661. spurningaþraut: Kansellí og rentukammer, við vitum hvað það er!

Fyrri auka­spurning:

Hvaða mynd­höggvari gjörði myndina hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Í hverju var Robert James Fischer heims­meistari?

2.  Hvaða íþrótta­félag hefur aðsetur á Hlíðar­enda?

3.  Hvers son var Gunnar á Hlíðar­enda?

4.  Hvað er SARS-CoV-2?

5.  JPV er skamm­stöfun fyrir eina af undir­deildum stærsta bóka­forlags landsins. Fyrir hvað stendur þessi skamm­stöfun JPV í bóka­bransanum?

6.  Kákasus­fjall­garðurinn rís milli tveggja hafsvæða, þótt annað hafið sé raunar landlukt og sé því í raun stöðuvatn. En hvað heita þessi svæði bæði?

7.  Í fjöllunum þeim eru þrjú lítil ríki. Nefnið að minnsta kosti tvö þeirra.

8.  Sigurjón Kjartansson og Óttar Proppé hafa allt frá 1987 verið saman í hljómsveit sem heitir ...?

9.  Rentu­kammerið og kansellíið. Hvað er það fyrir nokkuð?

10.  Nefertiti hét drottning ein. Í hvaða landi var hún drottning.

***

Seinni auka­spurning:

Hvað nefnist flug­véla­tegundin sem hér sést?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Skák.

2.  Valur.

3.  Hámundarson.

4.  Veiran sem veldur Covid-19.

5.  Jóhann Páll Valdimarsson.

6.  Savartahaf og Kaspíhaf.

7.  Armenía, Georgía og Aserbædjan. Hafa þarf tvö rétt, sem sagt.

8.  Ham.

9.  Stjórnar­deildir (ráðuneytis­skrifstofur) í Kaupmanna­höfn sem höfðu með málefni Íslands að vera.

10.  Egifta­landi.

***

Svör við auka­spurningum:

Högg­myndina gerði Einar Jónsson.

Á neðri myndinni er vél af gerðinni Stuka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár