Fjórir sóttu um fréttastjórastöðuna á RÚV

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, starf­andi frétta­stjóri RÚV, og Þórir Guð­munds­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri frétta­stofu Sýnar, eru meðal umsækj­enda um starf frétta­stjóra RÚV. Mun færri sóttu um stöð­una nú en síð­ast þegar hún var aug­lýst.

Fjórir sóttu um fréttastjórastöðuna á RÚV

Fjórir sóttu um starf frétta­stjóra RÚV sem aug­lýst var laust til umsóknar í jan­úar. Það eru þeir Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, vara­f­rétta­stjóri og starf­andi frétta­stjóri RÚV, Valgeir Örn Ragn­ars­son, frétta­maður hjá RÚV, Þór Jónsson, sviðs­stjóri og fyrr­ver­andi vara­f­rétta­stjóri NFS, og Þórir Guð­munds­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar.

Nafna­list­inn var birtur á vef RÚV í dag. 

HættRakel leiddi frétta­stofu RÚV frá 2014 til 2021.

Þetta eru tals­vert færri umsóknir en bár­ust síð­ast þegar staðan var aug­lýst árið 2014. Þá sáttu tólf um stöð­una en Rakel Þor­bergs­dóttir hreppti hnossið. Hún hafði þá starfað um nokk­urt skeið sem vara­f­rétta­stjóri frétta­stof­unnar. Hún sagði starfi sínu óvænt lausu fyrir ára­mót eftir rúm­lega sjö ár í frétta­stjóra­stólnum. 

Auk frétta­stjóra­starfs­ins var starf dag­skrár­stjóra Rásar 2 aug­lýst. Fimm sóttu um það starf; þau Ágúst Héð­ins­son verk­efna­stjóri, Guð­mundur Gunn­ars­son breyt­inga­stjóri, Jóna Valborg Árna­dóttir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár