Formaður Eflingar lýsir yfir stuðningi við formannsframboð Ólafar Helgu

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, vara­for­maður Eflingar, hefur ákveðið að sækj­ast eftir for­manns­sæti í stétt­ar­fé­lag­inu. Núver­andi for­maður, Agnieszka Ewa Ziólkowska, lýsir yfir stuðn­ingi við hana.

Formaður Eflingar lýsir yfir stuðningi við formannsframboð Ólafar Helgu
Vill stóla­skipti Ólöf Helga er núver­andi vara­for­maður Eflingar og sæk­ist eftir að fá sæti Agnieszku Ewu for­manns, sem lýsir yfir stuðn­ingi við fram­boðið. Mynd: efling.is

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, vara­for­maður Eflingar, býður sig fram til for­manns í stétt­ar­fé­lag­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá henni. Í sam­tali við Stundina lýsir Agnieszka Ewa Ziólkowska, núver­andi for­maður Eflingar, yfir stuðn­ingi við fram­boð Ólafar Helgu. Sjálf vill hún aftur verða vara­for­maður Eflingar. „Ég mun stíga niður í vara­for­manns­stól­inn og ég lýsi fullum stuðn­ingi við fram­boð Ólafar af því við erum frá­bært teymi. Ég er mjög bjart­sýn gagn­vart þessu,“ segir Agnieszka við Stundina. 

HættiSólveig Anna Jóns­dóttir sagði af sér sem for­maður Eflingar á síð­asta ári.

Kosið verður í emb­ættið í febr­úar næst­kom­andi, fyrr en áætlað var vegna óvæntrar afsagnar Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur á síð­asta ári. Gera má ráð fyrir að átök verði á vinnu­mark­aði á kom­andi mán­uðum en lífs­kjara­samn­ing­ur­inn svo­kall­aði rennur út á árinu. Ólöf Helga segir í til­kynn­ingu sinni að hún vilji leiða við­ræður um nýja kjara­samn­inga ásamt stjórn, samn­inga­nefnd og kjara­ráði. 

„Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja stöðu trún­að­ar­manna og efla þá í starfi.  Ég vil halda áfram því öfl­uga starfi sem Efling hefur unnið að síð­ustu ár og lýtur m.a. að þjón­ustu við erlenda félags­menn og þátt­töku þeirra í starfi hreyf­ing­ar­innar. Ég vil takast á við vanda ungs fólks á vinnu­mark­aði og þeirra sem eru utan náms og vinnu af fullum þunga. Síðast en ekki síst vil ég vinna að því ásamt stjórn og skrif­stofu að efla þjón­ustu við félags­menn enn frekar, byggja upp fræðslu­starf, auka lýð­ræði innan félags­ins og tryggja aðgengi félaga að upp­lýs­ingum um starf­semi Eflingar,“ segir hún enn­fremur. 

Ólöf Helga hefur setið í stjórn Eflingar frá árinu 2019 og sem vara­for­maður und­an­farna mán­uði. Hún og stétt­ar­fé­lagið hafa staðið í deilum við Icelandair eftir að henni var sagt upp sem hlaðmanni á Reykja­vík­ur­flug­velli á meðan hún var trún­að­ar­maður Eflingar á vinnu­staðnum. 

„Ég þekki því af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin er launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda.“
Ólöf Helga Adolfs­dóttir

„Það er erfitt að missa vinn­una og fram­færsl­una, ekki síst fyrir okkur sem höfum ein­göngu starfað í lág­launa­störfum og eigum því ekki borð fyrir báru þegar í harð­bakk­ann slær. En það er líka sárt að vera vísað á dyr af óljósum ástæðum, sem virð­ast ekki vera aðrar en þær að ég sinnti hlut­verki trún­að­ar­manns af alúð á tímum þar sem vegið var að kjörum og rétt­indum starfs­fólks. Við þessar aðstæður átti ég skjól hjá mínu stétt­ar­fé­lagi sem reis upp mér til varnar. Ég þekki því af eigin raun hversu mik­il­væg öflug og skipu­lögð verka­lýðs­hreyf­ingin er  launa­fólki and­spænis ægi­valdi fyr­ir­tækja og sam­taka atvinnu­rek­enda,“ segir hún í til­kynn­ingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Mikið vona ég að þessi unga kona verði nærsti formaður, frekar en herramaðurinn sem gerði allt sem hann gat til að velta Sólveigu Önnu úr sæti. Sólveig Anna og Ragnar eru búin að sýna hvað alvöru kjarabarátta er mikilvæg. Þau hafa haft áhrif langt út yfir mörk eigin félaga.
    0
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Ef mér skjátlast ekki því meir, þá eru þetta frambjóðendur hins vinsæla skrifstofufólks Eflingar, kontóristanna. Það gefur ekki beinlínis góð fyrirheit, a.m.k. ekki fyrir almenna verkamenn félagsins.
    0
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Á formaðurinn ekki að vera hlutlaus?
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Er fiskur undir þessum steini?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár