Endanlega staðfest að ríkið mátti ekki skerða sérstaka framfærsluuppbót öryrkja

Hæsti­réttur stað­festi í dag fyrri nið­ur­stöðu bæði Lands­réttar og hér­aðs­dóms um að rík­inu hefði verið óheim­ilt að skerða sér­staka fram­færslu­upp­bót öryrkja vegna búsetu þeirra ann­ars­staðar en á Íslandi áður en örorku­mat fór fram.

Endanlega staðfest að ríkið mátti ekki skerða sérstaka framfærsluuppbót öryrkja
For­mað­ur­inn Þuríður Harpa, for­maður ÖBÍ, seg­ist ánægð með nið­ur­stöð­una en hún furðar sig á ákvörðun ráð­herra að fara með málið til Hæsta­réttar eftir skýra nið­ur­stöðu á tveimur dóm­stigum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Búsetu­skerð­ingar örorku­líf­eyris er ólög­mætar. Það hefur nú verið stað­fest af Hæsta­rétti en áður höfðu bæði hér­aðs­dómur og Lands­réttur kom­ist að sömu nið­ur­stöðu. Ríkið hafði freistað þess að fá nið­ur­stöð­unni snúið fyrir Hæsta­rétti en hafði ekki erindi sem erf­iði. Málið snýst um greiðslur sem tekju­lægsti hópur örorku­líf­eyr­is­þega nýtur, sér­staka fram­færslu­upp­bót. Til að eiga rétt á henni þarf ein­stak­lingur að vera undir fram­færslu­við­miði laga.

„Þetta er mjög ánægju­leg og gleði­leg nið­ur­staða sem kemur til með að bæta hag þús­unda ein­stak­linga sem hafa allt frá því að þessi ólög­lega fram­kvæmd tók gildi árið 2009 lifað undir fátækt­ar­mörkum á Íslandi. Ég fagna þessu mjög og hvet ráð­herra að leið­rétta nú alveg aftur til 2009,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, sem bendir á að málið hafi verið höfðað árið 2016 og hefur dreg­ist um í dóms­kerf­inu í sex ár.

„Þetta er sá hópur sem lang verst stendur í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu