Gallerí Gangur í 42 ár

Gallerí Gangur var stofnað árið 1980, en er ekkert gamall þannig séð, heldur endur­fæðist í sífellu. Þar hafa verið haldnar að meðaltali 10 sýningar á ári síðastliðin 42 ár. Lista­maðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson rekur galleríið.

„Ég hef alltaf verið forvitinn um óvænta og sérstaka list og hluti, eiginlega alla hliðar­tilveruna. Ég var bæði í barna­skólanum í Búðardal og í Stykkis­hólmi með úrvals­einkunnir í teikningu og hverslags föndri. Stelpur og strákar voru saman í teikningu, smíði og saumaskap,“ lýsir Helgi. Í uppeldi hans var mikið um tónlist og talsvert af bókmenntum og Íslendinga­ögunum. „Þetta er nátt­úrlega umhverfi sagnanna, og hver þúfa i Dalasýslu lifði sem heims­minjar. Af listunum var kannski minnst af myndlist,“ segir Helgi um æskuna í sveitinni, nánar tiltekið í Búðardal, og bætir við að hafa verið sískrifandi og teiknandi frá því hann fyrst kunni að halda á blýanti og það hafi svo hægt og rólega þróast út í myndlist. „Þegar ég segi útlendingum frá þessu, segja þeir að það hafi nátt­úrlega ekkert annað verið hægt að gera, þarna í fámenni og myrkri,“ segir Helgi hlæjandi og Hillbilly getur ekki annað en verið sammála …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár