Hjólað og hermt eftir

Stund­ar­skrá dag­ana 14. jan­úar til 4. febr­úar.

Hjólað og hermt eftir

Muggur - Guðmundur Thorsteinsson

Hvar? Lista­safn Íslands

Hvenær? Stendur til 13. febr­úar 2022

Á sýn­ing­unni „Muggur – Guð­mundur Thor­steins­son“ kynn­ast gestir sér­stæðum mynd­heimi Muggs þar sem meðal ann­ars prinsar og prinsessur dvelja í fögrum höllum, þeir kynn­ast trölla­heimum myrk­urs og ógnar, lands­lagi og sveita­sælu á Íslandi, ferða­minn­ingum frá fram­andi stöðum, náð­ar­heimi trú­ar­innar þar sem Kristur læknar sjúka auk þess sem á sýn­ing­unni er að finna skop­legar og skondnar teikn­ingar og þjóð­sögur. 

„Muggur var ein­stakur lista­maður og heill­andi per­sónu­leiki sem lést aðeins 32 ára að aldri. Hann hefur rétti­lega verið kall­aður fyrsti fjöl­lista­maður Íslands. Á sýn­ing­unni er leit­ast við að gera stuttum en glæsi­legum list­ferli hans ítar­leg skil og sýna fjöl­breytn­ina í áhrifa­miklu höf­und­ar­verki hans sem spannar breitt svið bæði hvað efni og inn­tak varðar,“ segir Kristín G. Guðna­dóttir sýn­ing­ar­stjóri.

Jazz í hádeginu: Ferðalag með Elvari Braga

Hvar og hvenær? Borg­ar­bóka­safnið Gerðu­bergi 14. jan­úar kl. 12.15 og Borg­ar­bóka­safnið Spöng­inni 15. jan­úar kl. 13.15

Hljóm­sveit­ina skipa þeir Elvar Bragi (flug­el­horn og trompet), Hróðmar Sig­urðs­son (gítar) og Leifur Gunn­ars­son (kontra­bassi). Lögin á efn­iskránni koma úr öllum áttum svo sem Kind folk (Kenny Wheeler), Sirrý (Elvar Bragi Krist­jóns­son), Gone fis­hing (Hróðmar Sig­urðs­son) og Skuggar í dimmum borgum (Leifur Gunn­ars­son).

„Tilvera okkar er und­ar­legt ferða­lag“ skrif­aði ljóð­skáldið á sínum tíma. Ferðalög eru marg­slungin, þau geta verið bók­staf­leg, and­leg og lík­am­leg. Á þessum tón­leikum bjóðum við gestum upp á alls konar ferða„lög“,“ segir Elvar sem hefur verið virkur í tón­list síðan hann byrj­aði í ball­hljóm­sveit með pabba sínum aðeins 15 ára gam­all. Hann útskrif­að­ist frá TFÍH með burt­far­ar­próf í jazztrompetleik vorið 2016. Elvar er hljóð­færa­leik­ari, laga­höf­undur og útsetj­ari. Hann hefur spilað, útsett og samið tón­list með Unu Stef, Babies flokknum, Hróðmari Sig­urðs­syni, Stór­sveit Reykja­víkur, Bangoura Band, Big Band Samma svo eitt­hvað sé nefnt.

Hjólatúr | Stefnumót við skáldin í hverfinu

Hvar? Borg­ar­bóka­safnið Kringl­unni

Hvenær? Laug­ar­dag­inn 15. jan­úar

Árni Dav­íðs­son hjá Hjóla­færni á Íslandi og Gutt­ormur Þor­steins­son, sagn­fræð­ingur og deild­ar­bóka­vörður á Borg­ar­bóka­safn­inu, fara með áhuga­sama í hjóla­túr á vegum Borg­ar­bóka­safns­ins. Gutt­ormur les upp ljóð og prósa sem tengj­ast hverf­unum í kringum Kringlu­mýri, þátt­tak­endur kynn­ast skáld­unum í Hlíðunum og Háa­leit­is­hverfi og svo verður elst við ketti í Kringl­unni og ræn­ingja í Öskju­hlíð­inni.

Hjóla­t­úr­inn hefst við Borg­ar­bóka­safnið Kringl­unni og ættu þátt­tak­endur að mæta í hlýjum fatn­aði og með hjól sem henta veðri og færð. 

Boðið er upp á fleiri hjóla­t­úra með bók­mennta­legu ívafi til apríl, sjá heima­síðu Borg­ar­bóka­safns­ins. Verk­efnið er sam­starfs­verk­efni Borg­ar­bóka­safns­ins, Hjóla­færni á Íslandi og Lands­sam­taka hjól­reiða­manna og fékk það styrk frá Mið­borg­ar­sjóði Reykja­vík­ur­borgar.

Ljósmyndahátíð Íslands: Loftþétt

Hvar: Ásmund­ar­salur

Hvenær: 15.–30. jan­úar

Laug­ar­dag­inn 15. jan­úar opnar sýn­ingin Loftþétt í Ásmund­ar­sal. Að sýn­ing­unni standa Klængur Gunn­ars­son og Hrafn Hólm­fríð­ar­son Jónsson (Krummi). Í verkum sínum takast lista­menn­irnir á við hvers­dags­lega til­burði, fyr­ir­bæri og staði. Sýningin veltir fyrir sér lág­stemmdum mögu­leikum í hvers­dags­leik­anum og hátíð­legum áformum um upp­brot hans.

Barrokk – óperu – jazz | Tíbrá tónleikaröð

Hvar? Salurinn

Hvenær? 25. jan­úar

Verð 4.400 kr.

Á tón­leik­unum verða fluttar aríur, dúettar og for­leikir úr bar­rokk­óp­erum eftir meðal ann­ars Händel, Glück og Purcell og munu klass­ískar söng­konur og jazztónlistarmenn tvinna saman tón­list­ar­stefnur og -stíla. Lista­menn­irnir eru Ingi­björg Guð­jóns­dóttir sópran­söng­kona, Nathalía Druzin Hall­dórs­dóttir mezzósópransöngkona, Kjartan Valde­mars­son píanó­leik­ari, Magnús Tryggvi Elíasen gít­ar­leik­ari og Óskar Guð­jóns­son sax­ó­fón­leik­ari.

„Barrokk-óperu-jazz er dálítið sér­stök sam­setn­ing en ein­stak­lega spenn­andi og for­vitni­legt hvernig þessar ólíku en þó líku tón­list­ar­stefnur koma saman,“ segir Ingi­björg Guð­jóns­dóttir. Og Nathalía Druzin bætir við: „Það sem við leyfum okkur að gera er að taka þekktar aríur og dúetta sem okkur þykir vænt um og höfum flutt áður á hefð­bund­inn hátt og leyfum okkur að spinna þær og snúa þeim í svo­lítið nýjar áttir og víddir.“

Sóli Hólm - Loksins eftirhermur

Hvar? Bæjarbíó

Hvenær? 27.–29 jan­úar, 10.–12. febr­úar og 24.–26. febr­úar.

 Sýning Sóla Hólm, Loksins eft­ir­hermur, var frum­sýnd í haust og hafa um 5.000 gestir séð hana. Sóli heldur áfram að gleðja land­ann á nýju ári og er mark­miðið að gera til­veru fólks örlítið jákvæð­ari.

„Þetta gekk fárán­lega vel fyrir ára­mót og sem betur fer náði ég að klára að sýna allar sýn­ingar fyrir jól. Nú get ég ekki beðið eftir að byrja aftur,“ segir Sóli. „Þetta er þriðja sýn­ingin sem ég set upp og fólk sem hefur ekki hag af því að láta mér líða sem best hefur sagt mér að þetta sé mitt besta verk og ég hef ákveðið að trúa því. Þarna er ég bara að gera það sem ég geri best, sem er að herma eftir fólki og gera grín að mál­efnum líð­andi stundar.“

Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum

Hvar: Kjar­vals­staðir

Hvenær: Opnuð 29. jan­úar.

Á sýn­ing­unni „Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum“ er lögð áhersla á lit­inn í verkum lista­manns­ins og kannað hvernig lita­notkun hans var háttað. Kjarval not­að­ist við fjöl­breytta liti í lista­verkum sínum en á síðu lista­safs­ins segir að veður og birtu­skil­yrði hverju sinni hafi stýrt lita­vali lands­lags­verka og að í fantasíum og öðrum verkum hafi það verið til­finn­ing og per­sónu­leg sýn lista­manns­ins sem réði för. Á sýn­ing­unni á Kjar­vals­stöðum hafa verið valin verk með það í huga að end­ur­spegla frjálsa lita­notkun og flæði hug­mynda og tján­ingar í list Kjarvals.

„Kjarval var mik­ill nátt­úru­unn­andi og mál­aði fjölda verka af lita­dýrð íslenskrar nátt­úru. Hann leit svo á að nátt­úra lands­ins væri lita­spjald í sjálfri sér og vann þó nokkur verk af lita­spjöldum sam­ofnum nátt­úr­unni,“ segir Edda Hall­dórs­dóttir sýn­ing­ar­stjóri. „Á sýn­ing­unni verða nokkur lita­spjöld til sýnis, þar á meðal tómt lita­spjald sem var síð­asta verkið sem hann vann áður en hann lést.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár