Samhæfingarmiðstöðin virkjuð vegna leitar að flugvél

Búið er að virkja sam­hæf­ing­ar­mið­stöð­ina í Skóg­ar­hlíð vegna leitar að lít­illi flug­vél sem ekk­ert hefur spurst til síðan skömmu fyrir hádegi. Fjórir eru um borð í vél­inni.

Samhæfingarmiðstöðin virkjuð vegna leitar að flugvél

Land­helg­is­gæslan leitar nú flug­vélar sem fór frá Reykja­vík­ur­flug­velli í morgun. Fjórir eru um borð í vél­inni en ekk­ert hefur spurst til hennar síðan skömmu fyrir hádegi. Búið er að virkja sam­hæf­ing­ar­mið­stöð­ina í Skóg­ar­hlíð. 

Flug­vélin fór frá Reykja­vík­ur­flug­velli um klukkan 10.30 í morgun og um klukku­stund síðar náð­ist mynd af vél­inni en óvíst hvar hún var þá, segir Ásgeirs Erlends­son, upp­lýs­inga­full­trúa Gæsl­unnar, og bætir við að ekki hafi náðst sam­band við vél­ina síðan um klukkan 11.30. 

Ásgeir segir að leit­ar­svæðið sé enn mjög stórt og að unnið sé með allar vís­bend­ingar sem hafi borist, meðal ann­ars gögn úr símum þeirra sem eru um borð í vél­inni. Þetta er gert til að reyna að þrengja leit­ar­svæðið segir Ásgeir í sam­tali við Stundina. 

Auk þyrlu­sveitar Land­helg­is­gæsl­unnar leita nú björg­un­ar­sveitir frá Höf­uð­borg­ar­svæð­inu, af Suð­ur­nesjum og Suð­ur­landi að flug­vél­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár