0,03 prósent covid-smitaðra eru á gjörgæslu

Alls eru 23 þús­und Ís­lend­inga í ein­angr­un eða sótt­kví í dag, á með­an þrír liggja inni á gjör­gæslu með Covid 19. Minni­hluti covid-smit­aðra á Land­spít­al­an­um er þar vegna covid-sýk­ing­ar­inn­ar. 6 pró­sent þjóð­ar­inn­ar er í aflok­un vegna smits eða um­gengni við smit­aða.

0,03 prósent covid-smitaðra eru á gjörgæslu
Frá bólusetningu 80% landsmanna fimm ára og eldri eru fullbólusettir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í dag eru rúmlega 3.800 íslensk börn í einangrun eftir að hafa greinst með covid-19, 90% með ómíkron-afbrigðið svokallaða sem veldur vægari veikindum en fyrri afbrigði smitsjúkdómsins.

Samtals eru 10.637 Íslendingar í einangrun, sem þýðir að þeir þurfa að vera bundnir við heimili sitt án umgengni við aðra í viku, en mega nú fara í hálftíma gönguferð. Til viðbótar eru 12.438 Íslendingar í sóttkví vegna umgengni við fólk sem hefur síðan greinst með covid.

Fram kom í dag að meirihluti þeirra 32 sem eru liggjandi inni á spítala með covid-19 eru ekki á spítalanum vegna sýkingarinnar, heldur eru þeir með veikina ótengt tilefni innlagnarinnar. Aðeins eru þrír á gjörgæslu, en allir þeirra í öndunarvél. Það þýðir að 0,03 prósent smitaðra eru nú á gjörgæslu.

Ekki kemur fram að allir þeirra þriggja, sem nú eru á gjörgæslu, séu þar vegna covid eða eingöngu með covid. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í dag að sjúklingar á gjörgæslu væru „langflestir með delta og óbólusettir“, og vísaði þar til eldra afbrigðis covid-19.

Landspítalinn er engu að síður á neyðarstigi, en 163 starfsmenn hans eru í einangrun. 

Strangar samkomutakmarkanir eru í gildi vegna covid-faraldursins. Tveggja metra regla er í gildi og grímuskylda. Opið má hafa á veitingastöðum til kl. 21. Einkasamkvæmi eru óheimil á stöðum með vínveitingaleyfi eftir kl. 22.  Sundlaugar og skíðasvæði mega taka við 50% af hámarksfjölda gesta. Takmarkanirnar gilda næstu tvær vikur, til 2. febrúar.

Ekki er ljóst hver langtímaáhrif ómíkronsýkingar eru á heilsu fólks, þótt veikindin hafi reynst mildari en af fyrri afbrigðum. Að auki er ófyrirsjáanlegt hvernig veiran stökkbreytist næst, en líkur á stökkbreytingu aukast með meiri dreifingu. Umboðsmaður barna hefur þó nýverið varað við áhrifum þess að halda börnum innilokuðum eða frá skóla ítrekað eða til lengri tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
3
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
6
Stjórnmál

Sig­mund­ur Dav­íð vill af­nema erfða­fjárskatt

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau vísa með­al ann­ars til OECD en stofn­un­in hef­ur einnig fært sterk rök fyr­ir skatt­lagn­ingu þeg­ar um stór­an arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þeg­ar eig­in­kona Sig­mund­ar fékk rúm­an millj­arð króna í fyr­ir­fram­greidd­an arf sem fór síð­ar inn í af­l­ands­fé­lag­ið Wintris.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu