðu sam­ráði við hana hefur tals­maður hennar farið fram á end­ur­upp­töku á mál­inu, sér­stak­lega í ljósi þess að stríð geisar nú í Evrópu og tvær millj­ónir Úkra­ínu­manna hafa sótt um hæli í Póllandi, sem enn þenji þol­mörk þess kerfis sem var í hættu statt fyrir. 

Lands­sam­tök Þroska­hjálpar og Blindra­fé­lagið hafa sent inn umsögn vegna end­ur­upp­töku­beiðnar Alinu og gera sam­tökin „stór­kost­legar athuga­semdir“ við með­ferð máls­ins og nið­ur­stöð­una. Samtökin segja hana „aug­ljós­lega fatl­aða“ í skiln­ingi laga og því eigi und­an­þágu­á­kvæði Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar við í hennar til­felli.

Alina eigi því að fá að vera á Íslandi þar sem hún getur sótt sér þá heil­brigð­is­þjón­ustu sem hún þarf. 

Þá öfl­uðu bæði sam­tökin einnig upp­lýs­inga hjá erlendum syst­ur­sam­tökum og sem bentu til þess að fötl­uðu flótta­fólki sé vissu­lega mis­munað á grund­velli í Póllandi, auk þess sem álag á flótta­manna­kerfið þar sé marg­falt meira nú, vegna flótta­manna­straums frá Úkraínu. Samtök blindra í Póllandi töldu til dæmis „úti­lokað að Alina fái þar þá þjón­ustu sem hún þarf nauð­syn­lega á að halda og segja að henni væri betur borgið í öllum öðrum löndum en Póllandi.“

„Að mínu mati er of sjald­gæft að það sé raun­veru­lega horft á aðstæður fólks þegar verið er að meta hvort það geti verið ástæða til að taka málið til efn­is­legrar með­ferðar.“
Jón Sig­urðs­son
tals­maður Alinu fyrir hönd Rauða kross­ins

Samtökin saka Útlend­inga­stofnun um að hafa ekki gert ítar­legt mat á fötlun hennar og veik­indum. „Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Blindra­fé­lagið lýsa yfir miklum áhyggjum á því skiln­ings­leysi og áhuga­leysi Útlend­inga­stofn­unar, sem með­ferð hennar á máli Alinu ber með sér, á því að taka það til­lit til fötl­unar og veik­inda umsækj­anda um alþjóð­lega vernd sem alþjóð­legir mann­rétt­inda­samn­ingar, sem íslensk stjórn­völd hafa und­ir­geng­ist, krefj­ast.“ 

Von um réttlæti að engu

Alina seg­ist skilja rétt stjórn­valda til að neita henni um vernd og að hún hafi séð fyrstu neit­un­ina fyrir en seinni neit­unin hafi hins vegar komið henni meira á óvart og verið sár­ari reynsla. Hún hafi búist við því að í seinna skiptið yrði ítar­legar farið yfir mál hennar og öll þau gögn sem hún skil­aði inn. 

„Ég skil að ég get fengið neitun en þetta var von, von um að draum­ur­inn rætt­ist, von um rétt­læti og að mér yrði leyft að vera hér. Ég fékk að vita að hér væri hægt að laga augun mín, að hér gæti ég fengið hjálp, þetta var svo sárt að fá nei,“ segir hún og gerir hlé á máli sínu. „Ég er mjög hrædd um mína heilsu og svo hófst stríðið. Eftir það hugs­aði ég, hvert get ég farið? Hvernig get ég farið til Póllands, þar sem nú eru tvær millj­ónir flótta­fólks? Ég er hrædd. Það er hættu­legt að senda mig til Póllands,“ segir hún en vill fá að ítreka aftur að hún skilji að rík­is­stjórnin geti neitað henni um vernd þar sem hún kom hingað á pól­skri vega­bréfs­á­ritun. „Ég vona bara að málið mitt verði tekið upp aftur,“ segir Alina að lokum áður en hún stendur upp, tekur dótið sitt saman og gengur út úr húsi og út í óviss­una. 

Löglega má vísa Alinu úr landi

Aðspurður um það hvar mál Alinu standi eins og staðan er núna, segir Jón Sig­urðs­son, tals­maður Alinu á vegum Rauða kross­ins, að hún hafi fengið end­an­lega nei­kvæða nið­ur­stöðu á stjórn­sýslu­stigi.

Tals­maður AlinuJón Sig­urðs­son, tals­maður Alinu á vegum Rauða kross Íslands, segir það óásætt­an­legt að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd finni sig knúna til að opin­bera sig í fjöl­miðlum til að eiga mögu­leika á öruggu lífi.

„Sem þýðir það þá að lög­lega má vísa henni aftur til Póllands. Ég hef hins vegar farið fram á end­ur­upp­töku á mál­inu hennar, meðal ann­ars í ljósi breyttra aðstæðna í Póllandi vegna flótta­manna­straums­ins frá Úkraínu,“ segir hann.  

„End­ur­upp­töku­beiðni frestar engum rétt­ar­á­hrifum þannig að lög­lega gæti lög­reglan í raun og veru hvenær sem er, að því gefnu að hún fái senda beiðni þess efnis frá Útlend­inga­stofnun, vísað henni úr landi. Það er hins vegar ólík­legt vegna stríðs­ins í Úkraínu en eftir að það hófst hefur engum verið vísað úr landi. Það er því ólík­legt að henni verði vísað úr landi en ef það yrði gert væri það ekki ólög­legt.“

Jón segir að Útlend­inga­stofnun taki ekki full­nægj­andi til­lit til „við­kvæmrar stöðu fólks“. „Það er eitt­hvað sem mætti gera betur hjá bæði Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála, að það sé meðal ann­ars horft aðeins öðrum augum á hvað það þýðir fyrir fólk að vera haldið ein­hverjum alvar­legum heilsu­kvillum eða fötlun, að það sé raun­veru­lega metið í við­kvæmri stöðu,“ segir hann og bætir við:

„Að mínu mati er of sjald­gæft að það sé raun­veru­lega horft á aðstæður fólks þegar verið er að meta hvort það geti verið ástæða til að taka málið til efn­is­legrar með­ferðar. “

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár