Áföll í æsku fylgja konum út ævina

Sterk félags­leg og efn­hags­leg staða kemur ekki í veg fyrir að áföll fylgi konum úr barn­æsku fram á full­orð­insár. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri íslenskri rann­sókn um áfalla­sögu kvenna. „Þetta sýnir okkur hvað þetta er krítískur tími um mótun heilsu­fars til lengri tíma,“ segir Unnur A. Vald­irmars­dóttir, pró­fessor við HÍ.

Áföll í æsku fylgja konum út ævina
Krítískur tími Unnur A. Valdi­mars­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands og ábyrgð­ar­maður rann­sókn­ar­innar, segir nið­ur­stöð­urnar sýna að leggja þurfi allt kapp á að koma í veg fyrir að börn lendi í stórum áföllum. Mynd: Kristinn Ingvarsson

„Það eru mjög sterk tengsl á milli áfalla í æsku við skerta getu til að takast á við áskor­anir dag­legs lífs og geð­ræn ein­kenni. Því fleiri sem áföllin eru í æsku því sterk­ari eru tengslin,“ segir Unnur A. Valdi­mars­dóttir, pró­fessor við Háskóla Íslands, um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar Áfalla­saga kvenna um tengsl áfalla í barn­æsku við vanda á full­orð­ins­árum. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru birtar í vís­inda­tíma­rit­inu eLife þann 3. febr­úar.

Þriðjungur kvenna svaraði

Unnur segir að rann­sóknin sé víð­tæk og nái til um þriðj­ungs kvenna, sem svör­uðu ítar­legum spurn­inga­lista rann­sak­enda á ára­bil­inu 2018–2019. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum hefur tæp­lega helm­ingur kvenna orðið fyrir fleiri en einu áfalli í æsku og um tíu pró­sent þeirra fleiri en fjögur. 

„Þessi rann­sókn er sér­stök að því leyti að við erum að nálg­ast heila kven­þjóð, það eru þrjá­tíu pró­sent kvenna sem svara. Þetta end­ur­speglar kven­þjóð­ina mjög vel, með til­liti til ald­urs, mennt­unar, tekna og búsetu,“ segir hún. „Þetta …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár