Rannsókn á vatnsmengun bandaríska hersins: „Suðurnesjamenn eiga það skilið“

Í tæp 50 ár hefur legið fyrir að mengun, klór­efni, frá Banda­ríkja­her rataði í grunn­vatn nærri vatns­bóli Kefl­vík­inga. Klór­efnin geta verið krabba­meins­vald­andi en áhrif þeirra á heilsu­far Suð­ur­nesja­manna hafa ekki verið rann­sökuð. Banda­ríkja­her fann meng­un­ina í vatn­inu á níunda ára­tugnum og samdi sig frá mál­inu með því að greiða fyrir nýtt vatns­ból. Laufey Tryggva­dóttir hjá Krabba­meins­fé­lagi Íslands segir að kom­ast þurfi til botns í mál­inu í eitt skipti fyrir öll.

Rannsókn á vatnsmengun bandaríska hersins: „Suðurnesjamenn eiga það skilið“
Hóf rann­sóknir á mál­inu fyrir tæpum 50 árum Einar Valur Ingi­mund­ar­son umhverf­is­verk­fræð­ingur hóf rann­sóknir á grunn­vatns­meng­un­inni á Suð­ur­nesjum fyrir tæpum 50 árum. Stjórn­völd á Íslandi hafa aldrei beitt sér fyrir heild­stæðri rann­sókn á meng­un­inni fyrr en nú. Hann sést hér með eitt af tölu­blöðum tíma­rits her­stöðv­ar­and­stæð­inga, Dagfara, þar sem hann fjall­aði um málið. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér finnst að Suð­ur­nesja­menn eigi það skilið að þetta sé gert vel,“ segir Laufey Tryggva­dóttir, far­alds­fræð­ingur og for­stöðu­maður rann­sókna- og skrán­ing­ar­set­urs hjá Krabba­meins­fé­lagi Íslands, aðspurð um rann­sókn sem félagið mun fara í á mengun frá Banda­ríkja­her á Suð­ur­nesjum. Vatns­meng­unin kann að hafa haft áhrif á aukið nýgengi krabba­meins á svæð­inu. Rann­sóknir sýna að fleiri krabba­meinstil­felli grein­ast á Suð­ur­nesjum en ann­ars staðar á land­inu.

Mengun frá her­stöð­inniMengað grunn­vatn fannst við vatns­ból Kefla­víkur og Njarð­víkur árið 1989. Banda­ríska varn­ar­liðið féllst á að greiða fyrir ný vatns­ból en talið var að meng­unin staf­aði meðal ann­ars frá hreinsi­efnum sem notuð voru til að þrífa flug­vélar í her­stöð­inni á Mið­nes­heiði. Myndin er frá 1982 og sýnir flug­stöð­ina og Keflavík í bak­sýn.

Eiturefni í grunnvatni á Suðurnesjum

Undir lok níunda ára­tug­ar­ins voru meðal ann­ars sagðar fréttir af því að banda­ríski her­inn hefði við rann­sóknir fundið eit­ur­efni í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár