Dvínandi ánægja með #metoo hreyfinguna

Ný könnun sýnir að færra fólk telur að umræða um #metoo sé jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag en áður. Tölu­verður munur er á afstöðu kvenna og karla en 20 pró­sent karla telja umræð­una nei­kvæða á móti 11 pró­sentum kvenna.

Dvínandi ánægja með #metoo hreyfinguna

Dregið hefur úr jákvæðni fólks í garð #metoo umræð­unnar á síð­ast­liðnum þremur og hálfu ári. Rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Maskína birti í jan­úar síð­ast­liðnum nið­ur­stöður könn­unar á við­horfum til áhrifa #metoo á íslenskt sam­fé­lag. Þar var meðal ann­ars lögð fyrir eft­ir­far­andi spurn­ing: Hversu jákvæð eða nei­kvæð þykir þér umræðan um #MeToo hreyf­ing­una vera fyrir íslenskt sam­fé­lag?

Bornar voru saman nið­ur­stöður sömu spurn­ingar í maí árið 2018 og í jan­úar árið 2022. Í maí árið 2018 sögðu ríf­lega 70% aðspurðra að þeir teldu áhrifin jákvæð en tæp 13 pró­sent að þeir teldu þau nei­kvæð. Í jan­úar síð­ast­liðnum svör­uðu hins vegar rúm 60 pró­sent því til að áhrifin væru jákvæð en 15,5 pró­sent sögðu þau nei­kvæð.

Þegar nið­ur­stöður könn­unar Maskínu eru greindar frekar má sjá að stærstur hluti svar­enda eru þeirrar skoð­unar að umræðan um #metoo sé mjög jákvæð fyrir íslenskt sam­fé­lag, en þriðj­ungur svar­enda var á þeirri skoðun. Á móti voru aðeins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Jóhannsdóttir skrifaði
    Gott, fátt annað en anarkí komið út úr þessari vitleysu
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár