642. spurningaþraut: Hvaða dýr áttu mæður að éta til að lækna börnin sín?

642. spurningaþraut: Hvaða dýr áttu mæður að éta til að lækna börnin sín?

Auka­spurn­ing hin fyrri:

Hver er fugl­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Við hvaða götu í Reykja­víkur hefur Rík­is­út­varpið aðsetur?

2.  Árið 1938 birt­ist fyrst skálduð per­sóna sem Banda­ríkja­menn­irnir Jerry Siegel og Joe Shuster höfðu skapað. Hver var per­sónan sem síðan hefur lifað góðu lífi?

3.  Í hvaða landi er borgin Omaha?

4.  En einu sinni nálægt mið­biki 20. aldar var strönd nokkur líka kölluð Omaha, og þar og á nálægum ströndum gekk mikið á í nokkra daga — svo um það hafa verið skrif­aðar bækur. Í hvaða landi var sú Omaha strönd?

5.  Hver sendi frá sér vin­sælar hljóm­plötur sem báru nafnið Bat Out Of Hell?

6.  Hvað hét einka­dóttir Stalíns?

7.  Í hinu forna Egifta­land áttu íbúar í ein­kenni­legu sam­bandi við dýra­teg­und eina. Þeir lögðu mikið á sig til að útrýma dýr­inu, en þegar hvít­voð­ungar urðu veikir, þá var móðir smá­barns­ins gjarnan látin éta dýr af þess­ari teg­und. Það var talið mundu lækna hvít­voð­ung­inn. Hvaða dýr voru þetta?

8.  Ein af helstu borgum Egifta­lands til forna var svo fræg að löngu seinna voru ýmsar aðrar borgir skírðar eftir henni. Þar á meðal ein borg, óra­langt frá Egifta­landi, en sú borg varð fræg fyrir tón­list af sér­stöku tagi. Hvað heita þessar borgir báðar?

9.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér lagið Keyrum yfir Ísland árið 2007? 

10.  Árið 1904 fengu Íslend­ingar heima­stjórn og ráð­herra. Hvað hafði æðsti emb­ætt­is­maður Dana á Íslandi kall­ast ára­tug­ina á undan?

***

Seinni sú hin auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Efsta­leiti.

2.  Superman.

3.  Banda­ríkj­unum.

4.  Frakk­landi. Hér er vísað til inn­rás­ar­innar í Normandy 1944.

5.  Meat Loaf.

6.  Svetlana.

7.  Mýs.

8.  Memfis og Memphis, Tennessee.

9.  Sprengju­höllin.

10.  Lands­höfð­ingi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Kíví heitir fugl­inn á efri mynd­inni.

Útvarps- og sjón­varps­konan Sig­ur­laug Margrét er á neðri mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár