Bjó án rafmagns svo mánuðum skipti

Þrátt fyrir þrábeiðnir þar um allt frá 10. áratug síðustu aldar var aldrei lagt rafmagn frá samveitu inn í Sölvadal í Eyjafirði. Í stað þess þurftu heimamenn að treysta á óöruggar heima­rafstöðvar. Sú staðreynd átti stærstan þátt í banaslysi sem þar varð árið 2019.

Finnst opinberir aðilar bera ábyrgð
Finnst opin­berir aðilar bera ábyrgð Þröstur Bjarni segir að honum þyki óeðli­legt að ekki hafi feng­ist lagt raf­magn inn í Sölvadal, þrátt fyrir þrá­beiðnir þar um. Af þeim sökum þykir honum opin­berir aðilar bera að hluta ábyrgð á dauða Leifs Magnúsar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þröstur Bjarni Eyþórsson segir það bæði hafa verið erfitt og hættulegt að þurfa að treysta á rafmagn úr heima­virkjun í Núpá í Sölvadal í Eyjafirði þar eð ekki hafi fengist lagt rafmagn inn í dalinn af hálfu opinberra aðila. Sú hætta hafi raungerst með hörmulegum hætti í desember árið 2019 þegar Leif Magnús Grétarsson Thisland lést eftir að krapaflóð hreif hann með sér þegar þeir Þröstur Bjarni voru að reyna að koma virkjuninni í gang. 

Þröstur Bjarni er aðkomu­maður í Eyjafirði, ættaður úr Mýrdalnum þar sem hann ólst upp við búskap. Norður í Sölvadal, í Eyvindar­staði þar sem hann bjó, kom hann ekki fyrr en fyrr þetta sama ár, 2019, en hafði þó tengingar þangað norður fyrir.

„Ég kaupi Eyvindar­staði árið 2019, og er þarna í raun í allt of stuttan tíma. Ég fór norður í snjó­sleðaferð til Hauks frænda míns, sonar Halldórs [Viðars Hauks­sonar], og það kom …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár