Togaraflotinn losar eins og flugflotinn

Tog­ara­floti heims­ins losar um eitt þús­und milljón tonn af koltví­sýr­ingi út í and­rúms­loftið árlega, sem er meira en flug­floti heims­ins gerir. Íslend­ingar eru á meðal þeirra þjóða sem stunda veiðar með stór­virkum botn­dregnum veið­ar­færum.

Togaraflotinn losar eins og flugflotinn

Nýleg rann­sókn sem hópur alþjóð­legra vís­inda­manna gerði sýnir að kolefn­is­fót­spor fisks sem veiddur er í botn­troll sé mun stærra en áður var talið. Fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri telur það umhugs­un­ar­efni hversu lítið sé rætt um áhrif stór­virkra botn­vöpu­veiða hér við land, sem hafi auk­ist á sama tíma og verið sé að þrengja að þeim víða um heim. 

„Íslend­ingar eru meðal tíu fremstu fisk­veiði­þjóða heims­ins og hér eru veiðar stund­aðar með stór­virk­ari botn­dregnum veið­ar­færum en víð­ast ann­ars staðar.“
Magnús Jónsson
fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri

Samkvæmt rann­sókn­inni var fyrra mat á kolefn­islosun tog­ara­flot­ans fyrst og fremst byggt á þeirri olíu sem tog­ara­floti heims­ins brenndi við veiðar sínar. Ekki var tekið til­lit til þess að við veið­arnar, sem fela í sér að troll eru dregin eftir hafs­botn­inum, rót­ast upp efsta lag hafs­botns­ins. Þar er að finna stærsta kolefn­is­forða­búr jarð­ar­innar sem rask troll­veið­anna losar mikið magn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Kristjánsson skrifaði
    Hér er sagt að togveiðar losi 50 tonn af CO2 fyrir hvert veitt tonn af fiski með því að róta upp botninum. - Settist enginn niður og reiknaði?
    Losun Íslands var 4.722 kt (CO2-ígildi) árið 2019 (með ETS, án LULUCF, án alþjóðaflugs/ alþjóðasiglinga), skv. Umhverfisstofnun.

    Þannig að losar 0,4 megatonna botnfiskafli (400 þús tonn) 20 megatonn af CO2, eða ferfalt magn mv. heildarlosun Íslendinga skv. ofangreindu. Það fær nú bara alls ekki staðist, auk þess sem varpan er ekki að grafa sig niður í botnsetið.
    0
  • Guðlaugur Jónasson skrifaði
    Rúff hefur nú alltaf tekið loftslagsmál vel fyrir, ef það er gróðursett ein trjáplanta þá eru þeir mættir á svæðið, en hvar eru þeir núna ????
    1
  • Guðlaugur Jónasson skrifaði
    Já sæll, eru ekki allir á Rafmagnsbíl ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár