Frosti kominn í leyfi frá Stöð 2, stjórn SÁÁ og hefur vikið úr stjórn Blaðamannafélagsins

Frosti Logason, sjón­varps­mað­ur á Stöð 2 er kom­inn í leyfi frá störfum þar og fram­kvæmda­stjórn SÁÁ. Þá varð hann síð­degis við ósk stjórnar Blaða­manna­fé­lags Íslands um að víkja úr stjórn­inni. Frosti gekkst í gær við því að hafa hót­að að birta nekt­ar­mynd­ir af fyrr­ver­andi kær­ustu, Eddu Pét­urs­dótt­ur eftir að hún steig fram í þætt­in­um Eig­in Kon­ur.

Frosti kominn í leyfi frá Stöð 2, stjórn SÁÁ og hefur vikið úr stjórn Blaðamannafélagsins

Frosti Logason, dag­skrár­gerð­ar­maður í þætt­inum Íslandi í dag óskaði sjálfur eftir því að fara í leyfi frá störfum. Mbl greinir frá þessu. Þór­hallur Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri Miðla hjá Sýn stað­festir við Stundina að Frosti sé kom­inn í ótíma­bundið leyfi frá störfum. Þór­hallur seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um fram­haldið. 

Frosti hefur einnig verið í níu manna fram­kvæmda­stjórn SÁÁ en er kom­inn í leyfi þar líka að sögn Önnu Hildar Guð­munds­dóttur for­manns SÁÁ. Hún segir að Frosti hafi haft sam­band við hana í morgun og óskað eftir að fara í leyfi frá stjórn­ar­störfum fyrir sam­tökin.  

Frosti var þar til síð­degis í stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands en Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins sagði í sam­tali við Stundina að stjórnin hefði rætt saman í dag og kom­ist að ein­róma nið­ur­stöðu um málið. ,,Stjórnin var sam­mála um að óska eftir því við Frosta að hann viki úr stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins og hann varð við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Öfgar Sóley og Edda takk.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár