Helgi Seljan hefur störf á Stundinni

Rann­sókn­ar­frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan, sem er marg­verð­laun­aður fyrir störf sín, meðal ann­ars að umfjöllun um Sam­herj­a­málið, Panama­skjölin og aðgerða­leysi eft­ir­lits­stofn­ana, gengur til liðs við Stundina.

Helgi Seljan hefur störf á Stundinni
Helgi Seljan Eftir 16 ára starf hjá RÚV er Helgi Seljan geng­inn til liðs við Stundina sem rann­sókn­ar­rit­stjóri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frétta­mað­ur­inn og rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn Helgi Seljan hefur gengið til liðs við Stundina. 

Helgi hefur hlotið fjölda við­ur­kenn­inga fyrir störf sín hér­lendis og erlendis, meðal ann­ars þrenn blaða­manna­verð­laun Íslands og 9 til­nefn­ingar til sömu verð­launa. Helgi hefur oft­ast allra, eða fjórum sinnum, verið val­inn sjón­varps­maður árs­ins á Eddu­verð­launa­há­tíð íslensku kvik­mynda- og sjón­varps­aka­dem­í­unnar.

Feril sinn í fjöl­miðlum hóf Helgi á hér­aðs­frétta­blað­inu Aust­ur­glugg­anum árið 2002 en fór þaðan á DV, Tal­stöð­ina og svo frétta­stofu Stöðvar 2, áður en hann gekk til liðs við Kastljós RÚV árið 2006, þar sem hann starf­aði allt þar til frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur varð til árið 2017. 

Verðlaunaður rannsóknarfréttamaður

Helgi hefur tekið þátt í og leitt rann­sóknir og umfjall­anir um nokkur af stærstu frétta­málum síð­ustu ára, meðal ann­arra um Panama­skjölin og Sam­herj­a­skjölin í sam­vinnu við Stundina. 

Helgi hefur meðal ann­ars hlotið verð­laun fyrir umfjöllun sína um Sam­herj­a­skjölin, sam­keppn­islaga­brot Mjólk­ur­sam­söl­unnar, ára­tuga­langa brota­sögu kyn­ferð­is­brota­manns og þöggun trú­fé­laga og stofn­ana um þau. Svo og fyrir umfjöllun um bók­halds­brellur og skatta­snið­göngu stór­iðju­fyr­ir­tækja á Íslandi, lög­brot, aðgerð­ar­leysi eft­ir­lits­stofn­ana í sjáv­ar­út­vegi, mann­rétt­inda­brot gegn geð­sjúkum í íslenskum fang­elsum, brota­starf­semi á íslenskum vinnu­mark­aði og eins umfjöllun um ólög­lega förgun tveggja fyrrum flagg­skipa Eimskipa á Indlandi.

Ásamt því að starfa að áfram­hald­andi umfjöll­unum í miðlum Stund­ar­innar mun Helgi gegna hlut­verki rann­sókn­ar­rit­stjóra Stund­ar­innar. Það hlut­verk hefur ekki verið til staðar fram að þessu, en þekk­ist á rann­sókn­ar­frétta­miðlum erlendis undir titl­inum investigations editor. Hann hefur störf 15. febr­úar næst­kom­andi.

Breytingar á ritstjórn

Samhliða breyt­ing­unum stígur Jón Trausti Reyn­is­son úr stóli rit­stjóra og verður ein­göngu fram­kvæmda­stjóri Útgáfu­fé­lags­ins Stund­ar­innar og blaða­maður á rit­stjórn Stund­ar­innar. Frá stofnun Stund­ar­innar í jan­úar 2015 hafa rit­stjórar verið tveir, en Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir verður fram­vegis ein aðal­rit­stjóri.

Meðal ann­arra blaða­manna á Stund­inni eru Aðal­steinn Kjart­ans­son, Alma Mjöll Ólafs­dóttir, Freyr Rögn­valds­son, Ingi Freyr Vil­hjálms­son og Margrét Mart­eins­dóttir. 

Valddreifing, sjálfbærni og rannsóknarblaðamennska

Útgáfu­fé­lagið Stundin ehf. er í dreifðu eign­ar­haldi með ákvæðum um vald­dreif­ingu hlut­hafa inn­bundna í sam­þykktum félags­ins og ræður eng­inn einn eig­andi yfir meira en 12% eign­ar­hlut.

Markmið og hlut­verk Stund­ar­innar er að vera öruggur og áreið­an­legur vett­vangur fyrir gagn­rýna og óháða rann­sókn­ar­blaða­mennsku á Íslandi. Um 85% af rekstr­ar­tekjum Stund­ar­innar koma beint frá almenn­ingi í gegnum áskriftir eða styrki les­enda og hefur Stundin í heild hald­ist í sjálf­bærum rekstri frá og með árinu 2016. Fjár­hags­legt sjálf­stæði mið­ils­ins er á end­anum metið sem for­senda fyrir sjálf­stæði rit­stjórnar, á tímum þar sem íslenskir frétta­miðlar eru almennt reknir í miklu og stöð­ugu tapi með fram­lögum frá fjár­sterkum aðilum.

Stundin birtir umfjall­anir óháð formi. Hún kemur út í prent­aðri útgáfu á lands­vísu sem dreift er til áskrif­enda og fæst í lausa­sölu í flestum mat­vöru­versl­unum. Allt efni Stund­ar­innar er birt á vefnum Stundin.is og er hluti þess opinn fyrir öllum, en að fullu opið fyrir áskrif­endum. 

Panta má áskrift að Stund­inni hér.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni fjallar Stundin um mál­efni sem varða fjöl­mið­il­inn sjálfan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (34)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Didda Antons skrifaði
    Flott að fá hann
    0
  • Oktavia Guðmundsdóttir skrifaði
    Gerir gott blað ennþá betra að fá Helga til starfa.
    0
  • Hrafnhildur Kjartans skrifaði
    Ég gerðist áskrifandi þegar Helgi flutti sig yfir. Gott mál.
    0
  • JG
    Jónína Guðmundsdóttir skrifaði
    Gott mál
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Sem lesandi Stundarinnar óska ég Helga Seljan alls góðs hjá Stundinni og um leið óska ég Stundinni til hamingju með að fá til liðs við sig jafn frábæran blaðamann og Helgi er. Öll þjóðin þarf nú að sameinast í að binda enda á Belarus-væðingu Íslands. Samherji og ýmsir aðrir eru farnir að hegða sér eins og Lukasenko með því að reyna að bæla niður kritískar raddir í samfélaginu.
    Nú verða allir að standa upp og segja stopp! Áróðursherferðir á hendur blaðamanna sem gera skyldur sínar verða ekki liðnar.
    0
  • Magnus Helgi Hjalmarsson skrifaði
    Glæsilegt hjá Helga Seljan.
    0
  • Jóhanna Halldóra Steindórsdóttir skrifaði
    Fint
    0
  • Þórður Sigurjónsson skrifaði
    Glæsilegt :)
    0
  • KB
    Kristinn Brynjólfsson skrifaði
    Ok
    0
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Til hamingju með að fá besta blaðamann landsins til starfa.
    0
  • AD
    Anna Droplaug skrifaði
    Óska Stundinni tiL hamingju með HELGA.
    0
  • BB
    Baldvin Baldvinsson skrifaði
    Ætla að óska fyrrum sveitunga mínum til hamingju með þetta skref í lífi sínu.
    0
  • SGS
    Sigursteinn Gunnar Sævarsson skrifaði
    Ég óska Helga til hamingju með vistaskiptin.
    Þeir verða vandfundnir jafn beittir fjölmiðlamenn eins og Mr.Seljan.
    0
  • FSK
    Fríða S. Kristinsdóttir skrifaði
    Glæsilegur liðsauki! 🌷
    Til hamingju Stundin, stund allra tíma.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Sakna Helga af RÚV, en býð hann samt velkominn í Stundina!
    0
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Samherjaglæpamanninum tókst að rústa teymi rannsóknarblaðamanna hjá RÚV.
    En haldi hann að hann muni sleppa við frekari umfjöllun um glæpi sína, þá skjátlast honum hrapalega.
    Pólitísk eign samherja í sjálfstæðisflokknum hefur ENGIN áhrif innan Stundarinnar og því mun umfjöllunin ekki verða ritskoðuð af FL-okksmönnum.

    Samherji hefur nú þegar komið fyrir tveimur gömlum körlum inn í dómsmálaráðuneytið til að s´opa glæpunum undir teppið, ( ekki var hægt að fórna ungstirninu í það skítverk) en þessum mótleik hafa þeir ekki átt von á.
    Glæpalýðurinn verður látinn svara til saka.
    0
  • Valgerdur Jonsdottir skrifaði



    Gangi þér sem allra best Helgi hlakka til að lesa allt sem þú hefur að segja
    0
  • BJ
    Bjarni Jónsson skrifaði
    Frábært! Til hamingju Stundin, Helgi og við hin! Gangi ykkur vel!
    0
  • Páll Guðfinur Gústafsson skrifaði
    Frábærar fréttir! Til hamingju Stundin með fá besta fréttamann allra tíma!
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Gott mál . Til hamingju Stundin með góðan starfsktaft.
    0
  • TH
    Trausti Hafsteinsson skrifaði
    Frábærar fréttir! Alvöru, heiðarleg rannsóknarblaðamennska hefur aldrei verið nauðsynlegri en nú í þessu litla, spillta þjóðfélagi þar sem flestir miðlar þjóna sérhagsmunum eigenda á kostnað almennings. Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef stutt Stundina síðustu árin og mun gera áfram.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Sérlega ánæjulegt að blað með metnað og sanleikan að leiðarljósi skuli geta dafnað og þrifist hvað ætu þá ríkisstirtu bitlinga þegarnir að geta gert?
    0
  • Þorvaldur Gylfason skrifaði
    Glæsilegt.
    0
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Frabært!
    0
  • Ásthildur Kjartansdóttir skrifaði
    Frábært.
    0
  • ÁH
    Ásdís Haraldsdóttir skrifaði
    Til hamingju með Helga. Ég gerðist áskrifandi aftur í tilefni dagsins.
    0
  • Björn Þorsteinsson skrifaði
    Saknað af RUV, en gott mál,frábært.
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Og enn stækar Stundin,nú mega sko Fávitarnir fara að vara sig,en auðvaldið gleðst ekki og grípur sjálsagt til enn harðari varna.Til hamingju.
    0
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Stundin styrkist við þetta. Nóg um það. Kv
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Gott mál enda eru stundin og kjarninn að verða einu fjölmiðlarnir sem maður lítur á sem alvöru.
    0
  • Inga Jona Traustadottir skrifaði
    Segi bara æðislegt 👏 réttur maður á hárréttum stað ... Takk snillingur fyrir að ganga til liðs við Stundina 😃
    0
  • SM
    Sigurður Magnússon skrifaði
    Frábært. Til hamingju!
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Flottur maður á frábærum stað. Til Hamingju Helgi.
    0
  • Kjartan Elísabet skrifaði
    Til hamingju STUNDIN. Góður liðsauki
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár