Sauðfjárbóndi segir ekkert upp úr búskapnum að hafa

Verð á áburði hefur því sem næst tvöfaldast milli ára. Kostnaðar­auki fyrir bændur vegna þess nemur 2,5 milljörðum króna. Gróa Jóhanns­dóttir, sauðfjár­bóndi í Breiðdal, segir áburðar­kaup éta upp 60 prósent þess sem hún fær fyrir innlegg sitt í sláturhús. „Það er í raun bilun í manni að vera að standa í þessu.“

Vill vera sauðfjárbóndi
Vill vera sauð­fjár­bóndi Gróa, sem hér er ásamt ærinni Gibbu, segir að hún geti ekki hugsað sér að hætta búskap en hins vegar verði að vera hægt að hafa lífs­við­ur­væri af honum. Hún ótt­ast að það sé að verða von­laust.

Hækkanir á áburðar­verði munu að óbreyttu éta upp 60 prósent af því verði sem sauðfjár­bóndi á Austur­landi fær fyrir afurðir sínar næsta haust. Gríðarlegt verðfall varð á afurða­verði til bænda á árunum 2016 og 2017 og lætur nærri að sauðfjár­bændur hafi vegna þess tapað um sex milljörðum króna í afurða­tekjur á þriggja ára tímabili. Verð fyrir lambakjöt til bænda hefur þá alls ekki fylgt almennri verðlags­þróun heldur vantar þar mikið upp á. Gróa Jóhanns­dóttir, bóndi á Hlíðar­enda í Breiðdal, segir ekkert verða eftir þegar búið er að gera upp kostnað og veltir því alvarlega fyrir sér hvort hún eigi að bregða búi. „Sauðfjár­bændur hafa í raun engar tekjur, það er ekki hægt að reikna tekjur af rekstrinum.“

Gríðarlegar verð­hækkanir eru orðnar, og fyrirséðar, á tilbúnum áburði og hefur verðið því sem næst tvöfaldast frá fyrra ári. Ástæðanna er einkum að leita í hærra hráefnis­verði, hækkun á orkuverði og áhrifum heims­faraldurs Covid-19 kóróna­veirunnar á framboð í heiminum en allur tilbúinn áburður er fluttur inn til landsins. Íslenskir bændur eru verulega háðir notkun á tilbúnum áburði á tún sín, ekki bara svo að uppskera verði nægjanleg að magni heldur að efna­innhald þess fóðurs sem bændur uppskera sé ásættanlegt fyrir búfénað.

Ríkið styrkir bændur um 700 milljónir

Í umsögn Bænda­samtaka Íslands við fjár­laga­frumvarp fyrir árið 2022 kom fram að hækki áburðar­verð um 50 prósent mynd það þýða kostnaðar­auka fyrir bændur upp á 1,3 milljarða króna miðað við að keypt magn á þessu ári yrði hið sama og var á síðasta ári. Hækkunin virðist hins vegar vera enn meiri, eða allt að 100 prósent. Þannig nemur hækkun á áburðar­verðskrá SS 98 prósentum milli ára. Meirihluti fjár­laganefndar Alþingis lagði til í desember að bændur yrðu styrktir um 700 milljónir króna vegna hækkunarinnar. Í nefndar­áliti meirihlutans kom fram að ef hækkun á áburðar­verði myndi fylgja áburðar­vísitölu Alþjóða­bankans, sem hefur hækkað um 93 prósent milli ára, myndi það þýði 2,5 milljarða kostnaðar­auka fyrir bændur. Tillagan um 700 milljóna króna stuðning var samþykkt á fjárlögum.

„Þegar ég fór að setja þetta upp í Excel varð allt hins vegar skugga­lega raun­veru­legt“

Gróa Jóhanns­dóttir býr á Hlíðar­enda í Breiðdal ásamt Arnaldi Sigurðs­syni manni sínum en þar reka þau sauðfjárbú með um 300 vetrar­fóðruðum kindum. Bæði vinna þau vinnu utan búsins eins og líklega flestir sauðfjár­bændur á Íslandi. Um síðustu helgi hugðist Gróa panta áburð fyrir komandi vor, meðvituð um þær hækkanir sem orðið hefðu. „Þegar ég fór að setja þetta upp í Excel varð allt hins vegar skugga­lega raun­verulegt.“ Gróa segir að á síðasta ári hafi 31,5 prósent þeirrar upphæðar sem búið fékk frá slátur­húsi fyrir innlegg sitt farið til áburðar­kaupa. Kaupi hún sama magn áburðar í ár færi 62,5 prósent afurða­verðs síðasta hausts til að greiða áburðinn. Vissulega geti orðið hækkanir á afurða­verði næsta haust en það séu þó fuglar í skógi en ekki í hendi.

Hrun á afurðaverði fyrir fimm árum

Árið 2016 og einkum árið 2017 varð algjört hrun á afurða­verði til bænda. Frá árinu 2007 til 2013 hafði afurða­verð farið nokkuð hækkandi ár frá ári og árið 2013 fengu bændur 594 krónur fyrir kíló af lamba­kjöti. Verðið hélst á svipuðum slóðum næstu tvö ár og árið 2015 var kíló­verðið 604 krónur. Haustið 2016 lækkaði afurða­verð á lamba­kjöti hins vegar um 9,1 prósent og árið eftir, 2017, um 30 prósent. Það haust fengu bændur 387 krónur fyrir kíló af lamba­kjöti, aðeins 64 prósent þess verðs sem fengist hafði tveimur árum áður.

Heldur ekki í við verð­lags­þróunTölur Hag­stof­unnar sýna að eftir verð­fallið sem varð á árunum 2016 og 2017 hefur þróun á kíló­verði fyrir kinda­kjöt verið langr frá því að halda í við almenna verð­lags­þróun.

Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytið um afkomu sauðfjár­bænda á Íslandi og skilað var í maí á síðasta ári má gera ráð fyrir að verð­fallið hafi numið um 6 milljörðum króna í afurða­tekjum til bænda á árunum 2017 til 2019. Árið 2019 var beinn framleiðslu­kostnaður bónda á kíló af lamba­kjöti 1.133 krónur. Það ár var meðalverð frá slátur­húsi til bænda 469 krónur á kíló. Í sömu skýrslu kemur fram að að meðaltali tapaði sauðfjárbú á Íslandi 103 þúsund krónum árið 2018.

Verð hefur stigið síðan þá, en síðasta haust var það þó enn langt frá því sem var þegar hæst var árið 2015. Síðasta haust var kílóverð 532 krónur, eða 88 prósent af því verði ársins 2015. Hefði afurða­verð fylgt almennri verðlags­þróun frá árinu 2013 hefði það átt að vera um 725 krónur síðastliðið haust, um 27 prósent hærra en var.  

Ekkert upp úr búskapnum að hafa

Bara ynd­isarðurGróa segir að það verði ekk­ert eftir þegar búið er að greiða fyrir öll aðföng sem búskap­ur­inn krefst.

Gróa segir að jörðin Hlíðar­endi beri ekki að dregið verði úr áburðar­notkun til að vinna gegn kostnaðar­aukanum. Land á Aust­fjörðum sé frekar rýrt og þar af leiðandi áburðar­frekt. „Það er mjög áleitin spurning hvað við eigum eiginlega að gera.“

Spurð hvort 700 milljóna króna stuðningur stjórn­valda til bænda breyti engu þar um svarar Gróa því til að auðvitað hjálpi stuðningurinn. Hins vegar sé fátt sem bendi til þess að áburðar­verðs­hækkanir verði gengnar til baka á næsta ári og auk þess sé ljóst að önnur aðföng muni einnig hækka. „Í hvaða stöðu er atvinnu­grein ef hún þarf alltaf að leita til ríkis­valdsins ef eitthvað bjátar á? Þarf þá ekki að breyta einhverju, þannig að við séum ekki alltaf í síðasta gati á beltinu? Síðan 2017, þegar verulegt verðfall varð á lamba­kjöti, höfum við í raun ekkert haft upp úr þessu nema yndis­arðinn. Þá hlýtur maður að hugsa að hvort maður næði ekki sama yndisarði þó maður hætti sauðfjár­búskap sem atvinnu og fækkaði bara fé niður í nokkra tugi. Vissulega er maður að reyna að nýta fjár­festingar en til hvers er að nýta þær ef maður hefur ekkert upp úr því.“

„Það verður ekk­ert eftir“

Áburðar­kaup eru fjarri því að vera eini kostnaðar­liðurinn við rekstur sauðfjárbúa. Það þarf olíu á vélar, heyrúllu­plast, kjarnfóður, rafmagn, viðhald og endur­bætur á húsum auk ótal margra annarra þátta sem skapa kostnað. Ljóst er að flestir þessa kostnaðar­liða hafa hækkað eða munu hækka á næstunni, þannig er verð á kjarnfóðri til að mynda tengt við áburðar­verð. Spurð hvað verði þá eftir af því sem slátur­húsin greiða fyrir kjötið þegar allir kostnaðar­liðir hafi  greiddir er Gróa snögg til svars:

„Það verður ekkert eftir. Fyrir utan greiðslur fyrir kjöt kemur til ríkis­stuðningur en það er í sjálfu sér sama, það er ekkert eftir. Sauðfjár­bændur hafa í raun engar tekjur, það er ekki hægt að reikna tekjur af rekstrinum. Tekjur sem fólk er að fá af vinnu utan búsins fara síðan inn í búreksturinn. Það er aðvitað alveg klikkað, það er í raun bilun í manni að vera að standa í þessu.“

Afskaplega dýrt áhugamál

Sauðfjár­búskapur er, miðað við lýsingar Gróu, því farinn að líkjast og afskaplega dýru áhugamáli. „Auðvitað er það það,“ segir Gróa og bætir við: „Það var vissulega afar klaufalegt hjá Kristjáni Þór Júlíusson fyrr­verandi land­búnaðar­ráðherra þegar hann sagði að sauðfjár­búskapur væri lífstíll. En er það ekki þannig að fólk velur sér oft á tíðum störf vegna lífsstíls. Er ekki lífstíll hjá þér að vera blaða­maður, starf sem þú velur að vera í vegna þess að þú hefur ástríðu fyrir því? Það er rétt eins og saufjárbúskapurinn, fólk hefur ástríðu fyrir því. Það þyrfti hins vegar að vera hægt að lifa af því.“

„Ég held bara að þetta sé að verða von­laust“

Spurð hvort hún sjái einhverjar leiðir út úr þeim ógöngum sem búgreinin er komin í verður fátt um svör hjá Gróu. Hún nefnir þó að hún telji mikilvægt að slátur­húsum verði gert kleift að vinna saman rétt eins og afurða­stöðvum í mjólkur­iðnaði er heimilt, með því mætti draga úr kostnaði við slátrun og markaðs­setningu sem aftur ætti að skila sér til bænda. Það dugi þó tæpast til. Spurð hvort hún telji að mögulega væri rétt að beita styrkjum til að stuðla að búsetu, svo land haldist í byggð, en slíkir styrkir eru þekktir með ýmsu móti innan Evrópu­sambandsins til að mynda, svarar Gróa því til það væri hugsanlegur möguleiki. „Það er ein leiðin en ég held að það þurfi alltaf einhvern vegin að styrkja þennan búskap líka. Það skiptir máli að framleiða matvæli hér á landi og það þarf líka mannlíf til sveita. Sauðfjár­búskapur er líka samfélagsleg ábyrgð, um leið og einn dettur út eykst vinnuálag á öðrum bændum í sveitinni.“

Gróa segir að hún sé alvarlega farin að velta fyrir sér að hætta búskap. „Maður hugsar í alvöru, þetta gengur ekki lengur Gróa. Svo kemur maður í fjárhúsin og horfir á féð og hugsar með sér: Nei, ég get ekki hætt, þetta er bara ég. Ég vil vera sauðfjár­bóndi, hjartað er þar. Mig langar að telja mér trú um að það sé hægt að hafa lífs­viðurværi af því en ég held bara að þetta sé að verða vonlaust. Mig langar ekki til að vera svartsýn en því miður sé ég bara ekki hvernig á að láta þetta dæmi ganga upp og sú spurning leitar á mig hvort þetta verði í síðasta skipti eða næst síðasta skipti sem ég sest niður til að panta áburð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn Ingimarsson skrifaði
    Er þá ekki bara að snúa sér að einhverju öðru?
    0
  • Guðjón Sigurbjartsson skrifaði
    Svo er framleiðsla lambakjöts líklega óumhverfisvænasta kjötframleiðsla í veröldinni þegar þess er gætt að bústofninn nagar allann nýgræðing og fær að ganga laus við þá iðju.
    0
  • ÁJ
    Ágúst Jónatansson skrifaði
    Fyrrverandi landbúnaðarráðherra sagði nú Sauðfjárrækt lífstíl frekar en atvinnugrein ?
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Enn og aftur, Sauðfjárbændur eru of margir, allt of margir. Það er offramleiðslu á kjöti. þið bændur sem búið á háhitasvæðum, breytið fjárhúsunum og hlöðu í gróðurhús. Ræktið korn og kál á túnum, grænmeti og ávexti í húsum.
    0
  • Jóhann Arnaldsson skrifaði
    Flott grein
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár