Um nokkurra ára skeið hafa einstaklingar og landeigendur í Norðurárdal í Borgarfirði þurft að verjast ásókn og ásælni einkafyrirtækja og erlendra bakhjarla í bújarðir og landsvæði undir vindorkuiðnað upp eftir öllum dal. Markmið þessara verkefna er að þóknast örfáum einstaklingum og erlendum stórfyrirtækjum sem vilja hasla sér völl á íslenskum orkumarkaði og fljóta á einkavæðingaröldunni á meðan stjórnvöld sofa – einkaaðilar sem nú vilja grípa gæs á meðan enn liggur ekki fyrir heildaráætlun fyrir vindorkuvirkjanir og staðsetningar þeirra á landsvísu. Á meðan enn hefur ekki tekist að skapa lagaramma fyrir einkavæðingu orkuiðnaðarins í samræmi við aðgengi að fyrirliggjandi landsdreifikerfi í almannaeigu. Nú síðast er það Múlavirkjun í landi Hvamms en þar eru fyrirhugaðar þrettán 200 metra háar vindmyllur til að byrja með.
Náttúran
Norðurárdalur er að stórum hluta á náttúruminjaskrá. Grábrókargígar eru friðlýst náttúruvætti. Grábrókarhraun og Hreðavatn teljast til náttúruminja, hraunið norðan hreppamarka allt norður að Bjarnadalsá og Norðurá sjálf ásamt Hraunsey og fossinum Glanna eru náttúruminjar. Áin er heimsþekkt perla allt frá upptökum á Holtavörðuheiði, enda ein fegursta laxveiðiá Evrópu sem enn varðveitir hinn einstaka villta lax úr Norður-Atlantshafi. Náttúrulegar hrygningarstöðvar hans eru ofarlega á dalnum.
Þá er fjallafegurð Norðurárdals í raun einkennismynd og ímynd Vesturlands þar sem Hvassafell, Grjótháls, Litla Baula, Hvammsmúli og dýrmætar villtar heiðar ramma inn Baulutind sem gnæfir yfir Grábrókarhrauni á náttúruminjaskrá. Allt Hreðavatn telst einnig til náttúruminja og suðurhlíðar Setmúla á milli Kiðár og Brekkuár. Brekkuárgil, Hestabrekka og Þrimilsdalur eru einstök svæði sökum setlaga og heildarmynd Norðurárdals er sterk náttúruímynd Borgarfjarðarhéraðs.
Þá er ótalið heiðalandið upp af afréttarlandi Borgarfjarðar til allra átta. Það er mikilvægt á heimsvísu. Þá eru auðvitað einnig ótalin öll þau svæði dalsins sem greinilega er nauðsynlegt að koma á náttúruminjaskrá til framtíðar nú þegar ljóst er að herjað er á þessa náttúruperlu úr öllum áttum. Flest Evrópulönd hafa misst víðerni heiðalandsins undir mannvirki. Samfelldar heiðar í Evrópu heyra nær sögunni til. Heiðalöndin víðfeðmu á Íslandi geyma náttúru- og dýralíf sem er einstakt á veraldarvísu og Borgfirðingar hafa þar stóru verndarhlutverki að gegna fyrir heiminn. Og ef verðmiði á að vera á öllu og mæla þarf land eftir gjaldskrá þá má benda á að erlendir ferðamenn leita í auknum mæli til Íslands til að upplifa heiðalandið, víðernið ósnortna, lyngið, þúfurnar, stöðuvötnin á hálsum og heiðum til að njóta og stunda göngur og fjölbreytta útivist. Sú framtíðartónlist mun bara verða háværari.
„Aldrei hafa þessi sömu yfirvöld kannað drauma, vonir og þrár þeirra sem hafa staðið vörð um dalinn“
Norðurárdalur státar líka af einstökum vötnum: fögrum heiðavötnum í samfelldri festi niður hálsa eins og Grjótháls. Nægir að nefna Fiskivatn á hálsinum ofan við skógræktarbæina Krók og Sveinatungu. Vindorkuver sem Qair vill reisa í flasi þessara skógræktarjarða mun einnig breyta landnáms-birkiskóginum í Hvammsmúla í iðnaðarsvæði. Að setja vindorkuiðnaðarsvæði á þennan stað jafnast á við að setja upp viðlíka mannvirki á barm Almannagjár á sjálfum Þingvöllum.
Mannlíf og fólk í dalnum
Yfirmenn orkumála í landinu hafa látið hafa eftir sér að hvergi sé hægt að setja niður vindorkuvirkjanir í byggð nema með sátt og samþykki íbúanna sem þar eru fyrir. Að auki hefur komið fram í yfirlýsingum frá þeim að nóg rými sé fyrir vindorkuvöxt á iðnaðarsvæðum Landsvirkjunar við Sigöldu og Blönduvirkjun. Þær virkjanir eru hins vegar í eigu almennings og henta því illa einkafyrirtækjum sem þessi slagur er stöðugt við niður allan Norðurárdal og auðvitað víðar í sveitum lands. Aldrei hafa sveitarstjórnaryfirvöld í Borgarbyggð kannað hug íbúa og landeigenda í Norðurárdal svo fulltrúar fólksins megi vinna eftir þeirra óskum og þörfum. Aldrei hafa þessi sömu yfirvöld kannað drauma, vonir og þrár þeirra sem hafa staðið vörð um dalinn um áratuga skeið, alið þar upp börn og ræktað land mann fram af manni – kannað þeirra áform og áætlanir fyrir dalinn.
Og hvað vill fólkið í dalnum gera, ef einhver skyldi spyrja? Fólkið sem á landið, fólkið sem hefur ræktað landið og annast það, lifað og hrærst í dalnum fagra hefur margvísleg og fjölbreytt áform, sem sum hver hefur tekið áratugi að undirbyggja. Einhverjir rækta skóglendi, aðrir vernda land og loka sárum eftir aldagamla beitaránauð. Til eru þeir sem vilja rækta matjurtir í stórum stíl og hafa um það áætlanir. Margir hyggja á náttúrutengda ferðaþjónustu með heiðalandið í huga og hafa undirbúið þá atvinnustarfsemi lengi með skógrækt og alls kyns virðisauka. Aðrir eru með hefðbundinn búskap. Einhverjir skipuleggja hesta- og gönguferðir inn í framtíðina á milli sveita og yfir einstaka heiðalandið. Heilsuþjónusta, menningartengd þjónusta, menntun og náttúruupplifun. Og þá eru það þeir sem vaka yfir ánni dýrmætu, laxveiðiá á heimsmælikvaða. Þeir þekkja vel hina einstöku upplifun við alla hyli árinnar, frá ármótum og upp á heiði. Nægir að nefna þar Krókshyli Norðurár, víðfræga veiðistaði, sem standa beint á móti fyrirhuguðum vindorkuvirkjunum. Verðmætahrun verður í þeim hluta árinnar við að gera þennan hluta dalsins að orkuiðnaðarsvæði. Það er skrásett og rannsakað áratugina aftur í tímann hve gjöfulir þessir hyljir hafa verið, ekki einasta hvað varðar fiska á land heldur einnig í ánægjustundum viðskiptavina sem koma ár eftir ár og borga veiðileyfi sín til að fá að njóta í kyrrð og náttúrufegurð dalsins en ekki undir virkjanamöstrum á iðnaðarsvæði.
Aðkeyptar umsagnir
Það bar vott um óvönduð vinnubrögð og eða þekkingarskort þegar aðkeyptu verkfræðingarnir frá Eflu tilgreindu á kynningarfundi fyrir viðskiptavin sinn Qair fyrirbæri sem þeir kölluðu myndatökustaði. Staðsetning þessara svokölluðu myndatökustaða sem Efla valdi fyir viðskiptavininn Qair var í hæsta máta hlutdræg. Myndatökustaðirnir sem Efla kaus að kalla svo voru sjónarhorn valin víða niður dal og í næstu sveitum til að sýna dæmi um hvaðan iðnaðar- og vindorkusvæði Hvammsmúla myndu sjást. Sýning þessi var haldin fyrir íbúa og landeigendur til að fegra og smækka hið risavaxna vindorkuver sem Qair, viðskiptavinur Eflu, vill reisa í Hvammsmúla. Sem dæmi um hlutdrægni má nefna að á meðan Efluteymið lagði á sig að fara niður að Kleppjárnsreykjum í annarri sveit til að sýna hvernig Hvammsvirkjun liti út þaðan – þá höfðu þessir aðkeyptu umsagnaraðilar ekki fyrir því að fara yfir þjóðveginn andspænis Hvammsvirkjun til þess að sýna myndatökustaðinn Krók og þá ásýnd sem myndi blasa við skógræktarjörðunum Króki og Sveinatungu svo ekki sé minnst á laxveiðiána Norðurá, spölkorn frá iðnaðarsvæðinu fyrirhugaða.
Og af því að verkfræðingarnir frá Eflu, landeigendur í Hvammi og vindmyllubraskarar Qair þekkja ekki hina einstöku veiðistaði á efra svæði Norðurár, vita ekki hvað veiðistaðirnir sem munu standa undir risamöstrum virkjunnar þeirra heita og hafa heitið í gegnum aldirnar, þá er rétt að þau örnefni fylgi hér: Laxalá, Neðri-Ferjuhylur, Efri-Ferjuhylur, Þvottahylur, Litlufossar, Poki, Króksfoss, Gljúfrin og Klapparhylur og áfram mætti telja upp í heiðina og einnig niður dalinn fagra. Hvergi í keyptu umsögninni frá Eflu eru teiknuð upp tengikerfi fyrir raflínur inn á landskerfi almennings frá vindmyllunum stóru. Það eru viðbótar risamannvirki sem koma væntanlega eftir á.
Lýðræðishalli
Virkjanir sem tilgreindar eru á vef Orkustofnunar og innan Rammaáætlunar eru þar líklega margar í mikilli óþökk landeigenda. Þar er til dæmis svokölluð Hálsvirkjun á vegum Zephyr, þrettán síðna skýrsla um það hvernig hægt er að sölsa undir sig annarra manna lönd fyrir eigin hagsmuni. Lukkuriddarar fengu að kanna virkjanakosti í Krókslandi, gerðu svo um það skýrslu og lögðu fram og landeigendur höfnuðu svo þessum virkjanahugmyndum alfarið og þar við sat. Skýrslan fór samt áfram og var lögð fram eins og raunhæf hugmynd að virkjanakosti á vef Orkustofnunar og sem tillaga í Rammaáætlun. Orkustofnun er í eigu allrar þjóðarinnar og þar með almennings, okkar allra. Hún er ekki í eigu Qair, Zephyr og annarra erlendra einkafyrirtækja með íslenska fyrirgreiðslumenn. Þó fást þær upplýsingar út úr stofnuninni að hlutverk OS sé að samhæfa aðgerðir á milli einkafyrirtækja og ríkisvalds. Þar með er hagur einstaklinga fyrir borð borinn og landeigendur lesa um áform um stórvirkjun á sínu eignarlandi á vef OS.
„Samfélagsstofnanir eiga að gæta hagsmuna einstaklinga og landeigenda líka, ekki bara stórfyrirtækja í sókn“
Þarna er mikill lýðræðishalli sem endurspeglast svo aftur í áformum í Hvammsmúla þar sem einstaklingar þurfa að taka saman höndum til að verjast einkafyrirtækjum í sveitarinnrás með verkfræðistofur og stjórnvald í vinnu. Stutt er síðan annað fyrirtæki hugðist reisa vindorkuvirkjun neðar á Grjóthálsi. Íbúar dalsins þuftu að sameinast til að verjast þeim áformum rétt eins og nú þegar næsta fyrirtæki fer af stað nokkrum kílómetrum ofar í þessum fallega dal í alfaraleið sem geymir náttúruímynd Borgarfjarðar. Það er lýðræðishalli þegar íbúar þurfa aftur og aftur að verjast sama áganginum, rétt eins og verið sé að þreyta lax og landa honum í algjörri uppgjöf. Einstaklingar, landeigendur og hagsmunaaðilar víðs vegar um Norðurárdal verða þráfalt fyrir yfirgangi og ásælni og reyna að verjast af mismiklu þreki. Stjórnvaldið, svo sem Orkustofnun og sveitarstjórnir, vinna með einkafyrirtækjum og framkvæmdavaldi. Þarna er regluverkið rammskakkt. Samfélagsstofnanir eiga að gæta hagsmuna einstaklinga og landeigenda líka, ekki bara stórfyrirtækja í sókn. Auk þess sem löggjafarvaldið verður að fara í saumana á þessum skipulagsmálum einkavirkjana áður en farið er um sveitir til að buga og misbjóða heimafólki og bíða þess svo að tengja sig við dreifikerfi í almannaeigu.
Skógræktarjörðin Krókur
Í þrjátíu ár hefur skógrækt verið stunduð í Króki og er jörðin um þúsund hektarar. Þegar skógarbændur komu þar fyrst að árið 1987 var landið örfoka og ofbeitt. Upphófst öflugt ræktunarstarf í samvinnu við Vesturlandsskóga og á 35 árum hefur tekist að rækta fagran skóg á stóru svæði undir heiðinni auk þess að loka landi, vernda land og græða. Markmið þessa fyrirtækis hefur ávallt verið að skapa skilyrði fyrir næstu kynslóð, búa til tækifæri sem vinna með náttúrunni en ekki á móti henni, skapa komandi kynslóðum skilyrði til áframhaldandi ræktunar jafnt fyrir náttúru sem manneskjur, búa til tækifæri en ekki eyða þeim. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt, síður en svo. Króksbændur hafa þurft að verja sína búgrein og sitt ræktunarstarf fyrir miklum ágangi sauðfjár og staðið í stöðugum málaferlum við sveitarfélag sem ágirnist landið fyrir hönd sauðfjárbænda. Króksbændur vinna nú að því með Landsneti að finna leið fyrir Holtavörðulínu í gegnum skógræktarlandið og nú síðustu ár hafa vindorkuriddarar herjað á landeigendur með beinum og óbeinum hætti. Það er mál að linni. Það eina sem skógarbændum undir heiðinni hefur gengið til undanfarna áratugi er að rækta landið sitt fyrir næstu kynslóð að taka við.
„Samfélag sem keyrir á græðgi vinnur aldrei fyrir næstu kynslóð en aðeins fyrir augnablikið og skyndigróðann“
Samfélag sem keyrir á græðgi vinnur aldrei fyrir næstu kynslóð en aðeins fyrir augnablikið og skyndigróðann. Kosningar eru fram undan til sveitarstjórna og bráðnauðsynlegt að hver einasti frambjóðandi geri grein fyrir sinni framtíðarsýn í þessum málum. Atkvæði hljóta svo að falla eftir því.
Það er skýlaus krafa að fallið verði frá áformum um að Norðurárdalur verði iðnaðarsvæði fyrir orkuver. Stefnumótun og áætlanir um stórtækar breytingar á landsvæðum undir virkjanir verða að fara fram hjá löggjafanum með fulltyngi orkufyrirtækja í almannaeigu en ekki heima í héruðum við eldhúsborð misþrekmikilla einstaklinga á móti auðkýfingum og einkafyrirtækjum úti í heimi.
Norðurárdalur er ekki virkjanavöllur. Hann er náttúruperla á heimsvísu og átakanlegt að þurfa að taka þetta samtal árið 2022.
Sem þíðir bara haera raforkuverð eins og allt fiskverð sem er miðað við heimsmarkasverð enn ekki okkar eigið verð
Tilgangur með hjálp siblyndra islandinga graðugra jaðrar við landráð .
Við eigum aldrei að hlepa fasistum í okkar innviði .
Reinsla okkar af fiskvaeiði stjórunar málum sem eru komir í hendur gráðugra erlendra siðblyndingja og fasista er nóg til þess að íslanskur alþíðumaður seigir hingað og ekki lengra .
Þú Kristín Helga ert góður málvari okkar íslendinga og það er hlustað á þig .eitt vinsaelasta skáld okkar