Þóra Kristín býður sig fram til formanns SÁÁ

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur tilkynnt um formanns­framboð í SÁÁ. Hún vill að stofnuð verði sannleiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitnis­málum innan vébanda samtak­anna í fortíð og framtíð. Kosið er um nýjan formann eftir að Einar Hermannsson sagði af sér eftir að upp komst um að hann hefði keypt vændis­þjónustu af skjól­stæð­ingi samtak­anna.

Kandídat
Kandídat Þóra Kristín situr í stjórn sam­tak­anna en vill verða for­maður.

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir gefur kost á sér sem formaður SÁÁ. Þetta tilkynnti hún á Facebook í morgun, þar sem hún segir að stofna eigi sannleiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitnis­málum innan vébanda samtak­anna í fortíð og framtíð. Skorað hefur verið á Þóru Kristínu undan­farna daga að gefa kost á sér en hún er situr í dag í aðal­stjórn samtak­anna. 

Kosið er til formanns fyrr en til stóð þar sem Einar Hermannsson, sem gegnt hefur formennsku í samtökunum síðan sumarið 2020, sagði af sér í byrjun árs eftir að upp komst að hann hefði keypt vændis­þjónustu af skjólstæðingi samtak­anna. Það hefur líka gustað um samtökin vegna kæru Sjúkra­trygginga Íslands gegn framkvæmda­stjórn samtak­anna til embættis héraðs­saksóknara vegna þjónustu SÁÁ á meðan COVID-faraldrinum hefur staðið.

Þóra Kristín vill hrinda í framkvæmd því sem hún kallar tímabærar breytingar á starfsemi félagsins, sem ekki lengur sé hægt að skorast undan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Heiðarleg topp manneskja. Er Sjallarnir ættu nú svona fólk
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár