Talibanar loka skólum fyrir afganskar stúlkur klukkutímum eftir að þeir opnuðu aftur

Við­snún­ing­ur­inn af hálfu tali­bana þýðir að kven­kyns nem­endur ofar en sjötta bekk fá ekki að sitja tíma.

Talibanar loka skólum fyrir afganskar stúlkur klukkutímum eftir að þeir opnuðu aftur

Stjórn tali­bana í Afganistan til­kynnti í lok mars að gagn­fræða­skólum stúlkna yrði lokað, klukku­stundum eftir að þeir voru end­ur­opn­aðir í fyrsta skipti í nærri sjö mán­uði.

Þessi við­snún­ingur í ákvarð­ana­töku tali­bana þýðir að kven­kyns nem­endur ofar en sjötta bekk munu ekki fá að mæta í skól­ann.

Í til­kynn­ingu frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu stóð að nú yrði öllum skólum fyrir stúlkur lokað þar til önnur áætlun væri komin upp í sam­ræmi við íslömsk lög og afganska menn­ingu sam­kvæmt Bhaktar, rík­is­frétta­miðl­inum. 

„Við upp­lýsum alla gagn­fræða­skóla, þá skóla sem að hafa kven­kyns nem­endur ofar en sjötta bekk, að þeim verður lokað þar til næsta skipun berst,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

„Já, það er satt,“ sagði tals­maður Ttali­bana, Inamullah Sam­angani, við AFP frétta­stof­una þegar hún bað hann um að stað­festa til­kynn­ingar um að stúlkum hefði verið skipað að fara heim. 

Hann vildi ekki útskýra ástæður þess, á meðan tals­maður mennta­mála­ráðu­neyt­iss­ins, Aziz Ahmad Rayan, sagði: …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár