662. spurningaþraut: Virgil og Virgil og Nona Gaprindasvíli

662. spurningaþraut: Virgil og Virgil og Nona Gaprindasvíli

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er konan á mál­verki þessu kölluð?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Um dag­inn var spurt hvaða ríki hefði lengstu strand­lengju í heimi. En hvaða ríki í ver­öld­inni hefur STYSTU strand­lengj­una?

2.  Hvar skyldi Ísland vera í röð­inni yfir lengstu strand­lengju allra ríkja í heimi? Er Ísland í 5. sæti — 10. sæti — 15. sæti — 20. sæti — eða 25. sæti?

3.  Sigvaldi Guð­jóns­son — hvað fæst hann við í líf­inu?

4.  Hver samdi Hnotu­brjót­inn?

5.  Hvað merkir hug­takið að vera pan­sexúal?

6.  Nona Gaprinda­svíli heitir kona ein frá Georgíu. Hún er nú átt­ræð að aldri en er að hefja mála­rekstur frá streym­isveit­unni Netflix. Málið snýst um ser­í­una Queen's Gambit þar sem minnst var á Gaprinda­svíli á niðr­andi hátt að því er henni finnst, en Gaprinda­svíli var á sínum afreks­mann­eskja í ... hverju?

7.  En við hvað fékkst Róm­verj­inn Virgil eða Vergilius Maro?

8.  Virgil van Dijk er aftur á móti fót­bolta­maður. Hann spilar í vörn Liverpool og hvaða lands­liðs?

9.  Hver ekur eins og ljón með aðra hönd á stýri?

10.  Á stöðum sem nú heita Harappa og Móhenjo Daró voru tvær af elstu menn­ing­ar­borgum heims­ins. Hvar voru þær nágranna­borgir — þokka­lega nákvæm­lega?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan sem sést hér fyrir miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Monaco.

2.  Ísland er í 25. sæti.

3.  Hand­bolta.

4.  Tsjækov­skí.

5.  Laðast að fólki alveg óháð kyni þess.

6.  Skák.

7.  Skáld­skap.

8.  Hollands.

9.  Bjössi.

10.  Í Indusdal, við Indus­fljót. Það dugar ekki nema til hálfs stigs að segja Indland!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Maya, fyr­ir­sæta list­mál­ar­ans Goya.

Á neðri mynd­inni má sjá Papey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    9/2, vissi um Indusdalinn... en ef maður fær 1/2 stig fyrir að segja Indland þá hlýtur að maður að fá heilt stig fyrir að segja Pakistan. Bæði Harappa og Mohenjo Daro eru innan landamæra núverandi Pakistans. Og reyndar eru einhverjir 6 -700 kílómetrar á milli þeirra.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár