Íslendingar losa mest allra Norðurlandaþjóða af CO2

Óbirtar niður­stöður viða­mikillar rann­sóknar á kolefnis­fótspori íbúa Norður­landa sýna að Íslendingar eru neyslu­frekasta þjóðin og fótspor íslensku þjóðarinnar því stærst. Á alþjóða­vísu er neysla Íslendinga tvisvar til þrisvar sinnum meiri en annarra þjóða. Prófessor í umhverfis - og bygginga­verkfræði segir lífsstíl ríkustu þjóða heims dýru verði keyptur.

Auðugustu löndin þar á meðal Norðurlöndin losa mest af CO2. Kolefnisspor þeirra er fyrst og fremst neysludrifið. ,,Lífsstíll þeirra er dýru verði keyptur,“ segir prófessor við Umhverfis-og byggingaverkfræðideild HÍ.
Auð­ug­ustu löndin þar á meðal Norð­ur­löndin losa mest af CO2. Kolefn­is­spor þeirra er fyrst og fremst neyslu­drifið. ,,Lífs­stíll þeirra er dýru verði keyptur,“ segir pró­fessor við Umhverfis-og bygg­inga­verk­fræði­deild HÍ. Mynd: Shutterstock

„Það eru afar litlar líkur á að við náum að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráðum eins og staðan er núna. Við erum komin ískyggilega nærri þeim mörkum að ekki verði aftur snúið. Ef við drögum ekki mun hraðar en hingað til úr neyslu sem leysir úr læðingi gróðurhúsa­loft­tegundir sem valda loftslags­breytingum verður ekki hægt að treysta á að tækni­lausnir geti bjargað okkur frá hamfara­hlýnun,“ segir Jukka Heinonen, prófessor við umhverfis- og bygginga­verkfræði­deild Háskóla Íslands, en hann fer fyrir hópi fimmtán vísinda­manna sem hafa undan­farna mánuði safnað upplýsingum um kolefnis­fótspor Íslendinga, Norðmanna, Dana, Finna og Svía.

Lífs­stíll auð­ugra þjóða dýru verði keyptur Jukka Heinonen, pró­fessor við umhverfis- og bygg­inga­verk­fræði­deild Háskóla Íslands, segir breyt­ingu á lífs­stíl íbúa rík­ustu sam­fé­lag­anna grund­vall­ar­at­riði í bar­átt­unni við hlýnun jarðar.

Fyrstu niður­stöður rann­sóknarinnar verða birtar í sumar, í síðasta lagi næsta haust, segir Jukka Heinonen, sem gaf Stundinni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár