629. spurningaþraut: Tvær vikur frá áramótum og vér spyrjum!

629. spurningaþraut: Tvær vikur frá áramótum og vér spyrjum!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá syngj­andi kúreka í sjón­varps­þátt­unum Rawhide ein­hvern tíma á árunum 1960-1965. Hvað heitir leik­ar­inn sem lék söng­fugl þennan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var, sam­kvæmt frá­sögn Landnámu, fyrsti land­náms­mað­ur­inn í Reykja­vík?

2.  Árið 2012 komu til sögu fjögur fyr­ir­bæri sem nefnd voru eftir þeim Bríeti, Katrínu, Guðrúnu og Þórunni. Hvaða fyr­ir­bæri voru þetta?

3.  Sara Pét­urs­dóttir heitir ung söng­kona sem hefur látið tölu­vert að sér kveða síð­ustu miss­erin. Hún gaf út plöt­una Where I Belong árið 2019 og sömu­leiðis lagið Unlovable og í fyrra meðal ann­ars lagið ADHD. Hvað kallar Sara sig? 

4.  Í hvaða dal er hið forna bisk­ups­setur Hólar?

5.  Hvað heitir pod­kast Eddu Falak?

6.  Fjöldinn af „bátum“ eða „rifjum“ innan í app­el­sínu getur verið örlítið mis­mun­andi en langoft­ast eru bát­arnir þó ... hve margir? 

7.  Í hvaða trú er talað um halal fæðu?

8.  Í hvaða landi er borgin Ishfahan?

9.  En í hvaða heims­álfu er Bólivía?

10.  Vigga, Háa-Þóra, Stutta-Píka, Litla-Gerður og Lilla. Svo munu þær hafa verið kall­aðar sums staðar á land­inu, svo sem í Skaga­firði og Dala­sýslu, en í Eyja­firði voru þær kall­aðar Dyrgja, Bauga, Geira, Búdda og Grýta. En aðrir þar um slóðir munu hins vegar hafa kallað þær Stóru-Jóu, Nagla-Þóru, Löngu-Dóru, Stuttu-Jóru og Litlu-Lóu. Hverjar eru þær?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hluti af plakati hvaða kvik­myndar má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ingólfur.

2.  Götur í Reykja­vík. Þær kall­ast allar -tún, en það nægir að nefna götur.

3.  Glowie.

4.  Hjalta­dal.

5.  Eigin konur.

6.  Tíu.

7.  Íslam.

8.  Íran.

9.  Suður-Ameríku.

10.  Tær.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­ar­inn nefn­ist Clint Eastwood.

Plakatið var gert til að aug­lýsa mynd­ina Titanic.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár