Utanríkisráðherra svarar fyrir Moshensky

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra verður til svara fyrir Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd alþingis í dag. Þar svarar ráð­herr­ann fyrir sam­skipti Íslands og ESB vegna kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur nú í þrí­gang fjallað um sam­skipti Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins, vegna frétta Stund­ar­innar af afskiptum íslenskra stjórn­valda af við­skipta­þving­unum á hendur kjör­ræð­is­mann­inum í Hvíta-Rúss­landi.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra verður til svara fyrir Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd alþingis í dag á fjórða fund­inum sem hald­inn er um málið. Þar svarar ráð­herr­ann fyrir sam­skipti Íslands og ESB vegna kjör­ræð­is­manns Íslands í Hvíta-Rúss­landi.

Fund­ur­inn hefst klukkan 11:15.

Fund­irnir hafa hingað til verið haldnir fyrir luktum dyrum og trún­aðar kraf­ist um efni þeirra og gögn sem Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur afhent. 

Stundin hefur sömu­leiðis óskað eftir aðgengi að frek­ari gögnum. 

Utan­rík­is­ráð­herra og emb­ætt­is­menn í ráðu­neyti hennar hafa neitað því að ráðu­neytið hafi kraf­ist þess að Evr­ópus­bam­bandið beiti Aleksander Mos­hen­sky ekki við­skipta­þving­unum. Ráðu­neytið hafi ein­ungis spurst fyrir um mögu­legar við­skipta­þving­anir á hendur honum.

Fjöldi við­mæl­enda Stund­ar­innar segja aðra sögu. Að Ísland hafi þá og áður beitt sér fyrir því að losa Mos­hen­sky undan við­skipta­þving­unum ESB. 

Aleksander Mos­hen­sky hefur verið upp­nefndur „Veski Lukashenko" vegna sam­bands síns og stuðn­ings við ein­ræð­is­herr­ann Aleksander Lukashenko. Mos­hen­sky hefur stutt Lukashenko opin­ber­lega og meðal ann­ars verið sér­stakur full­trúi for­seta­fram­boðs hans. 

Lukashenko hefur þar að auki ítrekað skipað Mos­hen­sky í nefndir og ráð hins opin­bera. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar
FréttirÓlígarkinn okkar

Pól­verjar æfir vegna ólíg­ar­kans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­mála­menn brugð­ust í vik­unni harka­lega við fréttum af því að ólíg­arki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita við­skipta­þving­unum, vegna tengsla hans við ein­ræð­is­stjórn­ina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræð­is­mann­inn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­full­trúi Belarús. Óásætt­an­legt er að hann sé full­trúi Íslands, segir sér­fræð­ingur.
Úkraínskt orkufyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffufélag í Smáíbúðahverfinu
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
Tugir milljarða í skattaskjól í gegnum Smáíbúðahverfið
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.
Gagnrýndi stjórnvöld fyrir hræsni í málefnum Belarús
FréttirÓlígarkinn okkar

Gagn­rýndi stjórn­völd fyrir hræsni í mál­efnum Belarús

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona Pírata sak­aði íslensk stjórn­völd og utan­rík­is­ráð­herra um hræsni, í umræðum um bar­áttu lýð­ræð­is­sinna í Belarús á Evr­ópu­ráðs­þing­inu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segj­ast styðja stjórn­and­stöðu lands­ins, á sama tíma og þeir hefðu náinn sam­verka­mann ein­ræð­is­stjórn­ar­innar í emb­ætti kjör­ræð­is­manns.
Ólígarkinn okkar fastagestur í einkaþotum einræðisherrans
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólíg­ar­k­inn okkar fasta­gestur í einka­þotum ein­ræð­is­herr­ans

Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­maður Íslands í Hvíta-Rúss­landi, hefur flogið hátt í þrjá­tíu sinnum með einka­þotum ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko á síð­ast­liðnum ára­tug, sam­kvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nán­ustu banda­menn Aleksand­ers Lukashenko nota þot­urnar. Bæði þot­urnar og flestir far­þega hennar hafa verið sett í ferða­bann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár