Heimilin skulda yfir tvö þúsund milljarða í fasteignalán

Rúmur helm­ingur íslenskra fast­eigna­lána er óverð­tryggður og þar af eru 700 millj­arðar lán með breyti­legum vöxtum. Neyt­endur skulda þá ríf­lega 500 millj­arða króna í önnur neyt­enda­lán en sú upp­hæð er ekki tæm­andi.

Heimilin skulda yfir tvö þúsund milljarða í fasteignalán
Meiri­hluti hús­næð­is­lána óverð­tryggður Rúmur helm­ingur allra útistand­andi fast­eigna­lána eru óverð­tryggð lán.

Íslensk heim­ili skulda ríf­lega 2.100 millj­arða króna í fast­eigna­lán hjá fjár­mála­stofn­unum og öðrum lán­veit­endum. Rúmur helm­ingur þeirra lána, ríf­lega 1.100 millj­arðar, er óverð­tryggð lán, þar af eru um 700 millj­arðar lán með breyti­legum vöxtum.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ást­hildar Lóu Þórs­dóttur, þing­manns Flokks fólks­ins, sem birt var á vef Alþingis í gær. Ást­hildur spurði um fjölda og heild­ar­fjár­hæð útistand­andi fast­eigna­lána til neyt­enda, auk skipt­ingar þeirra miðað við lána­form og greiðslu­fyr­ir­komu­lag.

Í svari ráð­herra kemur fram að leitað hafi verið til Seðla­banka Íslands en eitt af verk­efnum bank­ans er að afla gagna um íslenskan lána­markað. Seðla­bank­inn safnar gögnum um fleiri aðila en fjár­mála­stofn­anir sem veita lán og eru líf­eyr­is­sjóðir þar fyr­ir­ferð­ar­mestir. Í svar­inu er til­greint að töl­urnar sem um ræðir nái til útlána Arion banka, Íslands­banka, Lands­banka, ÍL-sjóðs og níu líf­eyr­is­sjóða. Ekki er sund­ur­greint hvernig láns­fjár­hæðir skipt­ast en hins vegar til­tekið að töl­urnar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár