Kvenfyrirlitningin er bensínið

María Rún Bjarna­dóttir, verkefna­stjóri gegn stafrænu kynferðis­ofbeldi hjá ríkis­lögreglu­stjóra, segir að stafrænum kynferðis­ofbeldis­brotum fari fjölgandi á Íslandi. Með nýrri löggjöf sem var samþykkt árið 2021 voru slík brot gerð refsiverð en samkvæmt henni geta hvorki lögin né lögreglan komið í veg fyrir að að baki þeim búi rótgróin kven­fyrir­litning sem samfélagið í heild sinni þurfi að takast á við.

Stafrænum kynferðis­brotum fer fjölgandi að sögn Maríu Rúnar Bjarna­dóttur, verkefna­stjóra gegn stafrænu kynferðis­ofbeldi hjá Ríkis­lögreglu­stjóra, og hvað börn varðar segir hún brotunum ekki aðeins hafa fjölgað heldur hafi orðið „sprenging“ í aukningu. Flestir þolendur slíkra brota eru að sögn hennar konur og stúlkur en í því samhengi segir María augljóst að kven­fyrir­litning, hvort sem hún eigi sér stað á internetinu eða ekki, sé bensínið sem drífi stafrænt kynferðis­ofbeldi áfram.

Stafræn kynferðis­brot hafa verið ólögleg og því refsiverð frá því í febrúar 2021 þegar Alþingi samþykkti frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur, þáverandi dómsmála­ráðherra, um breytingu á almennum hegningar­lögum sem myndi ná yfir brot á kynferðislegri friðhelgi og gera meðal annars dreifingu á kynferðis­legum myndum af öðrum án samþykkis refsiverða, hvort sem það væri gert af gáleysi eður ei. 

Laga þarf kerfiðMaría segir að þolendur beri ekki traust til kerf­is­ins og því þurfi að laga kerfið því …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár