653. spurningaþraut: Maria Anna Walburga Ignatia ... hver var hún?

653. spurningaþraut: Maria Anna Walburga Ignatia ... hver var hún?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hljóm­sveitin sem hér leikur og syngur?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er borgin Gdansk?

2.  Kona ein hét Maria Anna Walburga Ignatia og svo vantar eft­ir­nafnið. Hún fædd­ist 1751 og snemma kom í ljós að hún var afar flinkur mús­í­k­ant. Hún var hljóð­færa­leik­ari en líka tón­skáld, þótt engin verka hennar hafi varð­veist. Þó hafa komið fram hug­myndir um að ein­hver af æsku­verkum bróður hennar kunni að hafa verið samin að ein­hverju leyti af henni, en um það verður ekki sagt. Altént er ljóst að þegar árin liðu skyggði þessi yngri bróðir hennar ræki­lega á hana, og hún dró sig í hlé sem tón­list­ar­maður. Hvað var ætt­ar­nafn þeirra systk­ina?

3.  Í hvaða Evr­ópu­landi er stærstur hluti hinna svo­nefndu Karpata­fjalla?

4.  Árið 1975 kom tón­list­ar­maður nokkur fram í við­tali og lýsti því yfir að hann væri sam­kyn­hneigður en það hafði eng­inn Íslend­ingur gert áður. Hver var mað­ur­inn?

5.  En í hvaða fjöl­miðli birt­ist við­talið?

6.  Hver sagði af sér starfi for­manns verka­lýðs­fé­lags um mán­aða­mótin októ­ber-nóv­em­ber á síð­asta ári?

7.  Hvaða glys­gjarna stúlka (með vand­lega greiddan topp) er það sem gengur ein­lægt með vænan gull­hring á fæti — en er reyndar að öðru leyti óklædd með öllu, enda nokkuð loðin?

8.  Fyrsta sér­staka þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan á Íslandi, sem sner­ist um annað en kosn­ingar til þings, fór fram 1908.  Um hvað sner­ist hún? Svo meg­iði sæma ykkur lár­við­ar­stigi ef þið vitið um hvað sú næsta sner­ist, en sú atkvæða­greiðsla fór fram 1916.

9.  Árið 2004 stóð til að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um til­tekin lög, en rík­is­stjórnin dró þá lögin til baka og lagði af atkvæða­greiðsl­una. Um hvað sner­ust hin umdeildu lög?

10.  Síðasta þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan af þessu tagi sem haldin hefur verið fór fram 2012. Um hvað sner­ist hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá frægan fót­bolta­kappa meðan hann lék með enska lið­inu Arsenal árið 1946. Hver var hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Póllandi.

2.  Mozart.

3.  Rúmeníu.

4.  Hörður Torfason.

5.  Samúel.

6.  Sólveig Anna Jóns­dóttir.

7.  Snork­stelpan úr Múmíndal.

8.  Áfeng­is­bann. Og lár­við­ar­stigið fæst fyrir að vita að þjóð­ar­kvæða­greiðslan næsta sner­ist um hvort taka skyldi upp þegn­skyldu­vinnu.

9.  Fjöl­miðla.

10.  Stjórn­ar­skrár­til­lögu stjórn­laga­ráðs.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hljóm­sveitin Grýl­urnar. En þar sem hljóm­sveitin var þarna að leika í bíó­mynd­inni Með allt á hreinu, þar sem hún nefnd­ist Gærurnar, þá gef ég rétt fyrir Gærurnar líka.

Á neðri mynd­inni er Albert Guð­munds­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár