Ætlar ekki að fórna æru sinni og Kára og hættir við formannsframboð

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur dregið framboð sitt til formanns SÁÁ til baka og sagt sig úr aðal­stjórn. Kári Stef­ánsson segir sig einnig úr aðal­stjórn SÁÁ. Hún segir að það ríki „hálfgert stríðs­ástand“ í SÁÁ en nú séu fyrr­verandi stjórn­endur félagsins að „hlaða í bálköst á samfélags­miðlum fyrir Kára“.

Þóra Kristín segist ekki ætla að leggjast í stríðsrekstur og vilji hvorki fórna starfi sínu né æru sinni og Kára Stefánssonar fyrir sjálfboðavinnu fyrir SÁÁ
Þóra Kristín seg­ist ekki ætla að leggj­ast í stríðs­rekstur og vilji hvorki fórna starfi sínu né æru sinni og Kára Stef­áns­sonar fyrir sjálf­boða­vinnu fyrir SÁÁ

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur dregið framboð sitt til formanns SÁÁ til baka og sagt sig úr aðal­stjórn samtak­anna. Það gerir Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, náinn samstarfs­maður og vinur Þóru, sem er upplýsinga­fulltrúi fyrir­tækisins. Hún lýsir stríðs­ástandi innan félagsins.

„Ég dreg því framboð mitt til baka til formennsku og setu í framkvæmda­stjórn í von um að þau finni sér formann sem eru óumdeildur. Hættan er sú að að það sé erfitt í samtökum þar sem meirihlutinn hefur átt við áfengis­vanda að stríða einhvern hluta ævinnar og verið gerendur og þolendur allskyns ofbeldis, flestir hvortveggja. Bæði ég og Kári Stef­ánsson segjum okkur þar með úr aðal­stjórn samtak­anna.“

Á þessum orðum lýkur yfir­lýsingu Þóru Kristínar sem hún sendi aðal­stjórn 

SÁÁ fyrir stundu og birti svo á Facebooksíðu sinni. Kjósa átti nýjan formann á fundi nú síðdegis.

Segir að hlaðið sé í bálköst fyrir Kára Stefánsson

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Þetta er sorglegt
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hvers vegna var Þórainn Tyrfingsyni bolað í burtu hann var á hvítum Landgruser í draumi? Og sósíalistin Gunnar Smári gerður að formanni eða framkvæmdarstjóra?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár