Útgerðin ver sérsamninga með kjafti og klóm

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hef­ur slopp­ið við að greiða hund­ruð millj­óna króna í úr­vinnslu­gjald vegna sér­samn­ings við stjórn­völd. Stór­út­gerðin er ein um að njóta slíkra fríð­inda og ver þau af hörku. Heimtuðu að nei­kvæð umsögn Umhverf­is­stofn­unar yrði dregin til baka og krefj­ast upp­lýs­inga um sam­töl starfs­manna Umhverf­is­stofn­unar.

Útgerðin ver sérsamninga með kjafti og klóm

Á síð­asta ári lagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, fram frum­varp um hringrás­ar­hag­kerfið. Það frum­varp varð svo seinna að lögum. Samkvæmt þeim er lagt úrvinnslu­gjald á lang­flestar fram­leiddar og inn­fluttar umbúðir. Gjaldið á síðan að standa straum af end­ur­vinnslu eða urðun umbúð­anna.

Fyr­ir­komu­lagið er ekki nýtt. En með nýju lög­unum voru auknar kröfur lagðar á fram­leið­endur og inn­flytj­endur ýmissa UMBÚÐA og vöru­teg­unda, frá því sem áður var. Ein teg­und vara er þó eftir sem áður und­an­þegin úrvinnslu­gjaldi, með sér­á­kvæði í lög­unum: Veið­ar­færi.

Íslenska stór­út­gerðin sparar sér þannig hund­ruð millj­óna króna sem hún ann­ars myndi greiða fyrir end­ur­vinnslu, end­ur­nýt­ingu eða urðun veið­ar­færa eftir að notkun þeirra er hætt. Ólíkt öllum öðrum sem lögin ná til.

Hags­muna­sam­tök sjáv­ar­út­vegs­ins hafa tryggt sér nær óbreyttan sér­samn­ing, byggðan á gömlu óupp­segj­an­legu sam­komu­lagi við yfir­völd. 

Sam­komu­lagi sem þó hefur verið þver­brotið, eins og Stundin hefur sann­reynt.

Sjávarútvegurinn nær ekki markmiðum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    https://i.redd.it/itm54bglriy81.jpg
    0
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Nú veit maður af hverju Samherjaútgerðirnar sýndu myndir af endurnýtingunni sinni í fréttum í vikunni - Ekkert nema svik og lygi í áratugi
    2
  • VÁ
    Vigfús Ásbjörnsson skrifaði
    Frekjan,yfirgangurinn,hræsnin og vanþakklætið í SFS er hreint út sagt rosalegt. Innræti þessara samtaka virðist vera að vera óvinur samfélagsins og þjóðarinnar NR 1. SFS lítur á sína eigin þjóð og almenning sem eitthvað til að nýðast á og murka lífið úr. Það er ekki nóg með að SFS berjist gegn því að þjóðin fái mannsæmandi aðgengi við nýtingar sinna eigin auðlinda í gegnum mannsæmandi frelsis til handfæraveiða sem er umhverfisvænasta veiðarfæri sem hér finnst og ógnar ekki fiskistofnum heldur þarf almenningur að greiða fyrir SFS urðunarkosnað þeirra. Framganga þeirra gagnvart stofnunum samfélagsins ber merki um að mjög veikt fólk sé við stjórn samtakanna svo vægt sé til orða tekið. Það er allstaðar sem niður er komið í kringum þessi samtök slóð hræsnis ,hroka og fyrirlitningar gegn þjóðinni og öðru fólki. Íslenskt fiskveiðistjórnunarkerfi er þjóðinni eins óhagkvæmt og hugsast getur. Kostnaðurinn sem lendir á þjóðinni er allstaðar í allskonar formum sem flest fólk skilur mæta vel. Eru samtökin kanski stofnuð að fyrirmynd vondu systra öskubusku úr samnefndu ævintýri. Ef þessi samtök fara ekki að breyta hugsunarhætti sínum og aðför sinni að almannahagsmunum þarf það að verða þjóðþrifamál að losna við þau úr íslensku samfélagi. Svandís Svavarsdóttir er þeirra kona í ríkistjórn, það hefur hún sannað þá fáu mánuði sem hún hefur verið sem sjávarútvegsráðherra.....
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár